Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Side 29
ingu til að geyma holdmestu bitana
til haustsins og jafnvel vetrarins.
Það var þó sitthvað að staldra við
á RÚV að þessu sinni í júlí. Má þar
nefna Tónaflóð um landið, tónleika-
dagskrá í beinni útsendingu á föstu-
dagskvöldum vítt og breitt um land-
ið, sem lauk í Aratungu í gærkvöldi.
Ljómandi góð hugmynd og prýði-
lega heppnað gigg, þegar allt er
saman tekið. Byrjaði að vísu aðeins
rólega en náði sér fljótt á strik með
góðum gestum í hverjum landshluta
fyrir sig. Boðið var upp á alls kyns
innlendar lagasmíðar sem maður
hafði sumar hverjar ekki heyrt ár-
um, jafnvel áratugum saman.
Sjónvarp Símans stal senunni með
heimatónleikum Helga Björns og
Reiðmanna vindanna í samgöngu-
banninu í vor og lífsspursmál fyrir
RÚV að svara því snilldarbragði.
Það heppnaðist ágætlega enda þótt
ég sé ekki í vafa um að þjóðin verði
himinlifandi að fá Helga sinn aftur
um helgina. Svokallaðan Versl-
unarmanna-Helga. Ekki er öll vit-
leysan eins! Sjálfur hef ég ekki misst
af mínútu af þeirri veislu; held bara í
mér ef á þarf að halda.
Sjötta á EM unglinga 2013
Kóvíður nítjándi, sá armi böðull,
sópaði sem kunnugt er bæði Evr-
ópumótinu í knattspyrnu og sjálfum
Ólympíuleikunum út af borðinu í
sumar og fyrir vikið var vel til fundið
hjá RÚV að leggjast í upprifjun á
gömlum leikum undir styrkri stjórn
Kristjönu Arnarsdóttur, Þorkels
Gunnars Sigurbjörnssonar og eins
besta manns sem ratað hefur í sjón-
varp í Íslandssögunni, Sigurbjörns
Árna Arngrímssonar. Yrði hann
fenginn til að lýsa Íslandsmeist-
aramótinu í prjóni á Hvammstanga í
beinni yrði ég límdur við skjáinn,
með popp í annarri og kók í hinni.
Sigurbjörn ber með sér einhverja
óræða náttúrulega gleði sem fáum
er gefin, fyrir utan auðvitað yf-
irgripsmikla þekkingu á frjálsum og
ófrjálsum íþróttum. Ég skek mér
iðulega í sófanum þegar hann segir
um keppanda sem enginn hefur
heyrt getið: „Hún varð sjötta á Evr-
ópumeistaramóti unglinga innan-
húss 2013.“
ÓL-þættirnir hafa verið prýðilegir
en heldur hratt var þó farið yfir sögu
framan af síðustu öld og fyrir vikið
ekki tæpt á neinu nema helstu afrek-
um sem margir þekkja. Mikið var
gert úr afrekum Finna í millivega-
lengdahlaupum og það réttilega;
góðir menn Finnar. En unnu Paavo
Johannes Nurmi og félagar ekki
bara öll þessi hlaup á fyrri hluta síð-
ustu aldar fyrir þær sakir að engir
Afríkumenn voru meðal keppenda?
Spyr sá sem ekki veit.
Afi með búningablæti
Þriðja þáttaröðin sem fangaði at-
hygli mína í júlí var hin 35 ára gamla
Fastir liðir – "eins og venjulega"
(með svona útlenskum gæsalöpp-
um). Grín úr smiðju Eddu Björg-
vins, Gísla Rúnars og félaga sem
kom satt best að segja skemmtilega
á óvart. Grín eldist misvel en Fastir
liðir héldu manni alveg; þökk sé öðru
fremur stjörnuleik Júlíusar Brjáns-
sonar í hlutverki hins taugaveiklaða
og „föðursjúka“ Indriða Hlöðvers-
sonar, heimavinnandi húsföður í
heimi sem snúið hefur verið við. Af
einhverjum ástæðum voru karl-
hlutverkin mun bitastæðari í þátt-
unum og Jóhann Sigurðarson og
Arnar Jónsson voru líka fantagóðir,
að ekki sé talað um meistara Bessa
Bjarnason í hlutverki afa með bún-
ingablæti. Þvílíkur snillingur í
ísmeygilegum gamanleik, Bessi.
Blessuð sé minning hans!
Ég hef líka séð eitt og eitt innslag
af Sumarlandanum. Gísli á gúmmí-
skónum er auðvitað þjóðargersemi
og svo hefur Hafsteinn Vilhelmsson
komið inn af krafti. Vonast til að sjá
meira af honum í sjónvarpinu á kom-
andi árum og misserum.
Þar með er það nánast upptalið,
fyrir utan Löwander-fjölskylduna
sem eru þokkalegir þættir, þótt
framvindan sé heldur hæg fyrir
málmhaus eins og mig. Og svo auð-
vitað fréttir og veður, auglýsingar
og dagskrá. Ég hef að vísu einnig
haft annað augað á spennuþættinum
Griðastað á fimmtudagskvöldum en
veit ekki enn þá hvað mér á að finn-
ast um hann. Ég næ engu sambandi
við séra Brown né heldur bún-
ingadrama frá fyrri öldum, hvort
sem þau eru bresk eða frönsk. Hve-
nær ætlar RÚV annars að henda í
alvöru súrlegið baðstofudrama?
