Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2020
LÍFSSTÍLL
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Nýja Mallorca línan
komin í sýningasal
Ímyndum okkur að til væri lyf semvinnur gegn kvíða, þunglyndi ogáfallastreituröskun, hjálpar fólki
að vinna bug á fíknivanda og veldur
því jafnvel að heilbrigðu fólki líður
betur, er ánægðara með líf sitt og á í
betri samskiptum við fjölskyldu og
vini. Ímyndum okkur einnig að lyfið
sé ekki ávanabindandi og það þurfi
bara að taka það einu sinni eða tvisv-
ar og þannig geti viðkomandi breytt
lífi sínu til hins betra í langan tíma,
jafnvel að eilífu.
Þetta lyf gæti orðið að veruleika ef
rannsóknum á vitundarvíkkandi efn-
um, stundum kölluð ofskynjunarlyf,
fer sem fram horfir. Rannsóknir á
inntöku heilbrigðs fólks, fólks sem
glímir við kvíða vegna krabbameins-
greiningar og reykingamanna síð-
ustu árin hafa lofað góðu. Þá eru
dæmi um að lyfin hafi hjálpað fólki
sem glímir við áfallastreituröskun,
þunglyndi, Alzheimer’s og lystarstol
og eru rannsóknir á veg komnar á því
sviði.
Lækna alls kyns kvilla
Vitundarvíkkandi efni eiga sér langa
sögu meðal ýmissa þjóðfélagshópa
þar sem inntaka þeirra er órjúfanleg
hefð. Efnin fundu sér leið inn í vest-
ræna menningu þegar bankamaður-
inn Robert Gordon Wasson og kona
hans, Valentina Wasson, kynntust í
Mexíkó notkun ofskynjunarsveppa
sem innihéldu efnið psilocíbin. Árið
1957 skrifaði Wasson um upplifun
sína í bandaríska tímaritið Life.
Nokkru áður, árið 1938, hafði
svissneski vísindamaðurinn Albert
Hofmann búið til efnið LSD í slysni á
tilraunastofu sinni. Hann tók inn efn-
ið fyrir slysni fimm árum síðar og
komst að því að það kallaði fram alls
kyns vitundarvíkkun. 1947 var LSD
markaðssett sem lyf sem átti að
lækna allt frá „geðklofa til glæpa-
hegðunar, „óeðlilegra kynferð-
ishvata“ og alkóhólisma“.
LSD og psilocíbin hafa svipuð áhrif
á heilastarfsemi og náðu nokkurri
fótfestu næstu árin, sérstaklega með-
al ungs fólks. Rannsóknir voru gerð-
ar og var Timothy Leary við Har-
vard-háskóla ötull talsmaður þessara
efna. Hann gerði frægar rannsóknir
með LSD og psilocíbin á 7. áratugn-
um en nokkuð virðist hafa vantað upp
á að þær, og aðrar, uppfylltu kröfur
sem gerðar eru til vísindalegra rann-
sókna.
Vegna þessa og óábyrgar notkunar
almennings á efnunum voru þau
bönnuð í Bandaríkjunum á seinni
hluta 7. áratugarins og af Sameinuðu
þjóðunum árið 1971. Í einhverjum til-
fellum upplifði fólk mikinn kvíða við
inntöku efnanna og fór sér jafnvel að
voða og hjá sumum fór andlegri
heilsu að hraka eftir inntökuna. Í
flestum þessum tilfellum voru að-
stæður þó ekki eins og best var á
kosið; fólk tók inn efnin án þess að
gera sér grein fyrir áhrifum þeirra,
var í aðstæðum sem það þekkti ekki
og blandaði við aðra vímugjafa.
Ótrúlegar niðurstöður
Þar til í upphafi síðasta áratugar voru
allar rannsóknir á vitundarvíkkandi
efnum bannaðar. Átti það við um
bæði LSD og psilocíbin en einnig efni
eins og N,N-Dimethyltryptamín
(DMT) sem finnst í ayahuasca,
drykknum sem hefur verið drukkinn
meðal frumbyggja Suður-Ameríku í
að minnsta kosti þúsund ár. Þá var
meskalín, virka efnið í kaktusnum
peyote sem frumbyggjar Norður-
Ameríku hafa notað í þúsundir ára,
einnig bannað.
Rannsóknir á psilocíbin hófust aft-
ur fyrir tæplega 20 árum og hafa vax-
ið í umfangi ár frá ári síðan. Roland
Griffiths hjá Johns Hopkins-
háskólanum hefur farið fyrir rann-
sóknunum og gaf hann ásamt koll-
egum sínum út vísindagrein úr rann-
sókn þeirra árið 2006. Í rannsókninni
var heilbrigðum einstaklingum gef-
inn stór skammtur af efninu í þægi-
legum aðstæðum með meðferðaraðila
sér við hlið. Ef hræðsla eða kvíði
gerði vart við sig voru meðferðarað-
ilarnir til staðar til að róa fólk niður.
