Morgunblaðið - 05.09.2020, Side 18

Morgunblaðið - 05.09.2020, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Þórðarsonar, í tilefni af 75 ára af- mæli hans fyrr á þessu ári. Þar kem- ur Gunnar fram með hljómsveit, söngvararnir Kristján Gíslason, Alma Rut, Íris Hólm og Birgir Jó- hann Birgisson og kynnir er Þorgeir Ástvaldsson sem syngur líka. Fyrr á árinu var á hótelinu dagskrá með lögum Bee Gees og seinna Abba þar sem landslið söngvara kom fram með hljómsveit þar sem Gunnar var í fararbroddi. „Við Gunnar höfum átt gott og í raun einstakt samstarf sem hófst ár- ið 1981. Þá var ég að opna Broadway en þar og á Hótel Íslandi næstu 20 árin eða svo héldum við margar eft- irminnilegar sýningar og skemmt- anir, viðburði sem fólk man eftir. Þetta var um margt einstakur tími í íslenskri skemmtanamenningu og afar skemmtilegur,“ segir Ólafur. Hann minnist heimsókna margra þekktra tónlistarmanna sem komu til landsins frá 1981 og fram til 2000. Þarna má nefna Tom Jones, Jerry Lee Lewis, The Shadows, John Tra- volta, Fats Domino og Rod Stewart svo örfáir séu tilteknir. Einnig voru sýningar með íslenskum listamönn- um, svo sem Ríó tríói, Ómari Ragn- arssyni – og á skemmtistöðum Ólafs voru jafnframt haldnar árshátíðir fyrirtækja, Fegurðarsamkeppni Ís- lands og fleira. Skapa góðar minningar „Þetta voru ævintýri og oft kemur fólk hingað í Grímsborgir, til dæmis hjón sem segjast hafa kynnst á skemmtun hjá mér í Hollywood, Broadway eða Hótel Íslandi. Ósjald- an mætir þetta fólk hingað í tengslum við stórafmæli eða slíkt, stundum með allri fjölskyldunni – í þeim tilgangi að skapa góðar minn- ingar. Þá eru Grímsborgir góður staður,“ segir Ólafur að síðustu. Stóri galdurinn í Grímsborgum  Glæsileiki í Grímsnesi  Fyrsta vottaða fimm stjörnu hótelið á Íslandi  Fólk vill lúxus  Sérstaðan er skýr  Bætir við tíu svítum og framkvæmdir að hefjast  Skapar góðar minningar Morgunblaðið/Eggert Gestgjafar Fólk gerir í vaxandi mæli kröfur um góðan viðurgjörning og lúxus eins og hér er í boði. Sérstaða okkar er alveg skýr,“ segir Ólafur Laufdal hótelhaldari og veitingamaður, hér með Maríu Brá samstarfskonu sinni. Morgunblaðið/Eggert Glæsistaður Alls tekur Hótel Grímsborgir 240 gesti í gistingu. Samtals eru sextán byggingar á svæðinu, fallegum stað í skógarkjarrinu við Sogið. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Gunnar Sýning með lögunum hans góðu verður nú í haust. SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Viðskiptavinir hafa alltaf rétt fyrir sér og þjónustan þarf að vera fyrsta flokks. Fólk gerir í vaxandi mæli kröfur um góðan viðurgjörning og lúxus eins og hér er í boði. Sérstaða okkar er alveg skýr,“ segir Ólafur Laufdal hótelhaldari og veitinga- maður. „Stóri galdurinn felst svo alltaf í því að starfsmenn finni gleði í því að sinna gestum og ólíkum þörf- um þeirra og óskum. Að því leyti hafa störfin ekkert breyst á þeim tæpu 60 árum sem ég hef unnið við veitinga- og ferðaþjónustu.