Morgunblaðið - 05.09.2020, Qupperneq 10
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það eru næstum engir sjúklingar
með covid-19 á spítölunum enda dreg-
ur úr faraldrinum með hverjum deg-
inum sem líður,“ segir Björn Zoëga,
forstjóri Karólínska sjúkrahússins í
Stokkhólmi,
stærsta sjúkra-
húss Svíþjóðar,
þegar hann er
spurður um stöðu
faraldursins þar í
landi.
Hann minnir á
að þegar verst lét
hafi 1.100 sjúk-
lingar með
kórónuveiruna
legið á spítölunum í Stokkhólmi, þar
af 170 á gjörgæsludeildum. Nú séu
samtals 30 covid-sjúklingar á sjúkra-
húsunum og þar af þrír á gjörgæslu.
Þeir sem séu á gjörgæsludeildum hafi
legið þar lengi.
16% með mótefni í Stokkhólmi
Kórónuveirufaraldurinn reis hratt í
Svíþjóð en virðist nú vera að líða und-
ir lok og ekki bólar á annarri bylgj-
unni þar, eins og nú herjar í mörgum
löndum Evrópu, þar á meðal á Ís-
landi. Björn hefur rætt við starfs-
félaga sína í stórborgum Evrópu, til
dæmis í París og Berlín, og segir að
ástandið þar sé alvarlegt.
Segir hann að mikill fjöldi kórónu-
veiruprófa sé nú tekinn, miðað við
upphaf faraldursins þegar ekki var
sama geta til rannsókna. Verið er að
gera um 16 þúsund kórónuveirupróf
og 80 þúsund mótefnapróf á viku.
Segir Björn að búið sé að mótefna-
mæla um hálfa milljón íbúa á Stokk-
hólmssvæðinu og hafi komið í ljós að
meira en 16% þeirra séu með mótefni
fyrir kórónuveirunni. „Það er örugg-
lega ein af ástæðunum fyrir því að
veiran er hægt og sígandi að hverfa,“
segir Björn. Margir haldi að ekki
komi önnur bylgja í Svíþjóð, aðeins
minni háttar aukning.
Karólínska sjúkrahúsið gjörbreytti
skipulagi sínu og starfsemi við upphaf
kórónuveirufaraldursins. Gjörgæslu-
rými voru fimmfölduð. Á móti var
barnaspítali minnkaður og starfsfólk-
ið notað á öðrum deildum. Um 700
sjúkrarúm af 1.200 sem eru á sjúkra-
húsinu voru tekin frá fyrir sjúklinga
með covid-19. Þessu var breytt til
fyrra horfs strax í byrjun júní, þegar
hægja fór á faraldrinum, en sett upp
aðgerðaáætlun ef faraldurinn gysi upp
aftur. Þeir örfáu kórónu-
veirusjúklingar sem leita til spítalans
hafa síðan verið meðhöndlaðir á hefð-
bundinni sýkingavarnadeild. „Við
lærðum töluvert af því að breyta
sjúkrahúsinu á þessum stutta tíma án
þess að bæta við okkur mannskap. Við
nýtum okkur reynsluna í starfinu,
drögum úr skriffinnsku og einföldum
hlutina í starfi fólksins sem sinnir
sjúklingunum,“ segir Björn
Enn áhrif á samfélagið
Spurður hvort þróunin í Stokkhólmi
sem fór illa út úr faraldrinum í byrjun
sé staðfesting á því að stefna yfirvalda
sóttvarna í Svíþjóð hafi verið rétt segir
Björn of snemmt að dæma um það.
Hann bendir á að þær samfélagslegu
takmarkanir sem gripið var til í Sví-
þjóð séu ekki ósvipaðar aðgerðunum á
Íslandi. Þar séu 50 manna samkomu-
takmarkanir, krafa um tveggja metra
bil á milli fólks, skemmtistaðir lokaðir
og strangar reglur gildi um starfsemi
veitingastaða. Fólk sé að vísu misjafn-
lega duglegt að fara eftir reglunum og
yngra fólk ekki jafn duglegt og það
eldra.
