Morgunblaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020
KÖRFUBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Körfuknattleikskonan Margrét Kara
Sturludóttir hefur legið undir feldi
undanfarnar vikur en hún hefur
ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir
farsælan feril.
Kara, sem varð 31 árs gömul 2.
september, lék með KR síðasta vetur
en liðið fór alla leið í úrslit bik-
arkeppninnar, Geysis-bikarsins, þar
sem það tapaði fyrir Skallagrími í
Laugardalshöll.
Þá var KR-liðið í öðru sæti deild-
arinnar þegar ákveðið var að flauta
tímabilið af vegna kórónuveirunnar
18. mars síðastliðinn.
Miklar mannabreytingar hafa átt
sér stað í Vesturbænum í sumar en
Benedikt Guðmundsson lét af störf-
um sem þjálfari KR eftir síðasta
keppnistímabil og Franscisco García
tók við en hann var áður yfirþjálfari
hjá Skallagrími.
Þá eru sex af þeim átta leik-
mönnum sem spiluðu mest fyrir KR á
síðustu leiktíð farnir frá félaginu en
Danielle Rodriguez, Hildur Björg
Kjartansdóttir, Sanja Orazovic, Sól-
lilja Bjarnadóttir og Unnur Tara
Jónsdóttir eru allar horfnar á braut.
„Mig langaði alltaf að enda ferilinn
í KR þar sem mér þykir ótrúlega
vænt um þetta félag. Draumurinn
var þess vegna alltaf að láta staðar
numið þar þótt ferillinn hafi kannski
ekki enst alveg jafn lengi og ég hafði
vonað.
Að sama skapi var þetta langt frá
því að vera auðveld ákvörðun og ég
tók mér góðan og langan tíma í að
taka ákvörðun. Það er vissulega hálf-
fúlt að horfa til baka og hugsa til þess
hvernig síðasta tímabilið mitt fór
vegna kórónuveirufaraldursins. Á
móti kemur tel ég að það sé aldrei
einhver fullkominn tímapunktur til
þess að kalla þetta gott,“ sagði Kara
sem skoraði 6 stig í deildinni á síð-
ustu leiktíð og tók sjö fráköst að með-
altali.
Horfir sátt til baka
Kara á að baki farsælan feril sem
hófst með Njarðvík árið 2003 en hún
var meðal annars valin besti leik-
maður úrvalsdeildarinnar tímabilið
2011 þegar hún var leikmaður KR.
„Ég er alveg sátt við minn feril
þegar ég horfi til baka en ég við-
urkenni það líka að ég er ekki pakk-
södd. Ég á tvo stráka, fædda 2013 og
2017, og ég tók mér þriggja ára hlé
frá körfubolta eftir að ég eignaðist
þá. Munstrið á mínum ferli er því sér-
stakt að því leytinu til og ekkert endi-
lega auðvelt að koma sér í stand eftir
svona langar pásur inn á milli. Það
breytir manni að eignast barn og
maður fór ansi hratt úr því að vera
bara nýliði í einhverju liði í það að
vera allt í einu elsti leikmaðurinn með
tvö börn.
Að sama skapi finnst mér mjög
mikilvægt fyrir konur að vera með-
vitaðar um að það er vel hægt að
koma til baka eftir barnsburð og
íþróttin gefur manni alltaf jafn mikið.
Það hefði vissulega verið þægilegt ef
að maðurinn minn hefði getað gengið
með annað barnið þar sem maður
dettur aðeins úr gírnum við að koma
barni í heiminn. Það er kannski það
sem ég hugsa mest um, hvað ég hefði
þá getað gert í körfunni á meðan ég
tók mér frí, og þess vegna er ég
kannski ekki alveg södd.“
Skynsamleg ákvörðun
Þrátt fyrir að Kara hafa tvívegis
tekið sér þriggja ára hlé frá körfu-
bolta hefur hún alltaf komið til baka,
bæði með Stjörnunni og KR, og verið
á meðal bestu leikmanna deild-
arinnar.
