Morgunblaðið - 05.09.2020, Page 11

Morgunblaðið - 05.09.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020 Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Fallegar haustvörur! SKOÐIÐ hjahrafnhildi.is Skipholti 29b • S. 551 4422 DÁSAMLEGAR DÚNÚLPUR OG KÁPUR Fylgdu okkur á facebook Verð 64.900 – 69.900 kr. SKOÐIÐNETVERSLUNLAXDAL.IS Gæðavottaðar •2 síddir •St. 36-48 •Margir litir Varðveittu minningarnar áður en þær glatast Bergvík ehf - Nethyl 2D - Sími 577 1777 - www.bergvik.is STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þetta hefur verið gott sumar í Laxá í Kjós. Ég hef ekki séð svona gott vatn í ánni í fjöldamörg ár,“ segir Haraldur Eiríksson sem hefur verið við ána. „Það hefur nánast rignt eftir pöntun og hafa verið drauma- aðstæður til veiða. Og mér finnst vera mun meira af fiski í ánni en veiðitölur segja til um. Allir veiðimenn eru sammála mér um það. En veiðitölur endurspegla líka að vegna veirunar voru á löngum stundum um miðjan júlí bara örfáir við veiðar. Það er mikið af stórum fiski í ánni, nokkrir hafa veiðst – sá stærsti 102 cm – og ég spái því að fleiri eigi eftir að nást í haust. Fiskurinn er líka mjög vel dreifður í ánni.“ Tæplega 700 laxar höfðu veiðst í Kjósinni á miðvikudaginn var og voru um 50 færðir til bókar í liðinni viku. Tugir Breta komu til veiða í Laxá í Kjós í sumar, eftir 26. júlí, og var talsvert vandlega gætt að sóttvarna- reglum. Þá hjálpaði að tvær svefn- álmur eru á veiðihúsinu, með sér- inngangi. „Það var mjög mikið mál að gæta þess að farið væri að settum reglum, og starfsfólkið var samhent um það í þessar tvær þrjár vikur, og það tókst. Þegar mest lét voru tutt- ugu í húsi,“ segir Haraldur. Þegar kórónuveirubylgjan skall á í vor hættu allir þeir erlendu veiði- menn sem bókað höfðu daga í Kjós- inn við. „Þegar landið opnaðist aftur þurftum við því að fara aftur út á markaðinn að selja leyfin,“ segir Haraldur. „Þetta voru allt nýir við- skiptavinir sem komu. Ég ber mikla virðingu fyrir því fólki sem flaug þá til Íslands – það sýndi sig hvað vilj- inn til að koma til veiða var mikill.“ Á hefðbundnum „útlendinga- tíma“, helsta veiðitíma sumarsins um og upp úr miðjum júlí, voru því fáir veiðimenn í ánni en fyrstu vikur ágúst segir Haraldur þess í stað hafa orðið besti veiðitíminn, enda fór þá að rigna og veiddust yfir hundrað laxar hvora viku. Flekkudalsá til SVFR Stangaveifélag Reykjavíkur hefur tekið Flekkudalsá á Fellsströnd á leigu. Veitt er á þrjár stangir í Flekku, sem fellur um einstaklega fallegt kjarri vaxið land og er bæði veitt í Flekkudalsá sjálfri – þar sem neðri hlutinn heiti Kjallaksstaðaá – og þverá hennar, Tunguá. Í tillkynn- ingu sem SVFR sendi út í gær segir að félagið hafi „tryggt sér eina eftir- sóknarverðustu sjálfsmennskuá á Vesturlandi“. Þá segir einnig að Flekka sé frábær veiðiá og falli vel að þörfum félagsmanna SVFR. Hún sé allt í senn „frábær laxveiðiá, sér- lega falleg og tilkomumikil og fjöl- skylduvæn“. Nánast rignt eftir pönt- un – draumaaðstæður  Söluátak í sumar kom tugum Breta í góða veiði í Kjós Morgunblaðið/Einar Falur Laxveiði Kristinn E. Hrafnsson myndlistarmaður togaðist á dögunum á við vænan lax í Húseyjarkvísl í Skagafirði. Afl ahæstu árnar Heimild: www.angling.is 0 3.500 7000 Staðan 2. september 2020 Veiðistaður Stanga- fjöldi Veiði 4. sept. 2019 5. sept. 2018 Eystri-Rangá 18 7.362 2.782 3.486 Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki 18 2.080 1.364 3.177 Miðfjarðará 8 1.407 1.324 2.360 Affal í Landeyjum 4 1.192 215 693 Selá í Vopnafi rði 6 1.138 1.391 1.283 Haffjarðará 6 973 568 1.502 Urriðafoss í Þjórsá 4 959 746 1.257 Þverá – Kjarrá 14 912 907 2.444 Horfsá og Sunnudagsá 6 895 624 629 Norðurá 15 862 495 1.610 Langá 12 812 440 1.395 Jökla (Jökulsá á Dal) 8 802 357 408 Laxá í Kjós 8 687 193 854 Laxá á Ásum 4 603 682 644 Laxá í Dölum 6 558 450 879 Yfir sjö hundruð nemendur með erlent ríkisfang hefja nám við Há- skóla Íslands í haust, þar af 174 skiptinemar og 543 á eigin vegum. Þetta kemur fram í frétt á vef- síðu háskólans. Fram kemur að skiptinemum fækkar töluvert milli ára en nemum á eigin vegum fjölgar hins vegar. „Í vor stefndi í umtalsverða fjölgun skiptinema en vegna CO- VID-19-faraldursins ákváðu marg- ir erlendir samstarfsskólar að senda ekki nemendur í skiptinám þetta haustið. Auk þess hafði óvissa um þróun faraldursins víða um heim áhrif á ákvörðun sumra skiptinema að halda til Íslands. Þannig voru alls 264 nemendur tilnefndir í skiptinám við HÍ en 174 skiluðu sér. Erlendum nemum á eigin vegum hefur hins vegar ekki fækkað á milli ára heldur þvert á móti fjölgað. Þeir voru 517 í fyrra en 543 í ár,“ segir í umfjölluninni. Haldnir hafa verið kynningar- dagar fyrir erlendu nemendurna. Yfir 700 erlendir nýnemar við HÍ  Fleiri erlendir nemar á eigin vegum Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson HÍ Erlendir nemar á eigin vegum voru 517 í fyrra en 543 í ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.