Morgunblaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta er myndarlegt hús og ég held að það verði mjög skemmtilegt þegar endurbótum er lokið,“ segir Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu. Friðbert er eig- andi hússins á Víðimel 29 sem um árabil var í eigu kínverska sendiráðsins og þykir ein af fal- legri byggingum í Vesturbæ Reykjavíkur. Það hefur staðið autt um hríð en nú á að gera bragarbót á. Friðbert hefur sótt um leyfi hjá skipulagsyfirvöldum í Reykjavík til að breyta eigninni í fimm sjálfstæðar íbúðir. Það var Ein- ar Sveinsson arkitekt sem teiknaði húsið, sem er 724,5 fermetrar að stærð, byggt árið 1946. Fasteignamat hússins fyrir næsta ár er rúmar 290 milljónir króna. Í umsókn Friðberts kemur fram að til stendur að breyta innra skipulagi, fjarlægja reykháf sem snýr að götu- hlið, stækka svalir, síkka glugga í kjallara og setja nýja kvisti og þak- glugga á húsið. Hann segir í samtali við Morgun- blaðið að um minni háttar breytingar sé að ræða en húsið var lengi notað undir skrifstofur og móttöku. Í raun sé verið að færa húsið í upprunalegt horf og það muni kallast á við húsið sem stendur við hliðina, Víðimel 27. Fyrr á tíð hafi verið tvær myndar- legar hæðir í þessu húsi og tvær íbúð- ir í kjallara, auk riss. „Það var kominn tími á viðhald á húsinu og Pétur Ármannsson hjá Minjastofnun hefur verið mjög hjálp- legur og aðstoðað við hvernig rétt sé að koma því í rétt stand. Hann hvatti mig til að gera þetta og ég sló til. Það hjálpar eflaust til að ég er alinn upp í hverfinu og ég vona að húsið verði sannkölluð prýði á svæðinu eftir end- urbæturnar,“ segir Friðbert. Fimm íbúðir í gamla kínverska sendiráðinu  Verður hverfinu til prýði eftir endurbætur, segir eigandinn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Endurbætur Fyrrverandi húsnæði kínverska sendiráðsins verður breytt. Friðbert Friðbertsson Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Krabbameinsfélagið mun rýna í verkferla og gæðaeftirlit og reyna að leggja mat á hvort þar þurfi að gera breytingar. Þetta segir Ágúst Ingi Ágústsson, yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins, um stöðu mála í kjölfar þess að mistök voru gerð við rannsóknir á sýnum kvenna hjá félaginu. Fram hefur komið í fjöl- miðlum að kona er með ólæknandi krabbamein í leghálsi vegna mistaka við skoðun á sýni hennar árið 2018. Morgunblaðið greindi frá því í gær að 45 sýni af þeim 1.800 sem Krabba- meinsfélagið hefur lokið endurskoð- un á hafa gefið tilefni til að kalla við- komandi konur inn til frekari rannsókna. Fram kom á mbl.is í gær að Sævar Þór Jónsson, lögmaður konunnar sem varð fyrir mistökum í greiningu, hefur fengið fyrirspurnir frá tólf öðr- um krabbameinssjúklingum eða að- standendum látinna kvenna vegna málsins. Mun hann kanna grundvöll fyrir málsókn. Ágúst Ingi segir aðspurður að mistök starfsmannsins hafi falist í úrlestri á sýninu. „Honum yfirsást frumubreytingar í sýninu sem hefðu átt að vera augljósar,“ segir yfir- læknirinn. „Frá árinu 2018 hefur Krabbameinsfélagið unnið að auknu öryggi meðal annars með því að kaupa nýja tölvustýrða smásjá á frumurannsóknarstofuna árið 2019 þar sem gervigreind forskimar öll sýni og dregur fram þá hluta sýn- anna sem ástæða er til að skoða bet- ur. Tilkoma tækisins dregur enn frekar úr hættu á mannlegum mis- tökum.“ Ráðherra harmar mistökin Ágúst Ingi segir að Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hafi frá upp- hafi verið hluti af Krabbameinsfélag- inu en var gerð að rekstrarlega sjálf- stæðri einingu árið 2019. Félagið gerir þó ráð fyrir að mögulegar kröf- ur um skaðabætur verði á hendur Krabbameinsfélaginu sjálfu. Ekki fást skýr svör við þeirri spurningu hvort félagið hafi bolmagn til að mæta slíkum kröfum, enda liggi ekki fyrir hver upphæð bótakrafna verði á þessu stigi málsins. „Félagið hefur lögbundnar tryggingar sem heil- brigðisstofnunum ber að hafa,“ segir Ágúst Ingi. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra sendi í gær frá sér yfirlýs- ingu þar sem hún kveðst harma þau mistök sem gerð hafi verið hjá Krabbameinsfélaginu. Hún segir mistökin alvarleg og afdrifarík. „Ég harma þau og hugur minn er hjá þeim sem málið snertir á ein- hvern hátt og eiga um sárt að binda vegna þess. Strax og mistökin urðu ljós tilkynntu stjórnendur Leitar- stöðvar KÍ þau til embættis land- læknis líkt og skylt er samkvæmt lögum. Ýtarleg rannsókn málsins stendur yfir hjá embætti landlæknis og ég treysti því að hún muni leiða nákvæmlega í ljós hvað gerðist og hvernig megi fyrirbyggja að eitthvað sambærilegt geti átt sér stað,“ segir ráðherra. Starfsmanni sást yfir frumubreytingar  Rýnt í verkferla og gæðaeftirlit hjá Krabbameinsfélaginu eftir mistök  Fleiri kanna grundvöll fyrir málsókn gegn félaginu  Félagið tryggt samkvæmt lögum  Ráðherra harmar mistök sem gerð voru Ágúst Ingi Ágústsson Svandís Svavarsdóttir Íþróttafélag Reykjavíkur tók í gær formlega í notkun nýtt knattleika- hús. Einnig verður í húsinu aðstaða til æfinga þeirra sem stunda frjáls- ar íþróttir. Dagur B. Eggertsson borg- arstjóri heimsótti húsið af þessu til- efni og flutti litla tölu, en við sama tækifæri var tekin skóflustunga að íþróttahúsi fyrir handbolta og körfubolta. Dagur sagði íþróttaaðstöðuna í Breiðholti lengi hafa verið sitt hjartans mál. Hann sé mjög stoltur af því að þetta glæsilega knatthús væri nú komið í fulla notkun. Hann sé þess viss, að þessi bætta aðstaða muni ekki aðeins fjölga iðk- endum íþrótta í hverfinu heldur einnig styðja við þá sókn sem hafin sé, við að auka enn frekar frí- stundaþátttöku barna og unglinga í Breiðholti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Knattleikahús tekið til notkunar hjá Íþróttafélagi Reykjavíkur í Breiðholti Nýtt hús muni fjölga iðkendum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.