Morgunblaðið - 05.09.2020, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 05.09.2020, Qupperneq 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2020 GMC Denali Litur: Silver/ Dark walnut að innan. 2020 GMC Denali, magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. Skjáir í hauspúðum, gúmmimottur, sóllúga. VERÐ 13.290.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 GMC Denali Ultimate Litur: White frost/svartur að innan. Magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. Skjáir í hauspúðum, gúmmimottur, sóllúga. Samlitaðir brettakantar. Tveir alternatorar. VERÐ 13.875.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Svartur/ Svartur að innan. Magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. Skjáir í hauspúðum, dráttarbúnaður í palli, motta í palli, samlítaðir brettakantar, sóllúga. VERÐ 13.875.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 Ford F-350 XLT Litur: Silver/ Grár að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque, 4X4, 10-speed Automatic transmission, 6-manna. Heithúðaður pallur. VERÐ 11.290.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Það er súrefni í þessum verkum. Og heitið vísar líka til loftsins á milli þeirra. Ég vinn út frá rýminu þegar ég set upp sýningar og hér leik ég mér með það hvernig áhorfið flakk- ar milli verkanna í rýminu,“ segir myndlistarkonan Margrét H. Blön- dal þegar spurt er um heiti sýningar hennar, Loftleikur – Aerotics, en hún var opnuð í i8 galleríinu við Tryggvagötu á fimmtudaginn var. „Mér fannst líka skemmtilegt að vera með titil bæði á íslensku og ensku í stað þess að þýða hann beint og tikkið í enska heitinu bætir smá broddi inn í loftið,“ bætir hún við. Á sýningunni setur Margrét fram innrammaðar teikningar og skúlp- túra sem hún mótaði í rýminu úr viðkvæmnislegum efnivið eins og hún er þekkt fyrir að nota. Þau Ásmundur Hrafn Sturluson arkitekt hittust fyrr á árinu í því augnamiði að koma með hugmyndir að inngripi í rýmið og það varð úr að teygja súluna í báðar áttir þannig að nú er kominn veggur sem Ásmund- ur teiknaði upp. Eins og Margrét bendir á verður veggurinn eins og „objekt“ í sjálfu sér. Hann blokkerar alltaf hluta af sýningunni en býr um leið til nýtt sjónarhorn sem verður eins og rammað inn. Skúlptúrar eins og teikningar „Hér leik ég mér með skúlptúr- íska eiginleika sem eru í teikning- unum ásamt teiknieiginleikum skúlptúranna,“ segir hún. „Það er snúnara fyrir mig að vinna með báða miðlana saman í stað þess að vera eingöngu með annað formið því í svona innsetningu verður hver þátt- ur að hafa hlutverk og engu má vera ofaukið. Veggurinn hvetur áhorf- andann til að hreyfa sig og þar birt- ast skúlptúrarnir eins og teikningar með hvíta rýmið í kringum sig.“ Í tengslum við sýninguna hefur Margrét í samvinnu við útgáfufél- agið J9 gert fjölfeldisverkið Fingra- bjarg ~ A Bundle of Birthmark í 75 eintökum. Það er kassi með stökum ljósmyndum og textum á misstórum örkum sem stilla má fram og njóta með margvíslegum hætti. Vissi ekki hvað yrði Samstilling verkanna á sýningu Margrétar er vægast sagt hárfín og athyglisvert jafnvægi milli þrívíðu verkanna, sem eru til að mynda úr tré, svampi og textílefnum, og teikn- inganna sem eru einfaldar en heillandi myndir úr vatnslit, litadufti og ólífuolíu þar sem á stundum virð- ist vísað til þekkjanlegra fyrir- mynda, án þess að ljóst sé hvað það er. „Ég kom hér inn með dót úr þeim sarpi sem ég á að moða úr,“ segir Margrét og bætir við að hún hafi heldur ekki verið búin að velja endanlega hvaða teikningar hún myndi sýna. Hún tók tólf með sér í salinn og hugðist sýna hluta þeirra. „Og svo byrjaði ég bara að stilla upp hér, eins og ég geri alltaf, og eitt leiðir af öðru. Þótt ég sé komin með talsverða reynslu af svona upp- setningu, þá er ógjörningur að sjá fyrir hvað verður. Ég skynja ekki rými samkvæmt flatarmálsteikn- ingum og mér er ómögulegt að búa til skissu á undan því ég hef ekki hugmynd hvaða þrívíðu verk koma til með að fæðast. Ég þarf að fá að vera inni í rýminu með efniviðinn í höndunum. Um leið og einn hlutur hefur verið settur upp fer hann að hafa áhrif á aðra. Það er með þessa hluti eins og einstaklinga; það er mismunandi dýnamík á milli þeirra, mismunandi neistar. Veggurinn varð líka að hafa virkt hlutverk. Eins og dýr í leit að bráð Í ferlinu miðju, þegar ég fann að innsetningin var tekin að myndast, þurfti ég að fara af stað að afla mér meira efnis. Það er öðruvísi að afla efnis í Reykjavík og ég þurfti að gæta mín á því að það yrði ekki rof á vinnuferlinu. Í öðrum löndum hef ég látið mig ráfa um ókunn stræti þar sem gjarnan eru verkstæði eða vöruúrval í göngufæri en hug- myndin um að fara í bíl og keyra inn í úthverfi getur orðið of flókin. Mér hugnast að reyna að nýta það efni sem ég er með því allt hefur mögu- leika en svo skerpist fókusinn og ég verð eins og dýr í leit að bráð – ég fann til dæmis dýrmæti uppi á eigin háalofti og svo hjá bólstrara nokkr- um. Mestu töfrarnir verða oft í hinu hversdagslega, það tekur bara tíma að fínstilla sig svo umbreytingin geti átt sér stað.