Morgunblaðið - 05.09.2020, Síða 12

Morgunblaðið - 05.09.2020, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum PLÍ-SÓL GARDÍNUR alnabaer.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Um hverja helgi frá því GKbakarí hóf starfsemisína hafa súrdeigsbrauðverið bökuð eftir kunn- um aðferðum en með nýjum til- brigðum. Bakaríið, sem er við Aust- urveg á Selfossi, var opnað 2. janúar á þessu ári af þeim Guðmundi Helga Harðarsyni og Kjartani Ásbjörns- syni sem báðir eru útlærðir í bak- araiðn. Starfsemin er í húsnæði þar sem bakarí hefur verið um langa hríð og því er að nokkru leyti byggt á hefðum sem staðnum fylgja, en annað eru nýmæli. „Að prófa sig áfram með nýj- ungar er nauðsynlegt og við erum ánægðir með hvernig tekist hefur til í þessari tilraunastarfsemi okkar fé- laganna,“ sagði Guðmundur Helgi í samtali við Morgunblaðið. Handverkið gildir Súrdeigsbrauð með sólþurrk- uðum tómötum og chillipipar verður brauð komandi helgar í bakaríinu góða á Selfossi. Af því sem á boð- stólum hefur verið að undanförnu eru til dæmis brauð með trönuberj- um og hvítu súkkulaði, sjómanna- dagsbrauðið blandað kartöflum, steinselju og sjávarsalti, einnig rauðrófubrauð, skógarberjabrauð, og brauð með sólþurrkuðum tómöt- um og ólívum en svo mætti lengi áfram telja. Rúgbrauð með trönu- berjum og möltuðu íslensku byggi voru á boðstólnum um bóndadags- helgina og mældust svo vel fyrir að þau fóru í daglega sölu. Allt er þetta handverksbakstur. Dagleg framleiðsla eru 7-10 tegundir af súrdeigsbrauðum, normalbrauð, rúnstykki og sæta- brauð eftir atvikum. Guðmundur og Kjartan leggja áherslu á að vinna með hágæðahráefni og að halda vöruúrvalinu lifandi. Öll fram- leiðslan er seld á staðnum. „Brauðin, snúðarnir og smjör- deigið er allt langhefað yfir nótt og því klárt í bakstur þegar við mæt- um. Hingað mætum við um klukkan sex á morgnana, en við reynum að mæta eins seint og við getum og bökum lítið í einu. Þegar fyrstu við- skiptavinir koma á morgnana er allt nýbakað og margt enn í ofninum,“ segir Kjartan. „Framleiðslan er jöfn yfir daginn og fólk getur gengið að nýbakaðri vöru allan daginn. Með þessu komum við einnig í veg fyrir að baka allt of mikið og sitja uppi með fjall af afgöngum í lok dags. Séu þeir einhverjir fá sjúkra- flutningaliðið, sjúkrahúsfólk og björgunarsveitin gjarnan sendingu frá okkur.“ Hrat í rúgbrauð Bakararnir Guðmundur Helgi og Kjartan eru báðir Sunnlendingar og eiga sínar rætur í samfélaginu þar. Því hefur þeim verið metn- aðarmál að eiga samstarf við fólk og fyrirtæki á svæðinu. Úr brugghús- inu Ölverki í Hveragerði hafa þeir fengið korn sem sitja eftir úr bjór- gerð sem nýttist í súrdeigsbrauð og meira að segja hefur bjór verið bætt í brauð bragðsins vegna. „Helgina eftir að kanilsnúðabjórinn úr snúð- unum frá okkur fór í framleiðslu hjá Ölverki notuðum við hratið af honum í rúgbrauð, sem gaf ristaðan kan- ilkeim og lúmskt, sætt marsip- anbragð,“ segir Kjartan. Allt kjötálegg GK bakarís kem- ur frá Korngrís í Laxárdal í Gnúp- verjahreppi og einnig hafa krydd- jurtir frá Ártanga í Grímsnesi nýst í brauðabakstur. Kælirinn í búðinni er fullur af lífrænu grænmeti frá Hæðarenda í Grímsnesi og eina helgina í sumar var allt fyllt af ham- borgurum og