Morgunblaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 41
FÓTBOLTI Kristján Jónsson Bjarni Helgason Karlalandslið Íslands og Englands í knattspyrnu eigast við í dag á Laug- ardalsvellinum klukkan 16 í Þjóða- deild UEFA. Harry Kane, fyrirliði Englend- inga, sagði á blaðamannafundi í gær, að tapið gegn Íslandi á EM 2016 hafi verið eitt hið versta á ferlinum. Kane var í byrjunarliði enska liðsins og var að taka þátt í sínu fyrsta stórmóti. „Þetta er eitt versta kvöld sem ég hef upplifað í landsliðstreyjunni. Ég lærði mikið af þessum leik og auðvit- að á mínu fyrsta stórmóti. Ég var óreyndur, bæði með landsliðinu og félagsliði mínu ef svo má segja. Við höfum hins vegar þroskast mikið og bætt okkur síðan þá. Að sama skapi er þetta leikur sem maður gleymir aldrei og ég horfi reglulega til baka og hugsa hvað hefði mátt betur fara.“ Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, sagðist einnig hafa dregið lærdóm af tapinu gegn Ís- landi jafnvel þótt hann hafi þar enga ábyrgð borið. Hann tók við stjórn- artaumunum nokkru síðar. „Við kíktum á nokkur brot úr tveimur til þremur leikjum sem liðið hafði áður spilað, skömmu eftir að ég tók við,“ sagði þjálfarinn á blaða- mannafundinum í gær. „Það sem mér fannst liðið geta lært einna mest eftir leikinn gegn Ís- landi var þolinmæðin sem maður þarf að sýna þegar maður lendir undir í knattspyrnuleikjum. Í venju- legum undirbúningi eru liðin jöfn, 0:0, en svo vill maður ekki endilega hugsa til þess að lið okkar geti lent undir. Það getur hins vegar alltaf gerst og er bara hluti af fótboltanum. Á undanförnum árum höfum við bætt allar ákarðanatökur og eins er- um við mun þolinmóðari nú en áðir. Ef við lendum undir höldum við áfram að spila okkar leik, sama hvað,“ bætti Southgate við. „Hjálpar okkur ekki“ Leikur liðanna í dag er sá fyrsti í 2. riðli A-deildar Þjóðadeildarinnar en síðar í dag mætast Danmörk og Belgía sem einnig eru í riðlinum. Í framhaldinu fer íslenska liðið til Belgíu og leikur þar á þriðjudag. Engir áhorfendur eru leyfðir á leikj- um á vegum UEFA um þessar mundir og Íslendingar njóta því ekki heimavallarins að ráði. „Þetta hjálpar okkur ekki. Það er alltaf gaman að spila fyrir framan fólk hér heima og við töpum ekki oft á Laugardalsvelli. Við þurfum á stuðningi að halda gegn stóru liði eins og þessu og því væri gott að hafa áhorfendur með sér í liði,“ sagði mið- vörðurinn Kári Árnason á blaða- mannafundi í gær. Erik Hamrén, landsliðsþjálfari Ís- lands, getur ekki teflt fram mörgum fastamönnum eins og Alfreð Finn- bogasyni, Aroni Einari Gunnarssyni, Gylfa Þór Sigurðsson, Jóhanni Berg Guðmundssyni og Ragnari Sigurðs- syni svo einhverjir séu nefndir. „Ég óttast ekki andstæðinginn. Ef ég myndi gera það þá ætti ég að hætta í boltanum. En maður verður að bera virðingu fyrir getu andstæðinganna. Fótboltinn getur verið undarlegur eins og við sáum á úrslitum Bayern og Barcelona á dögunum,“ sagði Hamrén á fundinum í gær.  Fleiri fréttir af landsleiknum er að finna á mbl.is/sport og þar verður honum lýst atvikalýsingu í dag. Auk þess er að finna upprifjun á við- ureign Íslands og Englands í Reykjavík árið 1982 í Sunnudags- Mogganum sem kom út í morgun. