Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Page 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2020 Góð vinkona mín til margraára þreytist ekki á því aðminna mig á að ekkert ger- ist án gerenda. Það segi aðeins hálfan sannleikann að vísa til þess sem gerst hafi án þess að tilgreina hvers vegna og af hvers völdum. Þetta er náttúr- lega hárrétt hjá minni góðu vinkonu, það gerist ekkert af sjálfu sér. Einu sinni voru flokksblöð á Ís- landi og öllum var sýnilegt hvernig hagsmunaþræðir stjórnmálanna lágu inn á ritstjórnarskrifstofurnar og hvernig þeir síð- an birtust les- endum blaðanna. Svo var hætt að reka flokksblöð og þau urðu fag- leg sem kallað var. Álíka fagleg og ríkis- bankarnir eftir einkavæðingu. Margir töldu það hafa verið mikið framfaraskref að losna við pólitískar tilnefningar í bankaráðin enda væri nú allt á hinum faglegu nótum og allir hættir að vera pólitískir eða hagsmunatengdir. Eða hvað? Voru stjórnendur ef til vill allir komnir í sama flokkinn? Ráku þeir nú sérhagsmuni pyngj- unnar? En hvers pyngja skyldi það vera? Hagsmunir eru í sjálfu sér hvorki góðir né slæmir. Í lýðræðisþjóðfélagi eru á því mismunandi skoðanir hvaða hagsmunir teljist góðir og hverjir slæmir. En við ættum að geta sam- mælst um að hagsmunir og hags- munatengsl eigi ekki að fara dult, ekki hvíla í skugga heldur hafa andlit. Ég hef fyrir því rökstuddan grun að faglegheitin séu oftar en ekki dulargervi þeirra sem ekki vilja sjást. Eins konar huliðshjálmur. En mann- eskjan í hinum faglega manni er að sjálfsögðu þarna enn. Hún er til stað- ar á kosningadaginn og þegar greidd- ur er út arður, framlengdir samn- ingar um skipan í nefndir og ráð og þegar ávinningur er veginn og metinn. Þess vegna skipta kerfi máli og hvaða hvatar eru byggðir inn í þau bæði til hvatningar og til aðhalds. Atvinnurekendur og samtök þeirra hafa talað opinskátt um það hvernig lífeyrissjóðunum skuli beitt í þágu hagsmuna sem þeim hugnist. Stundum hafa þeir gerst mjög ná- kvæmir í forskrift sinni, til dæmis hvernig sjóðirnir skuli nú koma Ice- landair til bjargar. Þetta hefur þótt hið besta mál, fullkomlega eðlilegt og að sjálfsögðu faglegt. Svo kemur skyndilega hljóð úr gagnstæðri átt. Forseti ASÍ segir hrægamma á flugi, hnita yfir bráð sinni, og formaður VR andmælir því að lífeyrissjóðir séu látnir þjóna gömmum: Ekki krónu til Icelandair á meðan þar er vaðið um á skítugum skónum, segir verkalýðshreyfingin og er öllum sýnileg. Ekkert skugga- tal þar. Ég var í hópi þeirra sem fögnuðu þessum yfirlýsingum og geri enn. Í mínum huga er það nefnilega ámælisvert að hlaupa til með millj- arða launafólks til stuðnings fyrir- tæki þá stundina sem það treður á réttindum starfs- fólks. En viti menn, nú rís upp á aftur- fæturna saman- súrrað stofnana- veldi landsins og fordæmir verka- lýðsforingja sem leyfa sér að tala máli almennings. Það er sagt vera óhæfa, nánast glæpsamlegt, að líf- eyrissjóðirnir hlíti skuggastjórnum sem segi faglegum sjóðsstjórnum fyrir verkum. Skuggastjórnirnar svo- nefndu eru vel að merkja ekki þær sem raunverulega sitja í skugga því enginn þekkir haus né sporð á meint- um fagmönnum, heldur er átt við full- trúa verkalýðsfélaganna sem kjörnir voru til að standa vörð um hagsmuni launafólks og verjast misnotkun á líf- eyrissjóðunum. Þeirra er að leggja línur og láta í sér heyra á stundum sem þessum. Að sjálfsögðu! Það eru öfugmæli að kenna við skuggann þau sem koma hreint fram og vilja kveikja ljósin. Stjórnir verkalýðsfélaga mega aldrei láta kúga sig til þagnar og undirgefni. Þær eiga að hafa andlit og rödd og kannast við ætlunarverk sitt. Til þess eru verkalýðsfélögin, að standa uppi í hárinu á ósvífnu auð- valdi. Það er hlutverk þeirra og því ber að fagna þegar þau rækja það hlutverk og láta hart mæta hörðu. Auðvald skilur vald auðsins. En það er ekki sama hver hefur pen- ingavaldið á hendi og beitir því. Þegar það þykir vera rangur aðili, rangir hagsmunir, rangt fólk, þá þarf að safna liði á fjölmiðlum, í ríkisstjórn og á Alþingi til þess að setja lög sem tryggi að „fagmennska“ sé í heiðri höfð. Morgunblaðið/RAX Peningar eiga að hafa andlit Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’Forseti ASÍ segir hræ-gamma á flugi, hnitayfir bráð sinni, og formað-ur VR andmælir því að líf- eyrissjóðir séu látnir þjóna gömmum: Ekki krónu til Icelandair á meðan þar er vaðið um á skítugum skón- um, segir verkalýðshreyf- ingin og er öllum sýnileg. BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 Samba einingasóf i horntungusófi / 275x233 cm / kr. 387.800 -- margar stærðir og útfærslur í boði Árni Sæberg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.