Þátttakendur sögðu frá viðvarandi
góðum áhrifum af inntökunni og
sögðu jafnvel frá töfrandi eða trúar-
legum upplifunum. Helmingur fólks
sagði sex mánuðum eftir inntöku
psilocíbins að upplifunin væri sú
mikilvægasta í lífi þeirra og 80% ein
af fimm mikilvægustu. Þá sögðust
90% ánægðari með líf sitt, höfðu
breytt hegðun sinni og bætt sam-
skipti. Þegar fólk í nánasta umhverfi
þátttakendanna er spurt tekur það
undir breytingarnar.
Í rannsóknum á krabbameins-
sjúklingum sem upplifa þunglyndi
vegna yfirvofandi dauðadags líður
92% þátttakenda mjög vel eftir fimm
vikur og 75% eftir sex mánuði. Það
eru tölur sem sjást ekki í geðlækn-
ingum. Margir þátttakenda sögðust
ekki hræðast dauðann lengur.
Í rannsóknum á reykingafólki
tókst 80% að halda sig frá reykingum
næstu sex mánuði eftir inntöku psilo-
cíbins. Það er margfalt betri árangur
en nokkurt annað sem notað er gegn
nikótínfíkn.
Öruggasta vímuefnið
Þau sem taka inn psilocíbin segjast
finna fyrir meiri tengingu við heim-
inn allan. Finna fyrir einingu og að
allt sé tengt; dýr, plöntur, hlutir.
Fólk finnur fyrir auknum jákvæðum
tilfinningum eins og ást, kærleika og
gleði. Þá segja margir að heimurinn
sem við skynjum undir áhrifum efnis-
ins sé hinn sanni raunveruleiki, ekki
sá sem fólk skynjar á hverjum degi.
Rannsóknir benda til þess að psilo-
cíbin og önnur vitundarvíkkandi efni
séu ekki ávanabindandi. Þá er eitrun-
in sem þau valda nánast engin og inn-
byrða þarf gífurlegt magn af efninu
til að það sé hættulegt, þ.e.a.s. líkam-
lega.
Þótt til séu sögur af fólki sem fer
sér að voða undir áhrifum efnanna,
stökkvi til að mynda fram af húsþaki,
virðist slíkt sjaldgæft. Rannsókn frá
árinu 2017 um heimsóknir á bráða-
móttöku í kjölfar vímuefnanotkunar
sýndi að aðeins 0,2% notenda of-
skynjunarsveppa enduðu þar, lægsta
hlutfall allra vímuefna.
Bera þarf virðingu
fyrir efnunum
Hætturnar eru þó að sjálfsögðu til
staðar. Þeim sem hafa háan blóð-
þrýsting er ráðlagt að nota ekki efn-
in. Sömu sögu má segja um þá sem
glíma við geðræna vanda á borð við
geðklofa. Til eru sögur af fólki sem
þróað hefur með sér geðklofa eða
upplifað geðrof eftir notkun psilocíb-
ins eða LSD. Frásögn Braga Páls
Sigurðarsonar hjá Stundinni er fróð-
leg í því samhengi. Rannsóknir hafa
þó ekki sýnt fram á samband á milli
notkunar efnanna og geðklofa.
Aðstæður við notkun og ástæður
notkunar vitundarvíkkandi efna virð-
ast skipta sköpum þegar áhrif þeirra
eru skoðuð. Þegar áhrifin eru rann-
sökuð í lækningarskyni er haldið vel
utan um þátttakendur og meðferð
fyrir og eftir inntöku efnanna er talin
mikilvæg. „Þetta er ekki taktu-tvær-
og-hringdu-í-mig-í-fyrramálið með-
ferð,“ sagði Albert Garcia-Romeu,
vísindamaður við Johns Hopkins, við
Men’s Journal.
Slæmar upplifanir þar sem ofsa-
hræðsla og ranghugmyndir gera vart
við sig eru því afar sjaldgæfar þegar
aðstæðum er stýrt á réttan hátt.
Þegar það er ekki gert og efnin eru
tekin inn í bland við önnur efni og í
aðstæðum sem viðkomandi upplifir
sig ekki öruggan í getur niðurstaðan
verið allt önnur og í raun um allt ann-
an hlut að ræða. Bera þarf því virð-
ingu fyrir efnunum.
Spennandi verður að sjá hvað kem-
ur út úr rannsóknum á þeim sem
þjást af áfallastreituröskun, Alzheim-
er’s eða lystarstoli og hvort einn dag-
inn verði meðferð með vitundarvíkk-
andi efnum eins eðlileg og hver
önnur.
Tölur sem
sjást ekki
Vitundarvíkkandi efni hafa í gegnum tíðina mætt
mikilli mótspyrnu en nú hafa rannsóknir sýnt
möguleika þeirra til lækninga á sjúkdómum eins
og þunglyndi, áfallastreituröskun og fíknivanda.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Wikimedia
Meðferðaraðilar fylgja fólki í gegnum upplifun sína af psilocíbin við rannsóknir
á efninu. Þá hefur fólk bundið fyrir augun og hlustar á róandi tónlist.
Rannsóknir á psilocíbin,
virka efninu í ofskynj-
unarsveppum, lofa afar góðu
og getur efnið t.d. hjálpað
fólki að hætta að reykja.