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Taktfast Arnór Ingvi Traustason, Hjörtur Hermannsson og Jón Guðni Fjóluson liðka sig á landsliðsæfingu á Laugardalsvelli í gær. Segjast hafa lært af tapinu  Úrslitin á EM 2016 til umræðu í gær  Hamrén óttast ekki andstæðinginn ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020 Ég las á BBC-vefnum í gær að Lionel Messi hafi sent fax til FC Barcelona á dögunum þegar hann óskaði eftir því að yfirgefa félagið. Fax? Bakvörður dagsins er sannarlega ekki fyrsti maðurinn sem hoppar á vagninn þegar fyrirtæki kynna nýja framleiðslu í snjalltölvum, snjallsímum, snjall- sjónvörpum, snjallúrum og snjallskóreimum. En meira að segja ég klóraði mér í höfðinu yf- ir þessu. Fax? Getur verið að þetta sé út- pælt? Erlend slúðurblöð eru lík- leg til að hlera síma hjá heims- frægu fólki og hakka sig inn í tölvurnar. Ekkert virðist fólki heilagt á þeim bænum eins og dæmin sanna. En hvernig ætla óprúttnir að hakka sig inn í fax- tækin? Er það hægt? Fleiri hnutu um þetta í heims- fréttunum í gær og varð þetta til- efni skrifa hjá kunningjum mín- um á Facebook. „Er hann með faxtæki heima hjá sér? Það er einhver saga þarna að baki sem væri gaman að heyra. Það sendir engin fax í dag nema... ja nema eitthvað sem ég veit ekki en langar að vita!“ Þessi kunningi minn hefur tek- ið sér alls kyns formennsku og varaforsetasetu í gegnum tíðina. Hann ætti því að vita eitt og ann- að um samskipti. „Nú hringir þú Kristján í Messi og spyrð hann af hverju hann noti fax.“ Ég tjáði honum eins og satt er að það sem kemur í veg fyrir að Lionel Messi ræði við mig um notkun sína á tækjum og tólum sé að hann talar ekki orð í ensku og ég ekki orð í spænsku. Reyndar slípast ég aðeins til í spænskunni ef ég fæ mér oggu- lítið söngvatn en samt ekki nærri nóg til að ræða við Messi um snjallfaxtækin. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Guðmundur Ágúst Krist- jánsson er í öðru sæti eftir tvo hringi á Opna norðurírska mótinu í golfi. Er mótið hluti af Áskorendamóta- röð Evrópu. Guð- mundur lék á 67 höggum í gær, þremur höggum undir pari og er samtals á fimm höggum undir pari eftir tvo hringi, einu höggi á eftir Ítalanum Enrico Di Nitto. Andri Þór Björnsson er í 45. sæti á tveimur höggum yfir pari og Haraldur Franklín Magnús í 59. sæti á þremur yfir pari. Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir féll niður um átta sæti á milli hringja á Flumserberg Ladies Open-mótinu í Sviss. Er mót- ið hluti af LET Access-mótaröðinni. Guðrún lék annan hring mótsins í gær á 72 höggum, eða á pari og er samtals á þremur höggum undir pari eftir afar góðan hring á fimmtu- dag. Hringurinn hjá Guðrúnu var skrautlegur í gær og fékk hún fimm fugla og fimm skolla. Er hún í 13. sæti og fór auðveldlega í gegnum niðurskurðinn. Guðmundur í öðru sæti á N-Írlandi Guðmundur Ágúst Kristjánsson Í VÍKINNI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslenska U21 árs landslið karla í fótbolta vann í gær afar huggulegan 1:0-sigur á Svíþjóð í und- ankeppni EM á Víkingsvelli. Sveinn Aron Guð- johnsen skoraði sigurmarkið er hann negldi bolt- anum í netið með enninu eftir hornspyrnu frá Ísak Bergmann Jóhannessyni. Svíþjóð vann leik lið- anna á heimavelli sínum fyrir ári síðan 5:0 og var sigurinn því sérstaklega sætur. Ísland er í þriðja sæti riðilsins, fjórum stigum á eftir Írlandi sem er í toppsætinu. Um sannkallaðan