“ Íbúðir og svítur Nóg hefur verið að gera að undan- förnu á Hótel Grímsborgum í Grímsnesi, þar sem eru gisting í hæsta gæðaflokki, rómaður veit- ingastaður og skemmtanir um helg- ar. Samdráttur í ferðaþjónustu á Ís- landi er ekki algildur. „Við erum vel sett alveg út árið. Villibráðarveislur okkar eru tvær fyrstu helgarnar nóvember og svo koma jólahlað- borðin, sem er vel bókað á. Mörg fyrirtæki koma til okkar ár eftir ár. Staðan eftir nýár er óljós enn sem komið er, en vonandi verður tilveran þá komin í eðlilegra horf,“ segir Ólafur. Hótel Grímsborgir, sem er í kjarri vöxnu landi við Sogið, var opnað árið 2010. Starfsemin og húsakostur hef- ur verið byggður upp í jöfnum skref- um og útkoman er glæsileg. Þetta er fyrsta vottaða fimm stjörnu hótelið á Íslandi og getur tekið allt að 240 gesti. Gisting býðst í rúmgóðum herbergjum, stórum svítum og íbúð- um sem eru allt að 200 fermetrar að flatarmáli og með verönd. Alls eru 29 heitir pottar við gistihúsin, en alls hafa verið reistar sextán byggingar í þeirri þyrpingu sem myndar Gríms- borgir. Þar eru meðal annars góðir funda- og ráðstefnusalir, sem taka alls að 120, og margvíslegir aðrir möguleikar til mannamóta. – Til stendur svo að reisa um 600 fer- metra byggingu með 10 lúxussvítum og hefjast framkvæmdir innan tíðar. Fyrir eru átta svítur á staðnum. „Fimm stjörnum fylgja miklar kröfur, svo sem að hér sé fólk á vakt allan sólarhringinn, reyndir mat- reiðslumenn séu í eldhúsinu og svo framvegis. Allt eru þetta skyldur sem okkur er metnaðarmál að mæta sem best,“ segir Ólafur. Einstakt samstarf við Gunnar Á næstunni verður á Hótel Gríms- borgum sýning með lögum Gunnars Að reka stórt hótel í hæsta klassa segir Ólafur Laufdal að krefjist mikillar vinnu og yfir- legu. Ekkert megi gefa eftir í gæðum og þjónustu við við- skiptavini. Hann er sjálfur mik- ið á staðnum, en hans hægri hönd er María Brá Finnsdóttir hótelstjóri. Hún hefur starfað í áraraðir á Grímsborgum, byrj- aði þar í herbergisþrifum, upp- vaski og sá um morgunverð- arborðið. Vann sig síðan stig af stigi upp í ábyrgðarmikið starf hótelstjóra. Þá er Kristín Ketilsdóttir, kona Ólafs Lauf- dals, hönnuður útlits hótelsins og er í mörgum fleiri hlut- verkum í þessari fjölbreyttu starfsemi. „Kristín er mér al- veg ómissandi í þessu starfi hér,“ segir Ólafur. Kjarni allra starfa í ferðaþjónustu „Mér finnst gaman að vera innan um og með fólki; sú af- staða er í raun kjarni allra starfa í ferðaþjónustu,“ segir María Brá hótelstjóri sem er framreiðslumaður að mennt og ætlar nú í vetur að afla sér frekari menntunar í faginu. „Starfið hér er afskaplega gef- andi og viðskiptavinirnir eru fjölbreyttur hópur. Kannski má segja að fólk á miðjum aldri sem hefur komið sér vel fyrir í lífinu sé okkar helsti markhóp- ur; þá aðallega Íslendingar eins og staðan er nú. Margir sem hingað hafa komið nú að undanförnu nefna að þeir hafi verið búnir að skipuleggja og jafnvel panta sér ferð til út- landa sem hafi verið blásin af vegna kórónuveirunnar og Co- vid. Eitthvað þarf þá að koma í staðinn til þess að gera sér dagamun og Gímsborgir hafa þess vegna orðið niðurstaðan. Það finnst okkur gaman að heyra. Fólk þarf tilbreytingu og gleði inn í lífið, ekki síst eins og aðstæður í samfélag- inu eru nú,“ segir María Brá að síðustu. Gefandi starf og hópurinn fjölbreyttur MARÍA BRÁ HÓTELSTJÓRI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.