grillkjöti frá Litlu- Hólabúðinni í Laugardal, sem er skammt frá Laugarvatni. Báðu um rabarbara „Við biðluðum til fólks í vor um rabarbara og ekki stóð á viðbrögð- unum. Fólk bar í okkur rabarbara í allt sumar í skiptum fyrir nýbökuð brauð og við erum vel birgir fyrir veturinn. Allt skapar þetta skemmti- lega stemningu og er í anda þess sem boðað er; að matvæli eigi ekki að flytja um langan veg frá framleið- anda til neytenda. Tímarnir og óskir neytenda eru að breytast og þeim viðhorfum ætlum við að fylgja,“ seg- ir Guðmundur Helgi Harðarson. Tilraunir í bakaríi Tilbrigði í brauðinu. Súrdeigsbrauð með sólþurrk- uðum tómötum og chillipipar í GK-bakarí á Selfossi um helgina. Nauðsynlegar nýjungar, segja félagarnir sem fá hráefnið gjarnan frá bændum í héraði. Morgunblaðið/Eggert Bakari Þegar fyrstu viðskiptavinir koma er allt nýbakað og margt enn í ofninum, segir Kjartan Ásbjörnsson. Morgunblaðið/Eggert Samstarfsmenn Kjartan og Guð- mundur Helgi Harðarson. Kartöflur Komu vel út í sjómannabrauðinu. Snúður Með appelsínu og súkkulaði, með óvenjulegt og sterkt útlit. Bolla Með karamellu og súkkulaðifyllingu. Bara alveg hreint ljómandi gott. Vetrarstarf skátafélaganna er að hefjast þessa dagana fyrir börn og er fyrir ungmenni á aldrinum 7-25 ára. Starfið er aldursskipt og tekur mið af getu fólks og byggir upp færni til framtíðar á fjölmörgum sviðum. Starfið eflir kjark, sjálfstæði, seiglu, útsjónarsemi og samvinnu. Skátafélögin bjóða áhugasömu ungu fólki að kynna sér starfið og víða er mögulegt að líta inn á fund án skuldbindingar. Á vefnum skatarnir.is eru lýsingar á inntaki skátastarfs og hvar finna má starfandi skátafélög ásamt þeirri dagskrá sem er í boði á hverjum stað. Í flestum hverfum á höfuðborgarsvæðinu er skátafélag sem og í bæjum úti á landi. Yfir veturinn eru vikulegir skáta- fundir sem ýmist eru haldnir innan- eða utanhúss. Oft bætist við dags- ferð um helgi og útilega. Þátttöku- gjöldum er stillt í hóf og taka sveit- arfélög þátt í kostnaði með frístundastyrkjum. Tvö skátafélög hafa boðið upp á nýjung sem kallast fjölskylduskátun, en þá taka foreldrar þátt í starfinu með börnum yngri en sjö ára. Gjarn- an er hist vikulega um helgar hluta úr degi eða með öðrum hætti sem hóp- urinn ákveður. Foreldrar þurfa ekki að hafa verið skátar og geta fengið leið- sögn frá skátamiðstöð. Einnig eru starfandi hópar fullorð- inna sjálfboðaliða í baklandi skáta- félaganna. Eru skátar og foreldrar hvattir til að skrá sig eða yfirfara eldri skráningar. Covid-19-faraldurinn setti strik í reikninginn varðandi skátastarfið á liðnu vori og féll það niður um tíma. Skátar brugðu á það ráð að opna Stuðkví á netinu sem margir nýttu sér. Þegar takmörkunum var aflétt var boðið upp á starfið á ný og víðast hvar lengra fram á sumar en áður til að vinna upp glataðan tíma, enda skátarnir þyrstir í samveru og skáta- starf á nýjan leik. Komi til takmark- ana í vetur munu skátar taka því af ábyrgð og festu með hagsmuni barna og ungmenna að leiðarljósi, segir í tilkynningu. sbs@mbl.is Gott og uppbyggilegt tómstundastarf Skemmtilegt hjá krökkum í skátunum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skátar Líf og fjör á landsmóti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.