„Þegar ég eignast eldri strákinn
minn árið 2013 flytjum við fljótlega til
Noregs þar sem mér og manninum
mínum bauðst báðum góð vinna þar í
landi. Í Kristiansand þar sem við
bjuggum var ekkert körfuboltalið og
því miður ekki einu sinni í grendinni.
En ég hafði alveg séð það fyrir mér
að spila eitthvað þar.
Við flytjum svo aftur heim 2015, ég
sem við Stjörnuna, og ári síðar verð
ég ólétt. Eftir að yngri sonur minn
kemur í heiminn íhugaði ég alvarlega
að byrja aftur en þá kemst ég inn í
MBA-nám í Háskólanum í Reykjavík
og kennslan fór fram um helgar og á
kvöldin sem hentaði illa með körfu-
boltanum.
Eftir að ég útskrifaðist í fyrra
ákvað ég að prófa og sjá hvort ég
gæti enn þá eitthvað í körfubolta,
sem við KR, og ég sé alls ekki eftir
þeirri ákvörðun. Mér finnst ómet-
anlegt að hafa spilað síðasta tímabilið
mitt með KR og þakklát fyrir alla
sem ég kynntist í gegnum stór-
veldið.“
Margrét Kara varð tvívegis Ís-
landsmeistari, með Keflavík árið
2008 og KR 2010, og tvisvar bik-
armeistari, 2007 og 2009. Þá á hún að
baki 15 A-landsleiki fyrir Ísland.
Eftirminnileg bikarúslit
„Ég man sérstaklega vel eftir bik-
arúrslitunum 2009 þegar við unnum
Keflavík. Við vorum klárlega litla lið-
ið í þeim leik og það var sérstaklega
sætt að vinna þann leik. Teitur
frændi [Teitur Örlygsson] var þjálf-
ari Stjörnunnar á þessum tíma og
hann varð bikarmeistari með liðinu
eftir sigur gegn KR í úrslitaleik.
Þetta var virkilega sætt móment
þar sem við unnum bæði með lið-
unum sem áttu ekkert að vinna sem
gerði þetta enn þá skemmtilegra. Að
vera valin í landsliðið var auðvitað
alltaf jafn mikill heiður og virkilega
eftirminnilegt.“
Kara er ósátt með hvernig málin
hafa þróast hjá KR að undanförnu.
„Það er ekki hægt að segja neitt
annað en að síðasta tímabil hafi geng-
ið mjög vel hjá KR-liðinu. Valur var
auðvitað með frábært lið, en við átt-
um klárlega séns gegn þeim sem og
öðrum liðum og vorum með lið sem
hefði getað barist um titilinn að mínu
mati. Eftir á að hyggja er sárt að hafa
ekki getað klárað þetta á titli.
Mér þykir leitt að segja það en
landslagið í KR er hins vegar allt
annað í dag, með fullri virðingu fyrir
þeim leikmönnum sem eru þar núna.
Hugmyndafræðin er ekki sú sama og
á síðustu leiktíð og það má alveg setja
spurningarmerki við það af hverju
þetta endar alltaf svona hjá félaginu
með reglulegu millibili.
Það er fullt af góðu fólki í stjórn
körfunnar í KR sem ætlar að koma
þessu á annað level sem er mjög göf-
ugt og spennandi verkefni. Ég sé mig
alveg koma eitthvað að því verkefni
seinna meir ef ég hef tök á en kannski
ekki strax þar sem ég er nýhætt en
get þá vonandi látið finna fyrir mér
þar þótt það sé ekki inni á vellinum.
Þegar allt kemur til alls er ótrúlega
sorglegt að fylgjast með þessu gerast
aftur og aftur, hvort sem maður er í
liðinu eða stendur fyrir utan það.“
Kara ítrekar að þrátt fyrir brott-
hvarf sterkra leikmanna hefði verið
hægt að fylla þeirra skörð.
„Liðið er í 1. deild þegar Benni tek-
ur við þessu árið 2017 og þá næst frá-
bær árangur á stuttum tíma. Þjálfari
eins og Benni er klárlega ákveðið að-
dráttarafl fyrir aðra leikmenn. Án
þess að tala niður þá frábæru leik-
menn sem ákváðu að fara annað, þá
ætti það ekki að vera óyfirstíganlegt
að „recruita“ og semja við nýja leik-
menn í stað þeirra.
