Morgunblaðið - 05.09.2020, Side 39

Morgunblaðið - 05.09.2020, Side 39
standa í samfélaginu eigi sér ein- hvern málsvara. Svo var ekki verra hversu fjölbreytt starfið var.“ Fjölskylda Eiginmaður Guðnýjar er Jónas Þór Þórðarson, f. 4.7. 1940, fv. verk- stjóri í Silfurstjörnunni í Öxarfirði. Foreldrar hans voru hjónin Þórður Friðbjarnarson, verkamaður á Húsavík f. 7.11. 1918, d. 11.4. 1966, og Dalrós Jónasdóttir húsfreyja, f. 28.9. 1908, d. 19. febrúar 2001. Börn Guðnýjar og Jónasar eru: 1) Björn Maríus, f. 13.2. 1968, deildar- stjóri hjá Icelandic Seafood kvænt- ur Herdísi Hreiðarsdóttur þýðanda. Börn þeirra eru Jónína, f. 28.5. 1997, og Jónas, f. 10.7. 1999. Þau búa í Reykjavík. 2) Birkir Þór, f. 29. júní 1969, sölumaður hjá Norðlenska. Hann er kvæntur Hönnu Ásgeirs- dóttur kennara og eiga þau þrjú börn: Guðnýju Brynhildi, f. 3.7. 1995, í sambúð með Steini Sævarssyni sem á soninn Frosta; Ragnar, f. 15.8. 1997, í sambúð með Brynju Björns- dóttur og yngstur er Bergþór f. 7.6. 2003. 3) Kristlaug Helga, f. 21.7. 1970, hjúkrunar- og heilsuhagfræð- ingur í sambúð með Bogdan Cojoc- aru lögfræðingi. Þau eiga börnin Hrafnhildi, f. 4.8. 2006, og Hákon, f. 3.3. 2010. Systkini Guðnýjar eru Þórarinn, f. 11.7. 1940, tryggingasölumaður og þáttagerðarmaður á RÚV, búsettur í Hvammi í Húsavík, og Sigríður, f. 27.5. 1946, kennari, búsett í Hafn- arfirði. Foreldrar Guðnýjar eru Björn Haraldsson, f. 31.5.1897, d. 29.5. 1985, bóndi og kennari í Austur- görðum í Kelduhverfi, og kona hans Þorbjörg Þórarinsdóttir, f. 2.5. 1908, d. 31.3. 1991, húsfreyja. Guðný Halldóra Björnsdóttir Þorbjörg Sigmundsdóttir húsfreyja á Núpskötlu í Presthólahreppi Guðjón Jóhannesson bóndi á Núpskötlu í Presthólahreppi Kristlaug Guðjónsdóttir húsfreyja í Kollavík í Þistilfirði Þorbjörg Þórarinsdóttir húsfreyja í Austurgörðum í Kelduhverfi Þórarinn Guðnason bóndi í Kollavík í Þistilfirði, N-Þingeyjarsýslu Helga Þórarinsdóttir húsfreyja á Hóli á Melrakkasléttu Guðni Kristjánsson bóndi á Hóli á Melrakkasléttu Matthildur Torfadóttir húsfreyja í Austurgörðum Sigfús Guðmundsson bóndi í Austurgörðum Sigríður Sigfúsdóttir húsfreyja í Austurgörðum í Kelduhverfi Haraldur Ásmundsson bóndi í Austurgörðum í Kelduhverfi Kristjana Jósepsdóttir fluttist til Kanada Ásmundur Guttormsson fluttist til Kanada Úr frændgarði Guðnýjar Halldóru Björnsdóttur Björn Haraldsson bóndi og kennari frá Austurgörðum í Kelduhverfi, N-Þingeyjarsýslu DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020 STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MYNDI ÉG BORÐA ÞETTA EF ÉG ELSKAÐI ÞIG EKKI?” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera stoltasti verðandi faðir í heiminum. EKKI EYÐI- LEGGJA DAGINN ÓKEI SJÁUMST Á MORGUN ÉG VEIT AÐ ÞÉR FINNST ÞÚ SVOLÍTIÐ UTANVELTU Í SVONA FÍNU BOÐI, EN Í ALVÖRU, ÞÚ HLÝTUR AÐ FINNA EITTHVAÐ SAMEIGINLEGT MEÐ HINUM GESTUNUM! ÞEIM LÍKAR EKKI VIÐ MIG OG MÉR LÍKAR EKKI VIÐ ÞÁ! ÉG FANN ÞAÐ! „MÉR FINNST ÞETTA ÓTTALEGT HRINGSÓL HJÁ OKKUR.” Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Í gátu minni felst nú fjall. Færleik minn ég bind við stall. Hjól er einatt aftan við. Iðnir grunda námsefnið. Eysteinn Pétursson svarar: „Hér er ein ekki-svall hestavísa!“: Hestfjall lágt ég líta má. Læt ég binda hest við stall. Sit ég hjólhesti einatt á. Iðka ei lestrarhestar svall. Sigmar Ingason leysir gátuna svona: Kerruna dregur þægur klárinn Blesi. Kenna margir fjallið Hest á Snæfellsnesi. Græna taðan Skjóna mínum bragðast best. Bækur metur námshesturinn allra mest. Guðrún B. á þessa lausn: Ekki gnæfir Hestfjall hátt, en hest má setja þar í var. Hestvagn dugar dag sem nátt, ef djammar námshesturinn kátt. „Með kaffinu birtist lausnin,“ svarar Helgi R. Einarsson: Allt er gott sem endar vel og í stuðla fest. Eftir þanka þá ég tel að þessi minni’ á hest. Lausn frá kennara í Vest- urbænum: Einu sinni upp á Hest ég einn á hesti lagði. Á hjólhesti með nammi og nest ég námshest leit sem þagði. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Hestur í Borgarfirði fjall. Festi ég hestinn minn við stall. Aftan við hjól er hestur sá. Hest við lestur tengja má. Þá er limra: Hjalti er hestamaður harla mislukkaður, en býsna frár og furðu knár hans foli er ekki staður. Síðan er ný gáta eftir Guðmund nr. 44: Heilann brotið hef um stund heldur sljór og fúll í lund, flausturslega úr garði ger gáta hér á eftir fer: Hann eflaust er umdeildur maður. Aldrei sá litinn er glaður. Á sviðinu sýndur án vonar. Í sérhverra lífi margs konar. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Stolinn hestur hleypur best

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.