Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Blaðsíða 23
Árlega má rekja 1600–1800 beinbrotá Íslandi til beinþynningar enætla má að önnur hver kona um
fimmtugt og fimmti hver karl á Íslandi,
megi eiga von á broti síðar á lífsleiðinni.
Beinþynning e. Osteoporosis er sjúkdómur
sem ber að taka alvarlega en beinbrot verða
þá við lítið álag og vegna áverka sem nægja
að öllu jöfnu ekki til að brjóta heilbrigð
bein.
Hvað er beinþéttni?
Beinþéttni segir til um hversu sterk beinin
okkar eru. Þegar beinvefurinn, sem er
innri hluti beinanna, fer að gisna er
talað um að beinþéttni minnki og líkur á
beinbrotum vegna álags eða áverka eykst.
Fyrstu tvo áratugi ævinnar eru beinin
að þéttast og þá, eins og alltaf, skiptir
næringin öllu máli. Við verðum bæði að
fá nægilegt kalk og nægilegt magn af D
vítamíni til byggja upp sterk bein. Upp úr
30 ára aldri fer að draga úr beinþéttninni
og þá getur skipt máli hversu góð
uppbyggingin hefur verið.
Kalk og D vítamín minnka
líkur á beinbrotum vegna
beinþynningar
Fjöldi rannsókna gegnum tíðina
hafa sýnt fram á að dagleg inntaka
á kalki og D vítamíni getur dregið
verulega úr líkum á beinbrotum
vegna beinþynningar. Nýleg
rannsókn leiddi í ljós að líkur
á „beinþynningar-beinbrotum“
minnkaði um 15% prósent ef fólk
tók inn 1.000 mg af kalki og 15 mcg
(600 i.e.) af D vítamíni daglega.
Inntaka á þessum næringarefnum
skiptir því máli alveg frá fæðingu.
Áhættuþættir
Um 60-70% af beinþéttni ræðst af
erfðaþáttum. Hversu þétt beinin
eru á yngri árum ræður líka miklu
um hvenær þau ná brotastigi. Beinþynning
hefst oft hjá konum við tíðahvörf en aðrir
þættir sem við getum ekki haft áhrif á eru
aldur, kyn og kynstofn.
Við getum þó eitthvað gert í málunum því
það eru nokkrir þættir sem hægt er að hafa
áhrif á:
• Of grannt holdafar (vannæring)
• Kalk- og/eða D-vítamínskortur
• Reykingar
• Hreyfingarleysi
• Óhollir lífshættir
Hreyfing styrkir beinin
Beinvernd er mikilvæg alla ævi hvort sem
einstaklingur hefur beinþynningu eða ekki.
Nægileg kalk- og D-vítamín neysla, ásamt
reglulegum líkamsæfingum er nauðsynleg
til að fyrirbyggja beinþynningu. Hvað
varðar hreyfinguna þá eigum við að
hreyfa okkur alla daga og það þarf ekki
að kosta neitt. Til að styrkja beinin þá eru
þungaberandi æfingar bestar en þá er átt
við æfingar þar sem við berum okkar eigin
líkamsþyngd gegn þyngdaraflinu (göngur
og skokk). Einnig er mjög gott að lyfta
lóðum.
Osteo Advance - fullkomin
beinablanda
Natures Aid hefur nú framleitt blöndu
af vítamínum og steinefnum sem eru
nauðsynleg til að viðhalda heilbrigðum
beinum og tönnum. Kalk og magnesíum
ásamt D-vítamíni, K2 vítamíni og sinki
byggir upp og hjálpar til við að viðhalda
heilbrigðum beinum.
K-vítamín bindir kalk í
beinum
Næringarefnin, bæði vítamín
og steinefni vinna saman
í líkamanum og bæta þau
hvort annað upp við að sinna
þeirri vinnu sem þau eiga að gera. 99% af
kalkinu í líkamanum er í beinunum og til
þess að upptaka kalksins eigi sér stað er
D-vítamín nauðsynlegt. Í einföldu máli er
það D-vítamín sem sér um að taka kalkið
úr blóðinu og K-vítamín (MenaQ7) sér svo
um að kalkið bindist í beinunum.
Sölustaðir: Heilsuhillur verslana og apótek
Beinvernd
mikilvæg alla ævi
„Beinvernd er mikilvæg alla ævi
hvort sem einstaklingur hefur
beinþynningu eða ekki. Nægileg
kalk- og D-vítamín neysla ásamt
reglulegum líkamsæfingum er
nauðsynleg til að fyrirbyggja
beinþynningu“
3ja
mánað
a
skamm
tur
Sykurlaustog ángerviefna
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir,og flestum stórmörkuðum.
Munum eftir
D-vítamíninu
ALLA DAGAD-vítamín
fyrir ónæmiskerfið
Vaxandi fjöldi klínískra rannsókna sannar að
D-vítamín er ósungna hetjan sem við öll
þurfum til að halda sýkingu í skefjum.
DLÚX vítamínmunnúði tryggir hámarksupptöku
Fullkomin
blanda fyrir
beinin
Eðlileg
beinvefs
grind
Bein með
beinþynnningu
Beinþynning
60 ára 70 ára40 ára