Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2020
LESBÓK
HREINLÆTI Lzzy Hale, söngkona málmbandsins Hale-
storm, ber nýju baðsápunni hans Rachel Bolans, bassa-
leikara Íslandsvinanna í Skid Row, afar vel söguna á
samfélagsmiðlinum Tumblr. Hún kveðst vera með afar
viðkvæma húð og hafi verið steinhætt að nota baðsápu
en eftir að Bolan (sem vel að merkja er karlmaður) sendi
henni sýnishorn af nýju línunni sinni, Skítugu rokksáp-
unni, sé hún alsæl. „Húðin þornaði ekki, engin útbrot og
enginn kláði,“ skrifar Hale. „Eftir viku elskaði ég hvað
sápan var að gera fyrir húðina mína og gerðist djörf og
notaði hana sem sjampó líka (hvers vegna ekki?). Ég
komst að þeirri ánægjulegu niðurstöðu að hárið á mér
var hreint og viðráðanlegt á eftir. Náttúrulegu olíurnar
í sápunni virkuðu sumsé sem létt hárnæring líka!“
Löðrandi fersk og Hale
Lzzy Hale með
tandurhreint hár.
AFP
PÚSL Rokkelskir þurfa að hafa ofan af fyrir sér
eins og aðrir í samgöngu- og útgöngubönnum
og fjöldatakmörkunum þeim sem gilda vítt og
breitt um heiminn. Fyrir vikið mun bandaríska
fyrirtækið Zee Productions í september setja á
markað púsluspil með ellefu sígildum plötu-
umslögum. Það eru Highway to Hell með AC/
DC, Let’s Dance með David Bowie, Goodbye
Yellow Brick Road og Captain Fantastic með El-
ton John, The Number of the Beast með Iron
Maiden, Destroyer með Kiss, Master of Puppets
með Metallica, Nevermind með Nirvana, News
of the World og Queen II með Queen og It’s Only
Rock ’n Roll með The Rolling Stones.
Púsluspil með frægum plötuumslögum
1.000 bútar eru í hverju
púsluspili. Rokk og ról.
Ozzy Osbourne er orðinn 71 árs.
Ný heimildar-
mynd um Ozzy
VIRÐING Bandaríska sjónvarps-
stöðin A&E Network mun frum-
sýna nýja heimildarmynd um ævi
og störf Ozzys Osbournes 7. sept-
ember næstkomandi og heyrir hún
til ævisöguseríu stöðvarinnar. Ævi-
saga: Níu líf Ozzys Osbournes hefur
að geyma ný viðtöl við málmgoðið
sjálft, fjölskyldu þess, vini og sam-
starfsmenn, svo sem Rick Rubin,
Marilyn Manson og Post Malone. Þá
er þar að finna mikið myndefni frá
löngum og litríkum ferli kappans
sem ólst upp við þröngan kost og
sat um tíma bak við lás og slá áður
en hann sló rækilega í gegn, fyrst
með málmbandinu Black Sabbath
og síðan sem sjálfstæður listamað-
ur og sjónvarpsstjarna.
Sú var tíðin að sjónvarp á Ís-landi fór í sumarfrí í júlí.Sama hvað tautaði og raulaði,
slagbrandi var brugðið fyrir dyr
sjónvarpshússins á Laugaveginum
og starfsliðið fylkti liði út í sumarið
og sólina (í minningunni var alltaf
sól á sumrin í gamla daga). Lét ekki
einu sinni viðburði eins og heims-
meistaramótið í knattspyrnu á Spáni
1982 trufla þau áform enda þótt
beinar útsendingar frá því merka
móti væru loks hafnar hér í fásinn-
inu örfáum dögum fyrr. Þá fauk í
þessa þjóð og Ríkissjónvarpið var
kallað hrímþurs, risaeðla, himpi-
gimpi og þaðan af verri nöfnum.
Ekki var hægt að leita á náðir
efnisveitna eins og Netflix á þessum
tíma né heldur annarra íslenskra
sjónvarpsstöðva; Stöð 2 var ekki sett
á laggirnar fyrr en 1986. Netið var
líka fjarlæg og framúrstefnuleg hug-
mynd, þannig að gönguferð, garð-
rækt, góð bók eða róður á Þingvalla-
vatni urðu að duga, að því gefnu
auðvitað að menn hefðu aðgang að
árabáti.
Ég þekki ekki rannsóknir þar að
lútandi en get vel ímyndað mér að
þessi gamli siður Ríkissjónvarpsins,
að loka sjoppunni í júlí, sitji í hinum
eldri kynslóðum landsins sem horfi
fyrir vikið minna á sjónvarp í þeim
mánuði en öðrum. Þá er veður alla
jafna best hér við nyrstu voga, alla
vega skást, þannig að sitthvað annað
togar í fólk en bara gamli góði imb-
inn, eins og móðurbróðir minn kallar
gjarnan sjónvarpstækið; eða gerði
alltént áður en flatskjáir komu fram
á sjónarsviðið. Veit ekki hvort þeir
eru nógu imbalegir til að standa
undir því ágæta nafni.
Það skiptir hinar yngri kynslóðir
vitaskuld ekki nokkru máli hvort
mánuðurinn ber hið fróma nafn júlí
eða eitthvað allt annað; þeim gæti
ekki staðið meira á sama um línu-
lega dagskrá í sjónvarpi.
Sjálfur er ég gamaldags að því
leyti að mér finnst alltaf skemmti-
legra að horfa á sjónvarp í línulegri
dagskrá og bíða í viku (jafnvel tvær
vikur ef eldhúsdagsumræður fara
fram í millitíðinni) eftir þættinum
mínum. Ég hef alveg hámhorft á
seríur en munurinn er sá að manni
hættir til að gleyma þeim miklu fyrr,
sem í sumum tilvikum er auðvitað
ágætt. Maður meltir seríur miklu
betur og hefur betra tækifæri til að
velta vöngum yfir þeim séu þær í
þrjá til fjóra mánuði inni í lífi manns.
Þegar þú færð þetta blað í hendur,
lesandi góður, er júlímánuður liðinn.
Ég get svo svarið það. Þess vegna er
ekki úr vegi að líta yfir farinn veg og
skoða hvað stóð upp úr í dagskrá
Ríkissjónvarpsins undanfarinn 31
dag og hverju við hefðum misst af
hefði stofnunin farið í sumarfrí.
Til að draga mann inn úr góða
veðrinu um hásumar þarf sjónvarps-
dagskráin að vera býsna sérstök, um
það getum við flest verið sammála.
Þetta vita vanir menn í dagskrár-
stjórn og hafa fyrir vikið tilhneig-
Vantar bara
súrlegið bað-
stofudrama
Júlí er oftar en ekki látinn mæta afgangi í sjón-
varpinu enda margt annað sem glepur gumann
um hásumar. Að þessu sinni var þó merkilega
margt forvitnilegt á dagskrá í Ríkissjónvarpinu.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Júlíus Brjánsson fór á kostum í Föstum liðum – "eins og venjulega".
RÚV
TAKK LJÓSAVINIR
Nafn: Þröstur Ólafsson
Hvernig myndir þú lýsa
tilfinningunni þegar þú
mætir í Ljósið: Fyrst var
ekki laust við kvíða, en
eftir að hafa kynnst
starfsfólki Ljóssins fór
lundin að léttast hjá
kallinum.
Fyrir það erum við ævinlega þakklát.
Þið veitið krabbameinsgreindum ómetanlegan stuðning ljosid.is