Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2020
LÍFSSTÍLL
Arsenal hefur oftast allra fé-
laga orðið enskur bikarmeist-
ari í knattspyrnu, þrettán sinn-
um, þar af sex sinnum á
þessari öld. Chelsea hefur líka
átt góðu gengi að fagna á
þessu elsta sparkmóti heims;
unnið átta sinnum, þar af sex
sinnum á þessari öld. Það má
því með sönnu tala um tvö
heitustu bikarlið samtímans.
Liðin hafa í tvígang áður
leikið til úrslita og Arsenal
vann í bæði skiptin. Vorið 2002
sigraði Arsenal Eið Smára
Guðjohnsen og félaga 2:0, með
mörkum frá Ray Parlour og
Freddie Ljungberg, og
vorið 2017 svo 2:1. Alex-
is Sánchez kom Arsenal
yfir en Diego Costa jafn-
aði fyrir Chelsea. Það
var svo Aaron Ramsey
sem gerði sigurmark
Arsenal.
Chelsea kom á hinn
bóginn fram
hefndum í úr-
slitaleik Evr-
ópudeild-
arinnar í
fyrra; gjörsigraði þá Arsenal,
4:1. Eden Hazard skoraði tvö
mörk og þeir Olivier Giroud
og Pedro sitt markið hvor.
Alex Iwobi svaraði fyrir Arsen-
al.
Arsenal hefur unnið sex síð-
ustu bikarúrslitaleiki sem fé-
lagið hefur tekið þátt í; tapaði
síðast fyrir Liverpool 2001.
Töpin tvö gegn Arsenal eru
þau einu hjá Chelsea í bikarúr-
slitaleikjum á öldinni en liðið
vann bikarinn seinast 2018.
Í ljósi velgengni félaganna
tveggja kemur ekki á
óvart að sigursælasti
leikmaðurinn í
sögu mótsins sé
Ashley Cole, sem
varð þrisvar bik-
armeistari með
Arsenal og fjórum
sinnum með
Chelsea. Sigursælasti
stjórinn er Arsène
Wenger sem
vann mótið
sjö sinnum
með Arsen-
al.
SAMTALS TÓLF BIKARTITLAR FRÁ ÁRINU 2000
Funheit á öldinni
Ashley Cole,
sjö titlar.
Óhætt er að fullyrða að slátt-urinn á Lundúnastórveld-unum Chelsea og Arsenal
hafi oft verið meiri en á leiktíðinni
sem lýkur nú um helgina. Fyrr-
nefnda félagið getur þó mun betur
við unað; tryggði sér fjórða sætið í
úrvalsdeildinni og þar með rétt til
þátttöku í Meistaradeild Evrópu
næsta vetur. Í huga flestra fylgjenda
þeirra bláklæddu er sá árangur við-
unandi; félagið er að koma úr kaup-
banni og tefldi fram ungum og
reynslulitlum knattspyrnustjóra á
tímabilinu, Frank Lampard, sem
aftur lagði traust sitt á marga unga
leikmenn, svo sem Mason Mount,
Tammy Abraham, Christian Pulisic
og Reece James, sem skilað hafa
góðu verki og lofa ljómandi góðu til
lengri tíma litið.
Gleymum því heldur ekki að
Chelsea er ennþá með í Meist-
aradeildinni í ár, að nafninu til.
Arsenal hafnaði á hinn bóginn á
framandi slóðum í deildinni, áttunda
sæti, sem er lakasti árangur liðsins í
aldarfjórðung. Á ýmsu gekk á leik-
tíðinni en flestir eru þó sammála um
að liðið sé heldur að braggast undir
stjórn hins 38 ára gamla Spánverja
Mikels Arteta sem leysti hinn átta-
villta landa sinn Unai Emery af rétt
fyrir jól. Arsenal varðist til dæmis af
mikilli fimi í undanúrslitunum gegn
Manchester City og fór vel með fær-
in sín. Öðruvísi mér áður brá.
Chelsea var ekki síður sannfær-
andi í undanúrslitunum gegn Man-
chester United, sem verið hefur í
vargaformi á þessari óvæntu sum-
arvertíð á Englandi. Bæði lið ættu
fyrir vikið að ríða hnarreist inn á
Wembley-leikvanginn í Lundúnum.
Fyrir utan bikarinn sjálfan er þó
meira í húfi fyrir Arsenal; tapi liðið
leiknum verður það utan Evrópu-
móta í fyrsta sinn frá 1995-96.
