Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.04.1989, Page 12

Bæjarins besta - 12.04.1989, Page 12
12 BÆJARI3MS BESTA Fermingin: ,,Er þetta ekki vaninn?" BB spjallar við nokkur fermingarbörn RRÁÐLEGA fara ferm- ngarnar í hönd. í allt ferm- ast á sjöunda tug barna á ísafiröi, í Hnífsdal og í Súðavík. Fermingin er tákn margs í hugum fólks, og enda þótt trúar- legt innihald hennar hljóti aö skipa fyrsta sessinn, þá líta margir á þessa athöfn sem tákn- ræna fvrir það að barniö er að hverfa, fullorðinsárin eru að taka við. BB lék forvitni á að vita hversu alvarlega unglingarnir taka ferminguna. Er gjafaflóðið að drekkja trúarboðskapnum, fermast krakkarnir af því að hin- ir gera það, er fermingin „út- skrift" úr kirkjunni eða er þetta athöfn sem fer fram að vel íhug- uðu máli? í fjölskyldu Guðs Við spjölluðum við nokkra krakka sem fermast öll á næst- unni og spurðum þau fyrst hvers vegna þau ætluðu að fermast. „Ég ætla að staðfesta skírnina og það þýðir að ég er sammála því að ég er skírð og er sammála því að ég sé tekin í fjölskyldu Guðs“ sagði Birna Málmfríður Guðmundsdóttir. „Ég trúi á að það sem stendur í biblíunni hafi skeð en ég er ekki mjög kirkju- rækin. Ég hef samt reynt að mæta í vetur. Ég las svolítið í biblíunni þegar ég var níu ára og mér voru kenndar bænir þegar ég var lítil. Ég fer stundum með þær þeg- ar mér líður eitthvað illa. Eg held að margir á mínum aldri séu hættir því. Ég bið sjaldan bænir á kvöldin en ég gerði það alltaf þegar ég var yngri. Ég fer með Faðir vor og alls konar smá- bænir sem ég hef lært. Svo sá ég einhvern tímann æðruleysisbæn upp á vegg sem ég fer alltaf með fyrst. Hún er svona: „Guð, gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli.“ Svo tala ég við Guð sjálf.“ Þeir segja það bara Hvað með gjafir, föt og veislu- Birna Málmfríður Guðmundsdóttir höld? Skiptir það miklu máli? „Gjafirnar, veislan og ný föt fylgja alltaf fermingunni en ég held að það séu ekki margir sem fermast bara út af gjöfunum þó sumir segi það, sérstaklega strákarnir. Margar af stelpunum ætla að fá töff föt sem þær geta notað áfram, á diskótekum og svoleiðis. Ég er ekki búin að ákveða alveg hverju ég verð í en það á alla vega að vera fínn kjóll og ég ætla að hafa blóm í hárinu. Mér er al- veg sama þó ég geti ekki notað kjólinn aftur, maður fermist bara einu sinni um ævina. f>að fá margar stelpur rúm í fermingargjöf og hillur. Sumir fá græjur eða tölvur. Og nokkrir fara í utanlandsferð með pabba sínum og mömmu í staðinn fyrir að halda veislu. Það finnst mér sniðugt. En það eru ekki margir sem spyrja sig virkilega að því hvort þeir vilji fermast, þetta er talið svo sjálfsagt. Ég veit um einn strák sem ætlar ekki að fermast. Hann segist ekki vera tilbúinn til þess og presturinn sagði við okkur að hann myndi virða hann fyrir að segja að hann sé ekki tilbúinn til að fermast.“ „Yeit ekki alveg“ „Ég fermist til að staðfesta skírnina" sagði Haukur Örn Harðarson án þess að hugsa sig um þegar BB spurði hann hvers vegna hann fermdist. En þegar hann var spurður hvað það þýddi þá komu vöfflur á strák. „Ég er ekki alveg viss“ sagði hann svo. Hann sagðist „soldið" trúaður og færi stundum með bænir sem hann hefði lært þegar hann var yngri. „Ég held að margir fari með bænir þó þeir tali ekki um það“ sagði hann. Hann sagði gjafirnar ekki skipta máli, hann myndi fermast þó engar gjafir fylgdu með. „En það er betra að fá þær“ bætti hann svo við. „Ja, ég veit það ekki“ sagði Steingrímur Rúnar Guðmunds- son og yppti öxlum þegar hann var spurður um tilgang ferming- arinnar. „Er þetta bara ekki vaninn? Trúaður? Ég fer ekki í

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.