“ Það vakti athygli í viðtali við Mar- gréti sem kom út í bók sem gefin var út af norrænu listkaupstefnunni CHART á dögunum, að hún segist alltaf horfa á ljósmyndir meðan hún skapar vatnslitaverkin. „Já, það er satt. Og þessar ljós- myndir eru eins og akkeri. Ég renni augunum yfir eigin myndir, blöndu af fjölskyldumyndum og svo svip- myndum sem eru teknar á ferð minni um bæ og sveitir þangað til ég sé möguleika í einhverju og það get- ur verið hvað sem er; ákveðinn litur, hárbrúskur, sölnað blóm, eyrna- snepill, rafmagnssúra, gárur á vatni, bókastafli og svo er ég endalaust að sjá eitthvað nýtt í þeim myndum sem ég hef þegar horft á.“ Finnur til með skúlptúrunum Er Margrét að lýsa því að við skoðun á atriðum í ljósmyndum finni hún þá einbeitingu sem þarf til að skapa vatnslitaverkin? „Jú, með því að horfa á eitthvað verður til tenging og um leið verð ég frjálsari í vinnuferlinu,“ segir hún. „Vinnuferlið snýst svo um að blanda litinn, finna réttu þykktina eða áferðina, velja þann pensil sem hentar hverju sinni, er hann flatur og stífur eða fínlegur? Stundum sný ég honum við og nota oddinn til að krafsa með. Áslátturinn í hendinni skiptir líka máli; stundum er eins og ég strjúki með penslinum, stundum reyni ég að gera samfellda línu, stundum er hún hæg, stundum ákveðin, ég get snúið ljósmyndinni við og svo leysist hún bara upp, teikningin verður til og ég gleymi hvað ég var að horfa á. Á Íslandi vinn ég yfirleitt heima en fyrir þessa sýningu var ég svo heppin að fá vinnustofu til afnota í sumar. Mér finnst gott að ganga áð- ur en ég byrja að teikna, hreyfa mig og teygja og svo dvel ég ekkert endilega mjög lengi á vinnustofunni heldur kem mér beint að verki. Sumir dagar eru góðir og það fæð- ast kannski nokkrar teikningar en aðrir dagar eru seigfljótandi og mér finnst ég vera að endurtaka mig. Þá þarf að hrista upp í ferlinu, endur- raða teikningunum sem þegar eru komnar upp á vegg, fara út, lesa bók, hitta fólk, skúra gólfið eða gera eitthvað sem færir manni nýjan vinkil á sjónarhornið.“ Innsetningar Margrétar eru svo hárnákvæmar og fínlegar að sú spurning vaknar hvernig henni finn- ist að sjá stök verk seld og mögu- lega enda í allt annars konar um- hverfi. Brosandi svarar hún að sér finnist það ekki óþægileg tilhugsun. „Sumir skúlptúranna eru reyndar svo við- kvæmir að ég finn til með þeim – en ég er ekkert sérlega söluhá skúlp- túrgerðarkona.“ Og brosið breikkar. „Reyndar varð ég fyrir ánægju- legri reynslu í New York þar sem safnari sem hafði keypt lítinn skúlp- túr vildi að ég setti hann upp á heim- ili sínu. Þegar ég kom var allt krökkt af verkum frá gólfi til lofts svo ég gat varla greint auðan blett og klóraði mér aðeins í hausnum yfir verkefninu. En jafnvel þótt hver flötur væri nýttur mátti greina ástríðu hennar fyrir myndlistinni í því hversu haganlega henni hafði tekist að blanda saman ólíkum verk- um. Í því samhengi vissi hún auðvit- að miklu betur en ég hvar nýja verk- ið nyti sín og fann því fullkominn stað. Í sýningarsalnum gegnir öðru máli. Hér er ég að stilla salinn í þeirri von að verk og rými myndi órjúfanlega heild. Þar er ekki hægt að gefa neinn afslátt – ef eitthvað er ekki rétt þá er ég ómöguleg og get ekki á heilli mér tekið.“ Morgunblaðið/Einar Falur Skaparinn „Það er með þessa hluti eins og einstaklinga; það er mismunandi dýnamík á milli þeirra,“ segir Margrét. Mestu töfrarnir í hinu hversdagslega  Í sýningu sinni í i8 galleríi vinnur Margrét H. Blöndal með teikningar og skúlptúra sem hún setti saman í rýminu  „Um leið og einn hlutur hefur verið settur upp fer hann að hafa áhrif á aðra“ Ónefnd Ný teikning eftir Margréti á sýningunni; vatnslitur, litarefni og ólífuolía á pappír, 44,5 x 34,5 cm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.