Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Síða 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Síða 23
Árlega má rekja 1600–1800 beinbrotá Íslandi til beinþynningar enætla má að önnur hver kona um fimmtugt og fimmti hver karl á Íslandi, megi eiga von á broti síðar á lífsleiðinni. Beinþynning e. Osteoporosis er sjúkdómur sem ber að taka alvarlega en beinbrot verða þá við lítið álag og vegna áverka sem nægja að öllu jöfnu ekki til að brjóta heilbrigð bein. Hvað er beinþéttni? Beinþéttni segir til um hversu sterk beinin okkar eru. Þegar beinvefurinn, sem er innri hluti beinanna, fer að gisna er talað um að beinþéttni minnki og líkur á beinbrotum vegna álags eða áverka eykst. Fyrstu tvo áratugi ævinnar eru beinin að þéttast og þá, eins og alltaf, skiptir næringin öllu máli. Við verðum bæði að fá nægilegt kalk og nægilegt magn af D vítamíni til byggja upp sterk bein. Upp úr 30 ára aldri fer að draga úr beinþéttninni og þá getur skipt máli hversu góð uppbyggingin hefur verið. Kalk og D vítamín minnka líkur á beinbrotum vegna beinþynningar Fjöldi rannsókna gegnum tíðina hafa sýnt fram á að dagleg inntaka á kalki og D vítamíni getur dregið verulega úr líkum á beinbrotum vegna beinþynningar. Nýleg rannsókn leiddi í ljós að líkur á „beinþynningar-beinbrotum“ minnkaði um 15% prósent ef fólk tók inn 1.000 mg af kalki og 15 mcg (600 i.e.) af D vítamíni daglega. Inntaka á þessum næringarefnum skiptir því máli alveg frá fæðingu. Áhættuþættir Um 60-70% af beinþéttni ræðst af erfðaþáttum. Hversu þétt beinin eru á yngri árum ræður líka miklu um hvenær þau ná brotastigi. Beinþynning hefst oft hjá konum við tíðahvörf en aðrir þættir sem við getum ekki haft áhrif á eru aldur, kyn og kynstofn. Við getum þó eitthvað gert í málunum því það eru nokkrir þættir sem hægt er að hafa áhrif á: • Of grannt holdafar (vannæring) • Kalk- og/eða D-vítamínskortur • Reykingar • Hreyfingarleysi • Óhollir lífshættir Hreyfing styrkir beinin Beinvernd er mikilvæg alla ævi hvort sem einstaklingur hefur beinþynningu eða ekki. Nægileg kalk- og D-vítamín neysla, ásamt reglulegum líkamsæfingum er nauðsynleg til að fyrirbyggja beinþynningu. Hvað varðar hreyfinguna þá eigum við að hreyfa okkur alla daga og það þarf ekki að kosta neitt. Til að styrkja beinin þá eru þungaberandi æfingar bestar en þá er átt við æfingar þar sem við berum okkar eigin líkamsþyngd gegn þyngdaraflinu (göngur og skokk). Einnig er mjög gott að lyfta lóðum. Osteo Advance - fullkomin beinablanda Natures Aid hefur nú framleitt blöndu af vítamínum og steinefnum sem eru nauðsynleg til að viðhalda heilbrigðum beinum og tönnum. Kalk og magnesíum ásamt D-vítamíni, K2 vítamíni og sinki byggir upp og hjálpar til við að viðhalda heilbrigðum beinum. K-vítamín bindir kalk í beinum Næringarefnin, bæði vítamín og steinefni vinna saman í líkamanum og bæta þau hvort annað upp við að sinna þeirri vinnu sem þau eiga að gera. 99% af kalkinu í líkamanum er í beinunum og til þess að upptaka kalksins eigi sér stað er D-vítamín nauðsynlegt. Í einföldu máli er það D-vítamín sem sér um að taka kalkið úr blóðinu og K-vítamín (MenaQ7) sér svo um að kalkið bindist í beinunum. Sölustaðir: Heilsuhillur verslana og apótek Beinvernd mikilvæg alla ævi „Beinvernd er mikilvæg alla ævi hvort sem einstaklingur hefur beinþynningu eða ekki. Nægileg kalk- og D-vítamín neysla ásamt reglulegum líkamsæfingum er nauðsynleg til að fyrirbyggja beinþynningu“ 3ja mánað a skamm tur Sykurlaustog ángerviefna Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir,og flestum stórmörkuðum. Munum eftir D-vítamíninu ALLA DAGAD-vítamín fyrir ónæmiskerfið Vaxandi fjöldi klínískra rannsókna sannar að D-vítamín er ósungna hetjan sem við öll þurfum til að halda sýkingu í skefjum. DLÚX vítamínmunnúði tryggir hámarksupptöku Fullkomin blanda fyrir beinin Eðlileg beinvefs grind Bein með beinþynnningu Beinþynning 60 ára 70 ára40 ára

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.