liðssigur var að ræða þar sem margir í íslenska liðinu spiluðu vel og gerðu sænska liðinu erfitt fyrir. Íslenska liðið var mjög aftarlega stærstan hluta leiks og gekk Svíum illa að spila sig í gegnum vörnina. Sænska liðið varð óþolinmótt, hætti að spila sinn leik og beitti þess í stað mikið af löngum boltum fram völlinn, sem varnarmenn Íslands áttu ekki í vandræðum með. Hægt en örugglega spilaðist leikurinn í hend- urnar á íslenska liðinu. Svíarnir urðu pirraðir og fyrirliðinn þeirra Viktor Gyökeres fékk beint rautt spjald á 61. mínútu fyrir að gefa Alex Þór Haukssyni olnbogaskot. Íslenska liðið nýtti sér liðsmuninn og sigurmarkið kom aðeins fjórum mínútum síðar. Leikplanið gekk fullkomlega upp, íslenska liðið var sterkt í vörn, gaf fá færi á sér og nýtti eitt af fáum færum sínum vel. Ísak Óli Ólafsson og Ró- bert Orri Þorkelsson voru virkilega sterkir í miðri vörninni, Patrik Sigurður Gunnarsson öruggur í markinu og þeir Alex Þór Hauksson, Stefán Teit- ur Þórðarson og Willum Þór Willumsson gerðu ágætlega á miðjunni. Það var hins vegar hinn 17 ára gamli Ísak Bergmann Jóhannesson sem stal senunni. Það tók Ísak um 25 mínútur að losna við skrekkinn, en eftir það var hann besti leikmaður Íslands og lagði upp sigurmarkið. Ísak getur orðið rosalega góður. Var frammistaða hans sér- staklega góð ef litið er til þess að Hörður Ingi Gunnarsson átti ekki góðan leik fyrir aftan hann í vinstri bakverðinum. Ísak hjálpaði mikið til í vörn- inni, en fékk ekki alltaf boltann í góðum hlaupum þar sem Hörður sá hann ekki eða treysti sér ekki í sendinguna. Valgeir Lunddal Friðriksson hlýtur að gera tilkall í byrjunarliðið í næsta leik. Þar fyr- ir utan var frammistaðan og uppleggið afar gott og draumurinn um sæti á EM lifir enn. Leikplanið gekk fullkomlega  Íslenska U21 árs liðið lagði Svía  Draumurinn um sæti á EM enn lifandi Morgunblaðið/Eggert Hetjan Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði sigurmarkið gegn Svíum á Víkingsvellinum í gær. Þór/KA gekk í dag frá samningi við enska framherjann Georgia Ste- vens. Kemur Stevens frá Hudd- ersfield Town í heimalandinu, en hún er tvítug. Stevens gerði sinn fyrsta atvinnumannasamning við Sheffield United þegar hún var að- eins 18 ára en hún spilaði þar á und- an með varaliði Blackburn Rovers og unglingaliðum Liverpool og Everton. Þór/KA er í sjöunda sæti Pepsi Max-deildarinnar með ellefu stig eftir ellefu leiki og þá tryggði liðið sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í vikunni. Akureyringar styrkja sóknina Morgunblaðið/Þórir Tryggvason Styrkur Þór/KA samdi við enskan framherja fyrir komandi átök. Knattspyrnukappinn Lionel Messi greindi frá því í viðtali við Goal- .com í gær að hann yrði áfram í herbúðum FC Barcelona. Messi sendi félaginu fax fyrir tíu dögum og óskaði þá eftir því að fá að róa á önnur mið. Í samningi hans var klausa um að hann gæti farið á frjálsri sölu ef hann óskaði eftir því fyrir 10. júní. Tímabilinu lauk hins vegar í ágúst og félagið segir klaus- una útrunna. Messi segist ekki ætla að fara með málið fyrir dómstóla og hefur ekki trú á að nokkurt félag vilji greiða uppsett verð fyrir hann. Verður áfram hjá Barcelona AFP Barcelona Lionel Messi hefur ekki spilað fyrir annað félag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.