Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Side 18
Í
Síðumúla 35, nánar tiltekið
á hársnyrtistofunni Blondie,
má finna einn vinsælasta, ef
ekki vinsælasta, rakara
landsins. Gunnar Malmquist
hefur varla við að sinna kúnnum,
enda einkar fær með rakvélina á
lofti.
Gunnar, sem skapað hefur vöru-
merkið Vikingblendz í kringum
þjónustu sína, hefur hingað til ver-
ið best þekktur fyrir tilþrif sín á
handboltavellinum enda einkar
baráttuglaður varnarmaður og
lunkinn hornamaður (og nú nýlega
miðjumaður). Liðsmenn andstæð-
inga liðs hans, Aftureldingar,
kvíða oft fyrir því að lenda í
krumlunum á manninum, sem ég
get staðfest að er ekki þægilegt.
Sömu sögu er ekki að segja um
þá sem mæta í klippingu til
Gunnars. Hann nostrar við þá og
sendir út með ferskt „fade“ eins
og það er kallað. Þeir hörðustu
mæta til Gunnars á tveggja vikna
fresti, jafnvel oftar.
Menntunin einhæf
„Þetta byrjar í raun án þess að ég
átti mig á því,“ segir Gunnar um
upphaf rakaraferilsins. „Ég fatta
aldrei að mig langi að verða rakari
en öll mín yngri ár var ég alltaf að
spá í hárið á mér og vildi alltaf
vera með flottustu greiðsluna. Ég
hafði alltaf mikla skoðun á hári.“
Meðfram menntaskólagöngu
sinni í Verzlunarskóla Íslands
starfaði Gunnar á hársnyrti-
stofunni Modus í Smáralind. „Bara
til að hjálpa til; selja vörur, þvo
hár og svona,“ segir Gunnar, sem
vann þar aðra hverja helgi með
náminu. „Eftir Verzló nennti ég
ekki að fara í þetta venjulega. Ég
nennti ekki að fara í viðskipta-
fræði, sálfræði eða íþróttafræði.“
Gunnar útskrifaðist úr Verzl-
unarskólanum 2016 og hóf nám
hjá Hárakademíunni 2017 og út-
skrifaðist þaðan 2018. „Ég ákvað
bara að skella mér í þetta því ég
vissi að ég kynni alveg helling í
þessu fagi. Ég ákvað að fara í
Hárakademíuna og prófa þetta og
varð bara ástfanginn af faginu.“
Gunnar segir hársnyrtimenntun
hér á Íslandi góða. „En ef þú ætl-
ar að gera herraklippingar að sér-
sviði þínu er menntunin mjög tak-
mörkuð. Það er eiginlega bara ein
leið í boði fyrir hársnyrtifólk,“
segir hann og bætir við að um
20% af náminu snúist um herra-
klippingar en 80% að hársnyrtingu
kvenna.
Gunnar hefur því þurft að leita
annarra leiða við að afla sér þekk-
ingar og bæta hæfni sína. „Ég fer
til Bandaríkjanna á námskeið,
kynnist meiri rakarastemningu
þar og sæki mér menntun þaðan.“
Þar að auki er hann að miklu leyti
sjálflærður, þ.e. hann hefur aflað
sér þekkingar á netinu í gegnum
námskeið vinsælla rakara en einn-
ig myndbönd á YouTube.
Háleit markmið
Eins og áður sagði bíða menn í
röðum til að komast að í klippingu
hjá Gunnari. Og það aðeins tveim-
ur árum eftir að hann klárar hár-
snyrtinámið og um ári eftir að
hann fær sveinspróf.
„Fyrir tveimur árum hafði ég
ákveðna hugmynd um hvað mig
langaði að gera. Og miðað við hvað
ég er búinn að gera lítið af því
sem mig langaði að gera finnst
mér ótrúlegt hvað það er búið að
ganga vel.“
Hvað langar þig að gera?
„Ýmislegt. Opna rakarastofur,
ekki bara eina heldur vonandi
fleiri og búa til ákveðna keðju
hérna á Íslandi. Mig langar rosa-
lega mikið að fara í efnabransann.
Búa til gel og aðrar hárvörur. Búa
til íslenskt fyrirbæri sem myndi
lifa. Svo um daginn kom upp hug-
Þakklátur
fyrir
bannið
Gunnar Malmquist er einn vinsælasti rakari
landsins. Hann er einkar vinsæll hjá yngri kyn-
slóðinni og hefur farið út fyrir landsteinana til að
kynna sér það sem er vinsælast í rakaramenning-
unni. Hann er hvergi banginn og stefnir hærra;
vill opna eigin stofu og framleiða hárvörur.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Hér má sjá svokallað „design“
þar sem Gunnar leikur listir
sínar með rakarahnífnum.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2020
LÍFSSTÍLL