Morgunblaðið - 05.09.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.09.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020 Leirdalur 21, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Nýjar 4ra herbergja sérhæðir með stórri verönd, með eða án bílskúrs. Vandaðar fullbúnar eignir, sem skilast með gólfefnum og tækjum. Opið hús þriðjudaginn 8. sept. frá kl.17:15-17:45 Verð frá kr. 47.500.000 109 m2 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Útlit er fyrir góða kornuppskeru um allt land í haust. Uppskerustörf eru hafin á Þorvaldseyri undir Eyjafjöll- um og er uppskeran það sem af er í meðallagi. Fleiri bændur á Suður- landi eru að hefja uppskerustörf. Sömu söguna er að segja af Norður- landi en útlit er fyrir betri uppskeru í Eyjafirði en verið hefur í mörg ár. Bændur eru þó hræddir við áhrif lægða sem eru að ganga yfir. Uppskerustörf hófust á Þorvalds- eyri undir Eyjafjöllum 26. ágúst og var þá sleginn 25 hektara akur. Ólafur Eggertsson bóndi segir að þar hafi grasfræi verið sáð með kríu sem er fljótsprottið byggafbrigði. Sú blanda gefi góða raun. „Byggið var orðið gott og vel þroskað og náð- ist fyrir rignirnar um daginn. Nú er aftur komin blíða og eftir daginn í dag verðum við komin með einn þriðja uppskerunnar í hús og við náum vonandi einhverju líka á morgun,“ sagði Ólafur í samtali í gær. Þurrkunin er takmarkandi þáttur í uppskerustörfunum. Því þarf að stöðva slátt þegar þurrkverksmiðj- an er orðin full. Ólafur segir raunar að þurrkunin haldi áfram þegar lægðir ganga yfir og sé þá tilbúin þegar rofar til næst. Jafngott um allt land Hrannar Smári Hilmarsson, til- raunastjóri hjá Landbúnaðarhá- skóla Íslands, telur að kornárið 2020 verði gjöfult. Það sé nokkuð jafngott yfir allt landið og heppilegt þegar það gerist. Hann segir að þótt ágæt- lega líti út með uppskeru á Hvann- eyri þar sem korntilraunirnar eru gerðar muni uppskerutölurnar ekki ná metuppskerunni í fyrra. „Útlit með uppskeru hefur ekki litið jafn vel út í mörg ár. Allt hefur gengið upp í sumar,“ segir Her- mann Ingi Gunnarsson, bóndi í Klauf í Eyjafirði. Veðrið sem gekk yfir í fyrrinótt virðist ekki hafa skemmt akra í Eyjafirði en Her- mann er þó smeykur við sunnanrok- ið sem spáð er í næstu viku. „Ég er að vona að það fari að stytta aðeins upp og lægja, þá ættum við að geta hafið uppskerustörf og fengið met- uppskeru. Við fengum svo hagstætt sumar. Ágúst hefur aldrei verið jafn sólríkur og nú.“ Bændur í Eyjafirði eru að búa sig undir uppskerustörf til að vera til- búnir um leið og þornar á. Ekki er spáð þurrki en Hermann segir að menn muni nýta dagparta þegar færi gefst. Ef til vill verði hægt að byrja á morgun, sunnudag. Ólafur á Þorvaldseyri segir að sumarið hafi verið ágætt ræktunar- sumar. Að vísu séu ekki jafn miklir hitadagar þar og fyrir norðan og austan, en hitinn hafi verið jafn og svo hafi komið rigning inn á milli. „Það sýnir hvað sprettuskilyrðin eru góð að ég sló 15 hektara tún þriðja sinni og veit að fleiri hafa gert það.“ Kornrækt jókst á síðasta ári eftir að hún hafði dregist saman í nokkur ár. Ólafur segir að bændur á Suður- landi sem er langstærsta ræktunar- héraðið hafi verið að taka við sér aftur. Bæði hafi nýir menn verið að hefja kornrækt og aðrir að auka við sig. Hermann í Klauf telur ekki að mikil fjölgun sé í stétt kornbænda. Aftur á móti séu einhverjir að auka við sig. „Þetta er áhættusöm grein og menn hafa farið illa út úr henni á síðustu árum, hafa guggnað, og missa svo af góðu sumri eins og í ár. Það þarf meiri hvata til að