Tónaflóð um landið var
prýðilegasta skemmtun.
RÚV
2.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
LYGAR „Mér líður ekki eins og lyg-
ara lengur. Ég get einfaldlega ekki
logið lengur og mun ekki gera það.
Hef ekki tíma til þess,“ segir kvik-
myndaleikkonan, söngkonan og rit-
höfundurinn Bella Thorne í ein-
lægu samtali við breska blaðið The
Independent. Hún varð fyrirsæta
barnung og sló síðar í gegn í Disn-
ey-kvikmyndum. Í dag er hún um-
deild, meðal annars fyrir að koma
að erótískri kvíkmyndagerð. „Ég
laug allt mitt líf, vegna þess að fólk
skildi mig ekki.“
Getur ekki logið lengur
Bella Thorne er lífsreynd, 22 ára.
AFP
BÓKSALA 22.-28. JÚLÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Vegahandbókin 2020 Steindór Steindórsson o.fl.
2 Sumar í París Sarah Morgan
3 Þerapistinn Helene Flood
4 Þorpið Camilla Sten
5 Mitt ófullkomna líf Sophie Kinsella
6 Sjáðu mig falla Mons Kallentoft
7
Handbók fyrir ofurhetjur 5
– horfin
Elias/Agnes Vahlund
8 Tíbrá Ármann Jakobsson
9 Kortabók Örn Sigurðsson ritstjóri
10 Hálft hjarta Sofia Lundberg
1 Tregasteinn Arnaldur Indriðason
2 Urðarköttur Ármann Jakobsson
3 Ungfrú Ísland Auður Ava Ólafsdóttir
4 Aðventa Stefán Máni
5
Það sem ég tala um þegar
ég tala um hlaup
Haruki Murakami
6 Sólarhringl Huldar Breiðfjörð
7 Lifandilífslækur Bergsveinn Birgisson
8 Blóðug jörð Vilborg Davíðsdóttir
9 Stormfuglar Einar Kárason
10 Fjötrar Sólveig Pálsdóttir
Allar bækur
Skáldverk og hljóðbækur
Ég las nokkrar bækur þegar ég
lenti í sóttkví í byrjun mars.
Síðan hef ég hins vegar ekki gef-
ið mér nægan tíma til lesturs,
aðallega vegna þess að sumarfrí
með börnunum tekur bæði tíma
af manni og orku. Það er miður,
því þeim tíma er töluvert betur
varið í lestur en
að skrolla sam-
félagsmiðla
kvöld eftir kvöld.
Það er eilífðar-
markmið hjá
mér að lesa
meira.
Í sóttkvínni las
ég Kópavogs-
króníku eftir Kamillu Einars-
dóttur, sögu sem er oft á köflum
pínu subbuleg. Kamilla náði hins
vegar algjörlega að halda mér
við efnið með
skemmtilegri
kaldhæðni og
biturleika.
Jónas Reynir
skrifaði í Milli-
lendingunni um
sólarhring í lífi
stúlku. Í henni
má lesa ná-
kvæmar lýsingar á einhverju
sem ég hef upplifað sjálf og
tengi oft við. Hann nær að lýsa
andlegu ástandi aðalsöguhetj-
unnar svo vel og
ég fann oft virki-
lega til með
henni. Ekki
skemmir að sag-
an er líka fyndin
svo að ég skellti
oft upp úr við
lesturinn.
Einn af uppáhaldshöfundum
mínum er Friðgeir Einarsson og
í Formanni húsfélagsins er leikið
með hversdaginn. Friðgeir gerir
mikið úr þessum aðstæðum sem
við lendum öll í. Til dæmis er
fádæmalaus lýsing á ítarlegri
umræðu á húsfélagsfundi um
hvernig skal
skipta kostnaði
við glugga.
Uppáhaldið mitt
er þegar hann
lýsir hlutum sem
maður þekkir án
þess að nefna
þá.
Ég byrjaði að
lesa Rof eftir Ragnar Jónasson,
fannst hún svo spennandi en
ákvað að það væri sennilega
best að byrja á fyrstu sögunni
um Ara, svo ég er núna að lesa
Falska nótu. Hún er ekki að
grípa mig eins vel og Rof svona
til að byrja með
en ég veit þá
hvað ég á í
vændum.
Í sumarfríinu
hefur svo upp-
lestur á bókinni
Fólkið í blokk-
inni eftir Ólaf
Hauk Símonarson ómað í
bílnum. Börnin virðast ekki fá
nóg af bókinni því þess á milli
horfa þau á þættina sem er
hægt að sjá á RÚV. Okkur for-
eldrunum leiðist ekki heldur að
hlusta á þessar skemmtilegu
sögur af alls kyns karakterum.
KATRÍN ATLADÓTTIR ER AÐ LESA
Katrín
Atladóttir er
borgarfulltrúi.
Eilífðarmarkmið
að lesa meira
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu