Morgunblaðið - 05.09.2020, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 05.09.2020, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020 ✝ Ólöf María Jó-hannsdóttir var fædd á Siglu- firði 16. apríl 1944. Hún lést 21. ágúst 2020 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Maja eins og hún var oftast kölluð var dóttir hjónanna Jóhanns Steinþórs Guðnasonar, f. 12.2. 1919, d. 24.6. 1993, og Unu Dagnýjar Guðmunds- dóttur, f. 10.12. 1913, d. 26.1. 2000. Systkini Maju eru: 1) Hreiðar Þór Jóhannsson, f. 31.7. 1962, d. 31.7. 1962. 2) Drengur, fæddur andvana 6.7. 1963. 3) Jóhann Steinþór, f. 17.5. 1965, kvæntur Eyrúnu Björnsdóttur, f. 2.10 1966. Börn þeirra eru Ólöf María, Þórey Líf og Marvin Þór. Fyr- ir á Eyrún einn son, Viðar Loga, kvæntur Huldu Guð- björgu, dætur þeirra eru Katla Sjöfn, Árdís Sif og Elísa Sif. 4) Ómar Freyr, f. 21.5. 1967, kvæntur Margréti Jóns- dóttur, f. 5.8. 1959. Synir þeirra eru Kristinn Freyr og Sigurður Þór, sambýliskona hans er Sigrún og dóttir þeirra er Katrín Una. Fyrir á Margrét þrjú börn, þau eru Sigþór Ingi, Hilmar Þór og Una Dagný. 5) Birkir Þór, f. 18.11. 1976, kvæntur Svövu Ingi- marsdóttur, f. 1.11. 1976. Börn þeirra eru Helena Dís, Skúli Þór, Bjarki og Daníel. Maja og Siggi hófu fyrst búskap á Hávegi 7 (Húsabak sem kallað var í þá daga). Þau fluttu síðar á Hólaveg 16 en árið 1985 keyptu þau Suð- urgötu 57 og hafa búið þar til dagsins í dag. Maja starfaði meðal annars í mjólkurbúð- inni á Suðurgötu 4 og í eld- húsinu á gamla Sjúkrahúsinu á Siglufirði. Lengst af starf- aði hún hjá Egilssíld eða í 29 ár. Hún tók þátt í fé- lagsstörfum hjá Slysavarna- félaginu. Útför Maju fer fram í Siglufjarðarkirkju í dag, 5. september 2020, klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana verða aðeins boðsgestir við athöfnina, en útförinni verður streymt á Facebook-síðunni: María Jóhannsdóttir útför. Virkan hlekk á streymið má nálgast á https://www.mbl.is/ andlat. 10.5. 1956, sam- býliskona hans er Drífa Aradóttir. 2) Eiríkur Sævalds- son, f. 6.9. 1940, kvæntur Jónu Gígju Eiríksdóttur Maja giftist Sig- urði Þór Haralds- syni, f. 28.10. 1940, þann 10.12. 1963. Foreldrar Sigga voru Har- aldur Þór Friðbergsson, f. 19.2. 1906, d. 11.10. 1984, og Sigrún Stefánsdóttir, f. 8.12. 1905, d. 17.6. 1959. Maja og Siggi eignuðust fimm syni: 1) Jóhann Þór, f. Elsku hjartans mamma mín. Myndin um þig og minningarn- ar verða geymdar í hjarta mínu svo lengi sem það slær. Það er svo sárt að kveðja þig elsku mamma. Þú fórst alltof fljótt frá okkur. Ég sakna þess að segja mamma Ég sakna þess að heyra rödd þína Ég sakna þess að finna hönd þína Ég sakna þess að þú hughreystir mig Ég sakna þess að þú hvetjir mig Ég sakna þess að sjá þig Ég sakna þess að faðma þig Ég sakna þín elsku hjartans mamma mín Ég kveð þig nú mamma mín, ég veit að synir þínir tveir á himnum, mamma þín og pabbi taka vel á móti þér í blóma- brekkunni. Við bræðurnir pöss- um upp á pabba fyrir þig. Þinn sonur, Jóhann. Elsku mamma er fallin frá að- eins 76 ára gömul. Það er mikill missir fyrir okkur, en umfram allt er ég þakklátur fyrir ynd- islegu stundirnar og góðu minn- ingarnar sem við áttum saman. Mamma var mikil dugnaðarkona og hugsaði svo vel um alla. Mér leið alltaf svo vel að koma til ykk- ar pabba á Suðurgötuna og fór ég aldrei svangur frá ykkur. Maturinn sem þú gerðir var allt- af upp á tíu. Þú varst yndisleg móðir og vil ég þakka þér fyrir allt, sem er ómetanlegt. Elsku mamma mín, það er sárt að þurfa að kveðja þig en yndislegu minningunum mun ég aldrei gleyma, en það huggar mig að þér líður betur núna. Ég kveð þig mamma með söknuð í hjarta, en minning um faðmlag og brosið þitt bjarta. Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi og algóður Guð á himnum þig geymi. (Sigríður Sigurjónsdóttir) Þinn sonur, Birkir Þór. Í dag kveð ég tengdamóður mína, Maju eins og hún var oft kölluð. Alltaf gat ég leitað til hennar með alls konar spurning- ar tengdar ýmsum efnum líkt og uppskriftum og afmælisdögum. Tölur voru hennar mál og vissi hún alltaf hvenær fólk átti af- mæli. Meira að segja mundi hún númerið á SÍBS-miðanum mín- um og hringdi til að óska mér til hamingju með vinninginn ef hann kom. Alltaf var gott að koma á Suðurgötuna í heitt kaffi og í hreint rúm. Elsku Maja, ég og mín fjöl- skylda eigum eftir að sakna þín og við munum ávallt minnast þín. Hafðu það gott í Sumarlandinu. Um undra-geim, í himinveldi háu, nú hverfur sól og kveður jarðarglaum; á fegra landi gróa blómin bláu í bjartri dögg við lífsins helgan straum. (Benedikt Gröndal) Þín tengdadóttir, Eyrún. Elsku amma mín. Það er erfitt að hugsa til þess að ég fái ekki að sjá þig aftur. Þú varst alltaf svo hlý og góð og ég á svo margar góðar minningar með ykkur afa sem ég mun ávallt geyma á góð- um stað. Amma, þú kenndir mér svo margt í gegnum tíðina, þú kenndir mér til dæmis að prjóna, hekla og að baka. Við eigum því sameiginleg áhugamál sem verða alltaf geymd í hjörtum okkar með minningunum sem við átt- um saman. Ég er svo þakklát fyrir allar fallegu stundirnar sem við áttum saman, fyrir allt sem þú kenndir mér og fyrir alla góðvildina sem þú sýndir mér. Nú vil ég kveðja þig með bæn- inni sem við fórum alltaf saman með, elsku amma mín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Þín ömmustelpa, Þórey Líf. Elsku Maja amma, mig langar að kveðja þig með þessu fallega ljóði. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Minning þín mun lifa í hjarta mínu Þinn ömmustrákur, Marvin Þór. Elsku amma mín, það hryggir mig að þú sért farin. Ég veit að þú ert á góðum stað, þar sem þér líður vel. Við áttum einstakt samband sem mun lifa í hjarta mínu um ókomna tíð. Ég er heppin að geta sagt að ég eigi ömmu sem er bæði besta amma í heimi og besta vinkona mín. Ég kom oft í heimsókn á Suð- urgötuna þegar ég var yngri og fékk að vera hjá ykkur afa, þar leið mér best. Ég mun sakna þess að koma í hlýjuna og kök- urnar hjá þér amma mín. Ég lofa því að passa upp á afa fyrir þig. Ég get ekki lýst því hversu þakklát ég er fyrir það einstaka samband við eigum, elsku amma. Við fórum oft saman að versla og finnst mér þeir tímar svo dýr- mætir. Það var eitt skipti sem þú nenntir ekki að fara í búðir, það var daginn sem þú varðst sextug. Þú harðneitaðir pabba þegar hann bauð þér að koma með. Fjölskyldan var búin að skipu- leggja óvænta veislu fyrir þig. Á endanum fórstu í búðir og komst síðan heim í veisluna. Við höfum oft hlegið að þessu saman fjölskyldan. Við vorum alltaf bestu vinkon- ur og þú alltaf sú sem ég leitaði til. Ég hringdi í þig síðasta vetur og bað þig um að kenna mér að baka pönnukökur, þar sem ég átti að baka þær í prófi. Þú sagðir mér öll skrefin sem þú notaðir „ekki gleyma að sigta deigið tvisvar svo að ekki komi kekkir‘‘ sagðirðu. Ég æfði mig og gekk vel í prófinu, allt þér að þakka. Ég var alltaf dugleg að láta þig vita hvernig gekk í skól- anum þar sem þú varst alltaf áhugasöm. Þú vildir vita hvernig gengi hjá mér og hvattir mig til að gera betur ef illa gekk. Síðasti dagurinn þinn áður en þú lagðist inn á spítala var út- skriftardagurinn minn úr háskól- anum. Kletturinn sem stóð með mér alla skólagöngu mína. Þú ein horfðir á útskriftina í háskólan- um á meðan allir aðrir voru upp- teknir. Eftir athöfnina komum við fjölskyldan saman og borðuðum góðan mat. Ég er svo þakklát fyrir þennan dag þar sem við vorum saman í síðasta skiptið með þér, elsku amma mín. Ég veit að þú situr uppi á himnum, hvetur mig áfram líkt og þú gerðir í gegnum símann þegar við töluðum saman. Mig langar að kveðja þig með þessu fallega ljóði. Hvernig er hægt að þakka, það sem verður aldrei nægjanlega þakkað. Hvers vegna að kveðja, þann sem aldrei fer. Við grátum af sorg og söknuði en í rauninni ertu alltaf hér. Höndin sem leiddi mig í æsku mun gæta mín áfram minn veg. Ég veit þó að víddin sé önnur er nærveran nálægt mér. Og sólin hún lýsir lífið eins og sólin sem lýsti frá þér. Þegar að stjörnurnar blika á himnum finn ég bænirnar sem þú baðst fyrir mér. Þegar morgunbirtan kyssir daginn, finn ég kossana líka frá þér. Þegar æskan spyr mig ráða, man ég orðin sem þú sagðir mér. Vegna alls þessa þerra ég tárin því í hjarta mínu finn ég það, að Guð hann þig amma mín geymir á alheimsins besta stað. Ótti minn er því enginn er ég geng áfram lífsins leið. Því með nestið sem amma mín gaf mér, veit ég að gatan hún verður greið. Og þegar sú stundin hún líður að verki mínu er lokið hér. Þá veit ég að amma mín bíður og með Guði tekur við mér (Sigríður Dúa) Þín nafna, vinkona og ömmu- stelpa, Ólöf María. Ólöf María Jóhannsdóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á góðu verði Verið velkomin Opið: 11-16 virka daga Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGA HALLGRÍMSDÓTTIR, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 24. ágúst. Útförin fór fram í kyrrþey. Steinar Lúðvíksson Guðný Sigurðardóttir Sigrún Halla Árnadóttir og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLAFÍA LÁRUSDÓTTIR, Sæviðarsundi 8, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 2. september. Eiríkur Ellertsson Jóhannes Ellert Eiríksson Jódís Ólafsdóttir Lárus E. Eiríksson Gróa Karlsdóttir Kristín Eiríksdóttir Trond Solberg Guðlaug Eiríksdóttir Ólafur Stefánsson Ragnhildur Eiríksdóttir Þorgrímur Þráinsson barnabörn og barnabarnabörn Systir okkar, mágkona og frænka, GUÐBJÖRG STEFANÍA ANDRÉSDÓTTIR, Borgarbraut 65, lést í Brákarhlíð miðvikudaginn 2. september. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju fimmtudaginn 10. september klukkan 14. Vegna aðstæðna í samfélaginu er athöfnin eingöngu fyrir boðsgesti en henni verður streymt á www.kvikborg.is. Ragnhildur Andrésdóttir Ölver Benjamínsson Bragi Andrésson Júlíanna María Nielsen Jóhann Óskar Sigurðsson Friðbjörg Óskarsdóttir og systkinabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BIRNA SVAVA INGÓLFSDÓTTIR VESTMANN, lést 27. ágúst á Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 7. september klukkan 13:30. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu ættingar og vinir viðstaddir en útförinni verður streymt á: Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Inga Katrín Vestmann Kristján Þ. Kristinsson Þorvaldur Vestmann Þórdís Þórólfsdóttir Margrét Vestmann Aðalbjörn R. Svanlaugsson Valur Vestmann Vera W. Vestmann barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri BALDUR J. GUÐMUNDSSON, Bólstaðarhlíð 41, áður Álftamýri 4 í Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 1. september. Útförin verður auglýst síðar. Sigríður I. Baldursdóttir Karl S. Sigurðsson Guðmundur H. Baldursson Harpa Gunnarsdóttir Sævar B. Baldursson Sigríður O. Marinósdóttir barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.