efla korn- ræktina og það verður ekki gert nema með auknum styrkjum og að- komu ríkisins,“ segir Hermann. Kornuppskeran er mikil búbót hjá kúabændum, eins og bændunum á Þorvaldseyri og í Klauf, sérstak- lega í góðum uppskeruárum. Þeir nýta kornið í fóðurblöndur fyrir kýrnar og spara innflutt kjarnfóður. Hermann segir að rúmur helmingur af hráefninu í kjarnfóðrinu sem hann gefur kúnum sé af eigin ökr- um. Góð uppskera um allt land  Uppskerustörf að hefjast hjá kornbændum  Meðaluppskera undir Eyjafjöllum  Útlit fyrir metuppskeru í Eyjafirði  Bændur hræddir við haustlægðir Ljósmynd/Ólafur Eggertsson Kornakur Fyrsti hringurinn sleginn á akri á Þorvaldseyri þar sem grasfræi var sáð með byggafbrigðinu kríu. Útlit er fyrir að framkvæmdum við viðgerðir og stækkun á bryggjunni í Flat- ey á Breiðafirði ljúki á næstu dögum. Eftir er að reka niður þrjá staura, en tvísýnt var hvort tækist að ljúka verkinu í ár þar sem efni vantaði um tíma og tæki höfðu verið leigð til Færeyja. Reyndist bryggjan verr farin en talið var í upphafi. Það er Gunnar Sveinsson sesm greinir frá á Facebook-síðunni Flat- eyingar. Drukkið Guði til dýrðar Þar segir einnig frá því að dósasöfnun hafi gengið vonum framar þetta sumarið í Flatey. Fjölmenni hafi verið í húsunum og hótelið gengið vel. Það stefnir í yfir sjö þúsund flöskur og að dósir fari yfir tuttugu þúsund. Það myndi skila yfir 400 þúsund krónum sem renna til kirkjunnar í Flatey. „Eða eins og sagt er í Flatey; hér drekka menn Guði til dýrðar og kirkj- unni til fjáröflunar,“ skrifar Gunnar Sveinsson. Ljósmynd/Gunnar Sveinsson Flatey Aðstaða batnar og öryggi eykst með framkvæmdum sumarsins. Viðgerð á bryggjunni í Flatey að ljúka Matvælastofnun hefur veitt Arctic Fish rekstrarleyfi til eldis á allt að 5.300 tonnum af regnbogasilungi í sjókvíum við Snæfjallaströnd í utan- verðu Ísafjarðardjúpi. Umsókn fyrirtækisins um leyfi til laxeldis á sama stað er á lokastigum umhverf- ismats. Framkvæmdastjóri hjá Arc- tic Fish segir að fyrirtækið eigi seiði til að hefja þar laxeldi næsta sumar en það sé háð því að leyfi fáist. Starfsleyfi sem Umhverfisstofnun veitir var unnið samhliða rekstrar- leyfi Matvælastofnunar en það hefur ekki verið gefið út. Háafell, dótturfélag Hraðfrysti- hússins – Gunnvarar, fékk í sumar leyfi til eldis á um 7.000 tonnum af regnbogasilungi í innanverðu Djúp- inu. Setti fyrirtækið um 170 þúsund seiði út í sjókvíar í júní. Leyfi beggja fyrirtækjanna rúmast innan burðar- þolsmats Ísafjarðardjúps sem er um 30 þúsund tonn. Bæði fyrirtækin vinna að því að breyta leyfunum úr regnbogasilungi í lax. Bæði hafa þau reynslu af eldi regnbogasilungs og hættu því vegna þess að verð fyrir lax er mun hag- stæðara en fyrir silungsafurðir auk þess sem betra er að ala lax en sil- ung í köldum sjó við Ísland. Of stuttur tími til stefnu Sigurður Pétursson, fram- kvæmdastjóri hjá Arctic Fish, segir að það taki að minnsta kosti ár að flytja inn hrogn og framleiða regn- bogasilungsseiði. Því sé ekki raun- hæft að ætla að hægt verði að setja út regnbogasilung næsta sumar. Bendir hann á að fyrirtækið eigi laxaseiði sem hægt væri að setja út í kvíar í Ísafjarðardjúpi næsta vor, ef nauðsynleg leyfi fengjust fyrir þann tíma. Fyrirtækið hefur skilað um- hverfismatsskýrslu fyrir eldi á laxi við Snæfjallaströnd, á sömu stað- setningum og silungsleyfin eru, og vonast Sigurður til þess að sú vinna fari að klárast. helgi@mbl.is Fá regn- bogaleyfi í Djúpinu  Setja út laxa- seiði ef leyfi fæst

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.