Hljóp upp allan völlinn
Leikir liðanna í úrvalsdeildinni í vet-
ur voru báðir fjörugir; Chelsea vann
2:1 á Emirates-leikvanginum í lok
desember. Pierre-Emerick Auba-
meyang kom Arsenal yfir snemma
leiks en Jorginho og Tammy Abra-
ham svöruðu með tveimur mörkum
undir lokin.
Tæpum mánuði síðar skildu liðin
jöfn á Stamford Bridge. Jorginho og
César Azpilicueta skoruðu fyrir
heimamenn en Gabriel Martinelli og
Héctor Bellerín fyrir Arsenal. Mark
þess fyrrnefnda var eftirminnilegt
enda hljóp brasilíski tófuspreng-
urinn óáreittur enda á milli áður en
hann renndi knettinum fram hjá
Kepa Arrizabalaga. Martinelli gerir
Chelsea ekki skráveifu í dag enda
mun hann ekki leika á ný fyrr en um
áramótin vegna hnémeiðsla sem
hann varð fyrir á æfingu í júní.
Í staðinn horfir Arsenal fyrst og
fremst til síns markahæsta manns,
fyrirliðans Aubameyangs, sem
stundum hefur fengið ofanígjöf fyrir
að skora ekki nógu grimmt gegn
bestu liðunum. Kappinn svaraði
þeirri gagnrýni með báðum mörk-
unum í 2:0-sigrinum á City í undan-
úrslitunum og gæti ugglaust hugsað
sér að komast aftur á blað í dag.
Aubameyang á aðeins eitt ár eftir af
samningi sínum við Arsenal og nái
menn ekki saman fljótlega gæti Ars-
enal neyðst til að selja Gabon-
manninn í sumar.
Alexandre Lacazette verður seint
sagður hafa raðað inn mörkum í vet-
ur en hann hefur ítrekað sýnt að
hann er maður stóru leikjanna, svo
sem með mörkum gegn Tottenham
Hotspur og Liverpool í sumar, þann-
ig að Chelsea-vörnin þarf jafnframt
að hafa góðar gætur á honum.
Hinum megin hefur hinn 33 ára
gamli Frakki Olivier Giroud verið
funheitur eftir veiruhlé en hann vék
sem kunnugt er fyrir Aubameyang
hjá Arsenal fyrir hálfu þriðja ári.
Honum þætti án efa ekki amalegt að
ráða úrslitum í dag.
Með honum í sókninni verða lík-
lega téðir Mount og Pulisic og
brenna eflaust í skinninu að gera
sínum gamla félaga David Luiz og
samherjum hans í mistækri Arsenal-
vörninni grikk.
Bæði lið hafa að mestu verið að
stilla upp þremur miðvörðum að
undanförnu sem gefur bakvörðunum
tækifæri til að blanda sér meira í
sóknarleikinn. Inni á miðjunni munu
svo Mateo Kovacić og Jorginho
kljást við Granit Xhaka og Dani Ce-
ballos. Mikið veltur á því hvernig
þeirri baráttu vindur fram.
Þess utan segir eitthvað manni að
mistakastuðullinn verði ekkert sér-
staklega hár; glappaskotið er ekki
ósennilegra en hvað annað skot til að
ráða úrslitum á Wembley.
Hve glöð er
vor æska
Arsenal og Chelsea leika til úrslita um enska bik-
arinn í dag, laugardag, á galtómum Wembley-
leikvanginum í Lundúnum. Stjórar beggja liða
eru ungir að árum og stefna á sinn fyrsta titil.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Leikmenn Chelsea fagna marki Oliviers Girouds gegn Úlfunum um liðna helgi. Frakkinn hefur verið sjóðheitur eftir að
rykið var dustað af honum er líða tók á tímabilið. Hann lék áður með Arsenal og vann bikarinn þar þrisvar.
AFP
Pierre-Emerick Aubameyang, Alexandre Lacazette og félagar í Arsenal kætast
yfir marki í óvæntum sigri á Manchester City í undanúrslitum bikarsins.
AFP
Á palli:
VIÐAR Smágrár
Opið : 8-18 v i r ka daga, 10-14 laugardaga • S ími 588 8000 • s l ippfe lag id. i s
Á grindverki:
VIÐAR Húmgrár
Viðarvörn