Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2020
LÍFSSTÍLL
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi,
rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það
ofnahreinsir, klór og stíflueyðir og þolir mikinn hita.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
mynd um að búa til spjallþætti
sem tengjast klippingum. Ekki
hlaðvarp heldur þætti sem eru
teknir upp og varpað í gegnum In-
stagram og Facebook til að byrja
með. Þá myndi ég fá einhverja
þekkta einstaklinga í klippingu og
spjalla við þá á meðan. Ef það
gengur vel gæti verið spennandi
að fara lengra með það.“
Vorum langt á eftir
Aðalsmerki Gunnars í herraklipp-
ingunum er svokallað „skinfade“.
„Fade“ á við þegar hárið er nokk-
uð stutt ofan á hausnum en verður
svo jafnt og þétt styttra þegar
farið er niður með hliðum og að
aftan. „Skinfade“ er það sama
nema rakað er alveg niður að húð-
inni og ekkert skilið eftir þar sem
hárið er styst.
Fáir hér á landi kunna að gera
„skinfade“ betur en Gunnar
Malmquist. „Þegar ég varð ást-
fanginn af náminu tók ég strax
eftir því að allt sem er að gerast
úti í heimi, og þær klippingar sem
eru vinsælar þar, var engan veg-
inn komið til landsins. Ég var
mjög heppinn að fá áhuga á þessu
á þessum tíma því mér fannst við
vera rosalega langt á eftir á þessu
sviði. Við vorum
enn þá bara í
venjulegu herra-
klippingunum.
„Bara einn [senti-
metri stilltur á
rakvélina] í hlið-
unum og stytta
aðeins að ofan,
kallinn minn.““
Svokölluð
„eyja“ var vinsæl
á þessum tíma.
„Já, bara raka alveg upp að skipt-
ingu,“ segir Gunnar sposkur.
Gunnar lagði áherslu á að læra
það sem var í gangi úti í heimi.
„Ég hugsaði, „Ég ætla að læra
þetta. Ef ég læri þetta og verð
góður í þessu þá fæ ég marga
kúnna,“ og það hefur skilað sér,
heldur betur.“
Annað sem Gunnar gerir mikið
af er svokallað „design“. Þá rakar
Gunnar alls kyns mynstur í hár
kúnnanna.
Færðu útrás fyrir listamanninn
í þér við það?
„Já, ég held það. Sérstaklega
þegar ég fæ að ráða alveg sjálfur
hvað ég geri. Yfirleitt er ég ekki
með neina hugmynd ákveðna fyrir
fram. Ég er kannski með eina línu
sem ég byrja á að setja inn og
vinn svo út frá henni. Mér finnst
það alveg ótrúlega gefandi og það
er smá hugleiðsla fyrir mig. Ég
veit ekki hvernig ég á að útskýra
það en þetta er sérstök tilfinning.
Einhver listamannatilfinning, lík-
lega. Að tjá sig í verki en ekki
orðum.“
Tvær týpur vinsælastar
Þegar ég spyr Gunnar hvað sé
vinsælast í sumar hjá þeim sem til
hans koma nefnir hann tvennt.
„Það er annaðhvort að þú kemur
inn á stofu og þú vilt halda hárinu
nokkuð síðu að ofan og greiðir það
fram. Vilt hafa það „Flónalegt“
eins og sagt er; rétt fyrir ofan
augabrúnir. Færð strípur í topp-
inn og „skinfade“ í hliðarnar.
Hin týpan er
þannig að þú vilt
vera krúnurak-
aður með háum
kambi að ofan,
tveir sentímetrar,
og mjög hátt
„skinfade“ í hlið-
arnar, hærra en
hin týpan.“
Að lokum spyr
ég Gunnar út í
samkomubanns-
tímann, sem var erfiður fyrir
margt hársnyrtifólk, er öllum stof-
um var lokað í nær sex vikur
vegna kórónuveirunnar. „Á þeim
tíma fannst mér þetta mjög erfitt.
Mér fannst þetta svo ósanngjarnt,
allt var á móti manni, maður gat
ekki unnið og þetta var mikið
tekjutap. En svo eftir á að hyggja
er maður bara þakklátur fyrir
þennan tíma. Maður fékk að kynn-
ast því hvernig það er að hafa
ekki vinnu og vera ekki mikil-
vægur á einhverjum ákveðnum
stað. Maður gat tekið eitt skref til
baka og andað.“
Þeir sem vilja fylgjast með
Gunnari geta farið á vikingblendz-
.com eða fundið hann á Instagram
undir nafninu Vikingblendz.
„Ég hafði alltaf
mikla skoðun á
hári,“ segir Gunnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
’Mér fannst þettasvo ósanngjarnt,allt var á móti manni,maður gat ekki unnið
og þetta var mikið
tekjutap. En svo eftir á
að hyggja er maður
bara þakklátur fyrir
þennan tíma.
„Skinfade“ er
aðalsmerki
Gunnars.