Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Side 2
Hefur æfingum verið slegið á frest hjá ykkur?
Nei, það er ekki búið að gera það. Hjá okkur í Fylki var ákveðið
að gefa frí á sunnudaginn og helgarfríið þannig lengt. Það á því
að vera æfing á mánudaginn. Það eru hvorki komin skýr svör frá
KSÍ né ÍSÍ varðandi hvernig æfingar eiga að fara fram. Í gær
[fimmtudag] gerði Líney [Halldórsdóttir], framkvæmdastjóri ÍSÍ,
þó ráð fyrir að æfingar gætu farið fram með eðlilegum hætti. Ég
er enginn sérfræðingur í þessu en miðað við hvernig þetta var
síðast þegar það var sett tveggja metra regla voru æfingar
ekki leyfðar nema með ströngum skilyrðum. Þá var frekar
erfitt að halda fótboltaæfingu. Ég sé ekki hvernig það ætti
að vera eitthvað öðruvísi núna.
Eru knattspyrnumenn svartsýnir á stöðuna?
Ég hef aðeins heyrt í þeim sem ég þekki og menn eru
ekki mjög peppaðir fyrir því að þetta sé að gerast
aftur. Menn eru svolítið svartsýnir, sérstaklega í
ljósi þess að síðast var þessi tími ekkert sér-
staklega skemmtilegur. Þá var maður að æfa
einn eða kannski með einum eða tveimur öðr-
um í einhverjum hlaupaæfingum og svo fram-
vegis. Þá og nú er það þessi óvissa sem er
uppi. Maður veit ekki hvað þetta varir lengi.
Nú er búið að herða samkomubann í tvær vikur og KSÍ búið að
fresta leikjum til 5. ágúst en það hefur enga merkingu aðra en að
staðan verður tekin aftur þá. En þetta er bara staðan og það þýðir
ekki annað en að vera bjartsýnn á að þetta byrji sem fyrst aftur.
Heldurðu að leikmenn séu til í að spila með
enga áhorfendur og halda sig þá til hlés
varðandi samkomur?
Ég held að leikmenn liðanna séu tilbúnir að gera það sem þarf
til að klára mótið. Það er auðvitað ekki jafn skemmtilegt án
áhorfenda. Ég held að það sé vilji allra en svo er spurningin
hvort félögin geta það. Geta þau haldið leiki og verið með fólk í
gæslu þegar engar tekjur koma inn af leikjum? Ég held samt að
langflestir séu á því að klára mótið, sé kostur á því. Það verður
að koma í ljós með hvaða hætti það verður gert og snýst auðvit-
að á endanum um öryggi fólks. Það eru auðvitað alltaf ein-
hverjir leikmenn sem eru ekki tilbúnir að spila ef allt er
ekki öruggt. Það eina sem hægt er að gera í þessu er að
bíða, vona það besta og búa sig undir það versta.
ARNAR SVEINN GEIRSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2020
Þegar ég hóf störf hér á blaðinu sem sumarstarfsmaður í fyrra vissi égekkert hvað ég var að gera. Allt var svo nýtt og framandi. Ég hef lík-lega unnið hægar en nokkur maður hefur gert á Morgunblaðinu og
það tók mig fleiri klukkutíma að undirbúa mig fyrir lítið viðtal sem í dag
krefst nokkurra mínútna undirbúnings. Ég lærði þó fljótt inn á hlutina og
varð öruggari með mig.
Viðtalstæknin hefur þó nákvæmlega ekkert breyst. Ég skrifa einfaldlega nið-
ur nokkrar spurningar, hringi í fólk eða hitti það, spyr að því sem ég vil vita og
sé hvert samtalið fer. Einstaka sinnum þarf að teygja lopann svo viðtalið verði
nú innihaldsríkt en á öðrum stundum þarf að hafa sig allan við til að viðmæland-
inn blaðri ekki út í eitt. Ég tek viðtalið upp á upptökutæki sem ég svo hlusta á á
eftir og skrifa upp greinina.
Mér til mikillar furðu er þetta
ekki það sem allir blaðamenn gera.
Á fréttadeildinni, þar sem fólk þarf
að hafa hraðar hendur við að koma
efni frá sér, skrifa einhverjir jafn-
óðum upp í tölvu svör viðmælenda
sem þeir hringja í. Ég verð að við-
urkenna að ég hef engan skilning á
því hvernig slíkt fer fram. Bæði
skrifa ég miklu hægar en nokkur
maður talar og það myndi líklega
slökkna á heilanum á mér við það
eitt að reyna það.
Einn kollegi minn virðist þó ekki finna fyrir þessu. Hann tekur viðtölin ekki
upp heldur skrifar þau einfaldlega á blað. Svo sest hann niður og skrifar upp
löng og nákvæm viðtöl eins og hann eigi þetta allt á upptöku. Raunar held ég
að hann skrifi ekkert niður. Ég hef kíkt á minnisblöðin og sé ekkert nema
bylgjur sem ekki er nokkur leið að lesa. Hann er mögulega með upptökuminni,
maðurinn. „Bylgjuminni“ kannski?
Ég hef gert tilraun til að skrifa niður punkta í mínum viðtölum en það geng-
ur alltaf jafn illa. Einbeitingin fer út um þúfur og ekki nokkur leið fyrir mig að
bregðast við því sem fólk segir. Sömu sögu er að segja um skólagöngu mína.
Ég hef alltaf haft það fyrir sið að glósa ekkert nema kennarinn skrifi það upp á
töflu og augljóst er að ég þurfi að kunna efnið. Ef ég reyni að glósa það sem
hann segir missi ég alla einbeitingu og meðtek ekkert sem fram fer.
Það hefur þó reynst mér vel hingað til að hlusta og skrifa ekkert, bæði í skól-
anum og hér á blaðinu. Að minnsta kosti hefur lítið verið sett út á viðtöl mín ef
frá eru talin nokkur nafnlaus bréf (já, bréfpóstur) þar sem málkunnátta mín er
til umræðu. (Fyrst var bréf stílað á mig en síðan hefur viðkomandi líklega gef-
ist upp þegar ekkert batnaði og sendi þá beint á umsjónarmann blaðsins). Ég
held ég haldi mig því við mína viðtalstækni og leyfi öðrum að skrifa viðtölin upp
og teikna bylgjur til að hjálpa sér að muna.
Bylgjuminni
Pistill
Böðvar Páll
Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
’Raunar held ég aðhann skrifi ekkert nið-ur. Ég hef kíkt á minn-isblöðin og sé ekkert nema
bylgjur sem ekki er nokkur
leið að lesa.
Þórir Benediktsson
Á Big Lebowski.
SPURNING
DAGSINS
Hvar er
besti bitinn
í bænum?
Sigrún Kristinsdóttir
Á kjúklingastað.
Þórður Pétursson
Á Mandi.
Arna Pálsdóttir
Á Flatey Pizza.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Árni Sæberg
Íslandsmótinu í knattspyrnu var
slegið á frest á fimmtudag í kjöl-
far herts samkomubanns. Arnar
Sveinn er leikmaður Fylkis í
Pepsi-Max-deildinni og forseti
Leikmannasamtaka Íslands.
Rými fyrir
ráðstefnur
í Hörpu
Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur
Nánar á harpa.is/radstefnur
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
- Við erum hér til að aðstoða þig! -
• Sérsmíðaðir skór
• Skóbreytingar
• Göngugreiningar
• Innleggjasmíði
• Skóviðgerðir
Erum með samning við
sjúkratryggingar Íslands
Tímapantanir í síma 533 1314
Ekki mjög peppaðir
Morgunblaðið/Árni Sæberg