Svona hlutir gerast í körfubolta og
öðrum íþróttum og þetta er einfald-
lega hluti af leiknum, að þjálfarar og
leikmenn rói á önnur mið. Það ætti
ekki að líta á þetta eins og einhver
endalok því þetta er daglegt brauð í
þessum bransa. Á svona tímum þurfa
stjórn og aðrir leikmenn að stíga upp,
vinna sína vinnu, og finna aðra leik-
menn í stað þeirra sem fóru.
Ég veit ekki hvernig sú vinna fór
fram núna, hvort einhverjir hafi sofn-
að á verðinum eða hvort það var
verkefnaskiping sem fór á mis, en
ljóst er að sú vinna bar alla vega ekki
tilsettan árangur.“
Margir áhrifavaldar
Kara viðurkennir að hún hefði
hæglega getað hugsað sér að taka
annað tímabil ef það hefði verið stað-
ið öðruvísi að hlutunum.
„Já ég hugsa að ég hefði alveg tek-
ið annað ár ef aðstæðurnar væru
öðruvísi. Ég íhugaði sannarlega að
taka slaginn í vetur og það er mjög
stutt síðan ég ákvað á mínum for-
sendum að þetta væri komið gott.
Það eru mörg atriði sem spiluðu inn í
þessa ákvörðun mína. Eins er fjöl-
skyldulífið dýrmætt og fyrirtækj-
arekstur tekur sinn toll.
Þó að ég sé sátt og mér er létt að
hluta til að hafa tekið þessa ákvörðun
þá er ég líka sorgmædd og sakna
innilega körfuboltans. En ég ætla
mér að gefa til baka því boltinn hefur
gefið mér helling og það er kannski
næsta verkefni hjá mér, að reyna á
annan hátt að leggja hönd á plóg, þó
svo að það sé ekki endilega inni á vell-
inum. Ég elska körfubolta og ætla að
berjast fyrir hann,“ bætti Margrét
Kara við í samtali við Morgunblaðið.
Ætlar að berjast fyrir
kvennakörfuna í KR
Margrét Kara Sturludóttir hefur lagt skóna á hilluna eftir sautján ára feril
Morgunblaðið/Hari
Hætt Margrét Kara Sturludóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Knattspyrnudeild Fjölnis hefur
gengið frá samningi við Englend-
inginn Jeffrey Monakana og mun
hann leika með liðinu út tímabilið.
Monakana lék síðast með Dulwich
Hamlet í sjöttu efstu deild Eng-
lands. Verður Fjölnir sautjánda lið-
ið sem Monakana leikur með, þrátt
fyrir að hann sé aðeins 26 ára.
Fjölnir er í botnliði Pepsi Max-
deildarinnar með aðeins fjögur stig
eftir tólf leiki. Monakana er uppal-
inn hjá Arsenal og hefur leikið með
liðum á borð við Preston og Brig-
hton.
Fjölnir verður
sautjánda liðið
Morgunblaðið/Þórir Tryggvason
Þjálfarinn Ásmundur Arnarsson
þjálfar botnlið Fjölnis.
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea
gekk í gær frá kaupum á þýska
landsliðsmanninum Kai Havertz á
71 milljón punda. Skrifar hinn 21
árs gamli Havertz undir fimm ára
samning við Chelsea.
Havertz er einn efnilegasti leik-
maður heims og næstdýrasti leik-
maðurinn í sögu Chelsea á eftir
markverðinum Kepa Arrizabalaga
sem kostaði 71,6 milljónir punda.
Havertz skoraði 18 mörk í 45
leikjum fyrir Leverkusen á síðustu
leiktíð. Er hann sjöundi leikmað-
urinn sem Chelsea kaupir í sumar.
Sá næstdýrasti í
sögu Chelsea
AFP
Dýr Kai Havertz fer frá Leverkusen
í heimalandinu til Chelsea.
