Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Qupperneq 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2020
Góð vinkona mín til margraára þreytist ekki á því aðminna mig á að ekkert ger-
ist án gerenda. Það segi aðeins hálfan
sannleikann að vísa til þess sem gerst
hafi án þess að tilgreina hvers vegna
og af hvers völdum. Þetta er náttúr-
lega hárrétt hjá minni góðu vinkonu,
það gerist ekkert af sjálfu sér.
Einu sinni voru flokksblöð á Ís-
landi og öllum var sýnilegt hvernig
hagsmunaþræðir stjórnmálanna lágu
inn á ritstjórnarskrifstofurnar og
hvernig þeir síð-
an birtust les-
endum blaðanna.
Svo var hætt að
reka flokksblöð
og þau urðu fag-
leg sem kallað
var. Álíka fagleg
og ríkis-
bankarnir eftir
einkavæðingu.
Margir töldu það
hafa verið mikið
framfaraskref að
losna við pólitískar tilnefningar í
bankaráðin enda væri nú allt á hinum
faglegu nótum og allir hættir að vera
pólitískir eða hagsmunatengdir.
Eða hvað? Voru stjórnendur ef til
vill allir komnir í sama flokkinn?
Ráku þeir nú sérhagsmuni pyngj-
unnar? En hvers pyngja skyldi það
vera?
Hagsmunir eru í sjálfu sér hvorki
góðir né slæmir. Í lýðræðisþjóðfélagi
eru á því mismunandi skoðanir hvaða
hagsmunir teljist góðir og hverjir
slæmir. En við ættum að geta sam-
mælst um að hagsmunir og hags-
munatengsl eigi ekki að fara dult,
ekki hvíla í skugga heldur hafa andlit.
Ég hef fyrir því rökstuddan grun
að faglegheitin séu oftar en ekki
dulargervi þeirra sem ekki vilja sjást.
Eins konar huliðshjálmur. En mann-
eskjan í hinum faglega manni er að
sjálfsögðu þarna enn. Hún er til stað-
ar á kosningadaginn og þegar greidd-
ur er út arður, framlengdir samn-
ingar um skipan í nefndir og ráð og
þegar ávinningur er veginn og
metinn. Þess vegna skipta kerfi máli
og hvaða hvatar eru byggðir inn í þau
bæði til hvatningar og til aðhalds.
Atvinnurekendur og samtök þeirra
hafa talað opinskátt um það hvernig
lífeyrissjóðunum skuli beitt í þágu
hagsmuna sem þeim hugnist.
Stundum hafa þeir gerst mjög ná-
kvæmir í forskrift sinni, til dæmis
hvernig sjóðirnir skuli nú koma Ice-
landair til bjargar. Þetta hefur þótt
hið besta mál, fullkomlega eðlilegt og
að sjálfsögðu faglegt.
Svo kemur skyndilega hljóð úr
gagnstæðri átt. Forseti ASÍ segir
hrægamma á flugi, hnita yfir bráð
sinni, og formaður VR andmælir því
að lífeyrissjóðir séu látnir þjóna
gömmum: Ekki krónu til Icelandair á
meðan þar er vaðið um á skítugum
skónum, segir verkalýðshreyfingin
og er öllum sýnileg. Ekkert skugga-
tal þar. Ég var í hópi þeirra sem
fögnuðu þessum yfirlýsingum og geri
enn.
Í mínum huga er það nefnilega
ámælisvert að hlaupa til með millj-
arða launafólks til stuðnings fyrir-
tæki þá stundina
sem það treður á
réttindum starfs-
fólks.
En viti menn,
nú rís upp á aftur-
fæturna saman-
súrrað stofnana-
veldi landsins og
fordæmir verka-
lýðsforingja sem
leyfa sér að tala
máli almennings.
Það er sagt vera
óhæfa, nánast glæpsamlegt, að líf-
eyrissjóðirnir hlíti skuggastjórnum
sem segi faglegum sjóðsstjórnum
fyrir verkum. Skuggastjórnirnar svo-
nefndu eru vel að merkja ekki þær
sem raunverulega sitja í skugga því
enginn þekkir haus né sporð á meint-
um fagmönnum, heldur er átt við full-
trúa verkalýðsfélaganna sem kjörnir
voru til að standa vörð um hagsmuni
launafólks og verjast misnotkun á líf-
eyrissjóðunum. Þeirra er að leggja
línur og láta í sér heyra á stundum
sem þessum. Að sjálfsögðu!
Það eru öfugmæli að kenna við
skuggann þau sem koma hreint fram
og vilja kveikja ljósin.
Stjórnir verkalýðsfélaga mega
aldrei láta kúga sig til þagnar og
undirgefni. Þær eiga að hafa andlit
og rödd og kannast við ætlunarverk
sitt. Til þess eru verkalýðsfélögin, að
standa uppi í hárinu á ósvífnu auð-
valdi. Það er hlutverk þeirra og því
ber að fagna þegar þau rækja það
hlutverk og láta hart mæta hörðu.
Auðvald skilur vald auðsins. En
það er ekki sama hver hefur pen-
ingavaldið á hendi og beitir því.
Þegar það þykir vera rangur aðili,
rangir hagsmunir, rangt fólk, þá þarf
að safna liði á fjölmiðlum, í ríkisstjórn
og á Alþingi til þess að setja lög sem
tryggi að „fagmennska“ sé í heiðri
höfð.
Morgunblaðið/RAX
Peningar eiga að
hafa andlit
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
’Forseti ASÍ segir hræ-gamma á flugi, hnitayfir bráð sinni, og formað-ur VR andmælir því að líf-
eyrissjóðir séu látnir þjóna
gömmum: Ekki krónu til
Icelandair á meðan þar er
vaðið um á skítugum skón-
um, segir verkalýðshreyf-
ingin og er öllum sýnileg.
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
Samba
einingasóf i
horntungusófi / 275x233 cm / kr. 387.800
-- margar stærðir og útfærslur í boði
Árni Sæberg