Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2020, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 2. ÁGÚST 2020
Þegar keppni í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu var frestað
13. mars síðastliðinn vegna kórónuveirufaraldursins átti eftir að
útkljá fjórar viðureignir í sextán liða úrslitum. Það verður loks-
ins gert á föstudag og laugardag í næstu viku. Chelsea stendur
höllum fæti eftir 3:0 tap heima gegn Bayern München en Man-
chester City er í mun betri málum eftir 2:1 útisigur á Real
Madrid. Lyon er yfir gegn Juventus eftir 1:0 sigur heima og
jafnt er hjá Napoli og Barcelona.
Atlético Madrid, RB Hlaupsigar, Atalanta og Paris Saint-
Germain eru þegar komin í átta liða úrslit sem fara munu fram
dagana 12. til 15. ágúst og í stað tveggja leikja venjulega verður
aðeins einn leikur nú á hlutlausum velli. Undanúrslitin fara fram
18. og 19. ágúst og sjálfur úrslitaleikurinn sunnudaginn 23.
ágúst á Ljósvangi í Lissabon. Ekki slæm sárabót fyrir EM
landsliða sem frestað hefur verið fram á næsta ár.
Manchester City
ætlar sér sinn
fyrsta Evrópubikar.
AFP
Meistaradeildin að byrja
Robert Lewandowski er markahæstur í Meist-
aradeildinni með 11 mörk fyrir Bæjara.
AFP
Eftir langa bið er keppni í Meistaradeild
Evrópu í knattspyrnu að hefjast aftur.
Verslunarmannafjelag Reykja-
víkur efndi til fjölbreyttra
skemmtana um verslunar-
mannahelgina árið 1950 og tók í
því skyni Tivoli á leigu í þrjá
daga.
Hátíðin var sett á laugardeg-
inum en síðan sýndu þýskir trúð-
leikar, Ralf Bialla, sem nýkomnir
voru til landsins, listir sínar og
Baldur Georgs sýndi töfrabrögð.
Um kvöldið hófst skemmtunin
að nýju með því að Baldur og
Konni ræddust við, síðan sýndu
hinir þýsku listamenn og dansað
var úti og inni.
Á sunnudeginum var hátíða-
messa í Dómkirkjunni og tólf
manna hljómsveit undir stjórn
Baldurs Kristjánssonar lék á
Austurvelli og í Tivoli. Af
skemmtiatriðum síðdegis má
nefna gamanþátt Jóns Aðils.
Um kvöldið lék Jan Moravek
einleik á harmóniku og músík-
kabarett hans lék sígaunalög og
fleira.
Á mánudeginum fóru svo
fram aðalhátíðahöldin í Tivoli og
varð margt til skemmtunar.
Trúðleikar, Ralf Bialla, töfra-
brögð og búktal og reiptog milli
afgreiðslumanna og skrifstofu-
manna.
Um kvöldið var sýndur
gamanþáttur og fram fór knatt--
spyrnukeppni milli afgreiðslu-
stúlkna og skrifstofustúlkna, auk
flugeldasýningar. Bæði kvöldin
var dansað fram eftir nóttu.
GAMLA FRÉTTIN
Búktal og
trúðleikar
Baldur og Konni nutu mikilla vinsælda um og eftir miðja síðustu öld.
Morgunblaðið/Sverrir
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Adrian Clarke
íþróttafréttamaður
Samúel Örn Erlingsson
íþróttafréttamaður
Haukur Harðarson
íþróttafréttamaður