U21 karla
Riðlakeppni EM 2021:
Ísland – Svíþjóð........................................ 1:0
Sveinn Aron Guðjohnsen 65.
4. deild karla A
Uppsveitir – KFS ..................................... 0:4
GG – Vatnaliljur ....................................... 4:2
Ýmir – ÍH .................................................. 0:3
Staðan:
KFS 13 9 2 2 45:15 29
ÍH 13 9 1 3 67:18 28
Ýmir 12 8 1 3 49:17 25
Léttir 12 7 1 4 24:33 22
GG 12 6 1 5 30:28 19
Vatnaliljur 13 3 2 8 26:38 11
Uppsveitir 13 3 0 10 14:40 9
Afríka 12 1 0 11 8:74 3
4. deild karla B
SR – Kormákur/Hvöt............................... 4:3
Staðan:
Kormákur/Hvöt 11 8 1 2 43:12 25
KFR 11 7 3 1 43:13 24
SR 10 6 2 2 29:18 20
Stokkseyri 9 4 2 3 19:15 14
Björninn 10 3 2 5 11:14 11
Álafoss 9 1 1 7 10:29 4
Snæfell 10 0 1 9 7:61 1
4. deild karla D
KB – Hörður ............................................. 4:3
Staðan:
Kría 12 9 3 0 48:23 30
KH 11 8 1 2 37:16 25
Árborg 12 7 2 3 42:19 23
Smári 13 6 1 6 24:31 19
Hvíti riddarinn 12 6 0 6 31:26 18
KB 13 4 1 8 30:47 13
Hörður Í. 12 2 1 9 25:36 7
Mídas 13 1 3 9 19:58 6
Katar
Al Khor – Al-Arabi .................................. 1:1
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar
liðið.
Þjóðadeild UEFA
A-DEILD:
1. riðill:
Ítalía – Bosnía........................................... 1:1
Holland – Pólland ..................................... 1:0
B-DEILD:
1. riðill:
Noregur – Austurríki............................... 1:2
Rúmenía – N-Írlandi................................ 1:1
B-DEILD:
2. riðill:
Skotland – Ísrael ...................................... 1:1
Slóvakía – Tékkland................................. 1:3
C-DEILD:
4. riðill:
Litháen – Kasakstan................................ 0:2
Hvíta-Rússland – Albanía ....................... 0:2
Danmörk
Aalborg – Kolding............................... 40:27
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
Ágúst Elí Björgvinsson varði 5 skot í
marki liðsins.
GOG – Lemvig...................................... 35:28
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 8 skot í
marki GOG.
NBA-deildin
Austurdeild
Úrslitakeppni, 2. umferð:
Boston – Toronto .............................. 103:104
Staðan er 2:1 fyrir Boston.
Vesturdeild
Úrslitakeppni, 2. umferð:
LA Clippers – Denver ....................... 120:97
Staðan er 1:0 fyrir Clippers.
KNATTSPYRNA
Þjóðadeild UEFA:
Laugardalsvöllur: Ísland – England .....L16
Pepsí Max-deild karla:
Extravöllurinn: Fjölnir – Breiðablik .....L13
Pepsí Max-deild kvenna:
Würthvöllurinn: Fylkir – Þór/KA ..........S14
Jáverksvöllurinn: Selfoss – Stjarnan.....S14
Kaplakriki: FH – KR...............................S14
Origovöllurinn: Valur – ÍBV ...................S14
Eimskipsv: Þróttur – Breiðablik .......S19:15
Lengjudeild karla:
Fjarðabyggðarh: Leiknir – AftureldingS14
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Vestri ......S14
Ólafsvík: Víkingur Ó. – Magni ................S16
Domusnovavöllur: Leiknir R. – Fram ...S16
2. deild karla:
Eskjuvöllur: Fjarðabyggð – Selfoss ......S14
Nesfiskvöllur: Víðir – Dalvík/Reynir .....S14
Hertzvöllurinn: ÍR – Kári .......................S16
Framvöllur: Kórdrengir – Haukar ...S19:15
UM HELGINA!