„Það eru enn margir að vinna
heima. Það sést á aðsókn í neðanjarð-
arlestir og strætó, í síðustu viku nýttu
aðeins 50% sér almenningssamgöng-
ur, af því sem áður var. Svo sér maður
líka að færra eldra fólk er á ferli, það
heldur sig enn til hlés og að á sjúkra-
húsin kemur færra fólk vegna annarra
sjúkdóma en vant er. Þetta hefur enn
mikil áhrif á þjóðfélagið,“ segir Björn.
Faraldrinum er að ljúka
Ekki búist við seinni bylgju kórónuveirufaraldursins í Svíþjóð Starfsemi Kar-
ólínska sjúkrahússins komin í lag Sérdeildum fyrir kórónuveirusjúklinga lokað
AFP
Stokkhólmur Nóg úrval er af grímum í verslunum í Svíþjóð en lítil not fyrir
þær því yfirvöld hafa ekki mælt með almennri notkun á andlitsgrímum.
Björn Zoëga
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020
NÁTTÚRULEGVIÐARVÖRN
SÍBERÍSKT LERKI
ÚRVALS PALLAEFNI
Erum að bjóða úrvals pallaefni úr
síberísku lerki – Einstaklega þétt og
vandað efni.
Stærð
27mm (þykkt) x 142mm (breidd)
Fyrirkomulag
30 fm í búnti.
Lengd á fjölum er 6m. (35 fjalir í búnti).
Búntið kemur pakkað með plastábreiðu.
Efnið er rásað öðru megin og slétt hinu-
megin. Hægt er að ráða hvort hliðin
snýr upp.
Tökum við pöntunum í síma 553 1550
eða á netfangið landshus@landshus.is
Fróðleikur um lerki
Almennt er talað um að lerki sé viðhaldsfrítt.
Það stafar af náttúrulegri fúavörn sem er í
timbrinu. Það þarf því ekki að bera á lerki
heldur mun það grána með tímanum og það
er endanlegt útlit efnisins. Það er svo hvers og
eins að meta það hvort það sé litur/útlit sem
hentar. Að því sögðu er þó hægt að bera lit á
efnið seinna meir ef gráminn er ekki liturinn/
útlitið sem hentar.
Verð pr. lengdarmetra: – kr. 1.150,-
Gerumsértilboð þegar ummikiðmagn er að ræða
STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN
Landshús - Sími 553 1550 - landshus@landshus.is - www.landshus.is
Björn Zoëga er bækl-
unarskurðlæknir, sérfræð-
ingur í háls- og hrygg-
aðgerðum.
Hann hélt sér við faginu
þegar hann var forstjóri
Landspítalans í Reykjavík á
árunum 2010 til 2013 með
því að taka frá daga til að-
gerða á sínu sérsviði.
Hann hefur ekki hætt
þessu þótt hann hafi tekið
við forstjórastarfinu á Karól-
ínska sjúkrahúsinu vorið
2019 enda talin þörf fyrir
sérþekkingu hans, jafnvel á
jafn stórum og þekktum spít-
ala og Karólínska er. Gerir
hann einstaka aðgerðir og
tekur einnig bakvaktir. Segir
að hann geti haldið sér við í
faginu með þessu móti og
svo sé þetta skemmtileg
vinna.
Spurður hvort læknar hiki
ekki við að hringja í forstjór-
ann til að hjálpa til við að-
gerðir segir Björn að svo sé
ekki. Hann reyni að skipu-
leggja sig og læknarnir viti
hvenær hann hefur lausan
tíma. Svo hringi þeir stund-
um til að leita álits á ein-
hverjum hlutum.
„Ég hef ekki haft mikinn
tíma til að sinna þessu í
kórónuveirufaraldrinum og er
farinn að sakna þess. Lækn-
ingarnar leita allaf á mann,“
segir Björn.
Forstjórinn
sker upp
KARÓLÍNSKA