Morgunblaðið - 05.09.2020, Qupperneq 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Ekkert er sorglegra en manneskjan
nefnist ný ópera sem verður frum-
sýnd annað kvöld í Tjarnarbíói.
Óperan er eftir tónskáldið Friðrik
Margrétar-Guðmundsson og Adolf
Smára Unnarsson sem leikstýrir
einnig uppfærslunni. „Ný kynslóð
sviðslistafólks brýst fram á sjónar-
sviðið með gáskafullum leik að bæði
efni og formi. Fjórar fígúrur ráfa um
sviðið, þær leita að merkingu og velta
því fyrir sér hvað færir þeim ánægju.
Fátt virðist þó um svör, enda er ekk-
ert sorglegra en manneskjan. Fígúr-
urnar beita öllum tiltækum ráðum en
ekkert virðist virka. Þær eru eftir
allt saman bara manneskjur – og
ekkert er sorglegra en manneskjan,“
segir um verkið á vef Tjarnarbíós og
að lífið sé bæði harmrænt og hrylli-
lega fyndið ferðalag og ein stór von-
brigði. Allt muni þó vonandi reddast.
Unnu út frá myndum
Adolf og Friðrik eru spurðir hvort
verkið og sýningin eigi sér langa
sögu og segir Friðrik að hugmyndin
hafi sprottið fram þegar þeir voru að
vinna að lokaverkefni Adolfs við
sviðshöfundabraut Listaháskóla Ís-
lands í fyrravor. Adolf segir að þá
hafi þeir unnið út frá hans texta og
Friðrik samið tónlist við verkið. „Við
vorum með leikara og mesta fúttið
var að láta þá syngja kirkjutónlist.
Við vildum snúa þessu við, hafa tón-
listina meira aðalatriðið,“ útskýrir
Adolf. Útskriftarverkið hafi því ekki
verið ópera en vinnuferlið var hins
vegar annað þegar kom að henni.
„Texti og tónlist voru unnin samhliða
en vanalega er það þannig að óperu-
tónskáldið fær líbrettóið,“ útskýrir
Adolf og Friðrik segir þá hafa kastað
á milli sín hugmyndum. „Ég samdi
kannski eitthvað og sýndi honum og
svo vorum við mjög lengi að vinna í
myndunum, því sem er að gerast á
sviðinu. Þannig að tónlistin er samin
út frá sviðsetningunni og textarnir
mikið til líka,“ segir Friðrik.
Þeir segja byrjunarpunktinn því
hvorki texta né tónlist heldur hug-
myndina og þær myndir sem þeir sáu
í huga sér. Hvor hafði svo áhrif á
sköpunarverk hins í ferlinu. „Það
sem er oft svo óþægilegt við óperur
er að þegar þú setur þær á svið ertu
búinn að festa tímann í þeim því það
eru bara ákveðið margir taktar af
efni. Okkur fannst heillandi að geta
unnið meira fljótandi með það, stytt
eitt og lengt annað. Á síðustu mán-
uðum vorum við mikið að bæta við
mínútum í tónlistinni eða klippa eitt-
hvað út,“ útskýrir Friðrik.
Fylgja ekki sögu eða persónum
Adolf segir óperuna póstdrama-
tískt verk. „Við fylgjum ekki línu-
legri sögu eða persónum með nöfn
eða einkenni. Þetta eru samtengd at-
riði sem tengjast einhverri hugmynd
og þegar við komum þeim saman
mynda þau ákveðna heild. Tónlistin
er með sína sögu, textinn með sína
merkingu og leikmynd og ljós sömu-
leiðis. Þegar allt kemur saman
myndar þetta ákveðna heild sem við
bjóðum áhorfandanum að skynja.
Hann getur túlkað textann og upp-
lifað tónlistina sem hefur líkamleg
áhrif. Við erum að leika okkur með
þetta,“ segir Adolf. Fjórar mann-
eskjur ráfi um sviðið, klæddar ferða-
mannafötum, og einstaka sinnum
bresti þær í söng, óperusöng, flytji
hugleiðslutexta eða geri jógaæfingar.
Þar eru á ferð söngvararnir Dagur
Þorgrímsson, Heiðdís Hanna Sigurð-
ardóttir, María Sól Ingólfsdóttir og
Ólafur Freyr Birkisson.
– Þetta er leikur að gömlu formi?
„Þetta er leikur með óperuna,
óperan er skilgreint form og við er-
um algjörlega að brjóta upp á það en
höldum samt í klassísk element,“
svarar Adolf og nefnir sem dæmi
hinn klassíska kór sem er bein vísun í
gríska harmleikinn. Tónlistin er svo
melódísk og falleg, innblásin af mið-
alda- og kirkjutónlist, að sögn Frið-
riks. „Það er líka skemmtilegt að
skoða því oft þegar maður hugsar um
óperuna hugsar maður um hana
samhliða kirkjutónlist, það er að
segja í sögulegu samhengi, en þetta
blandast sjaldan nema í einstaka at-
riðum í klassískum óperum. Það er
gaman að vinna með það,“ segir
Friðrik en hann er píanóleikari í
grunninn, nam tónsmíðar við LHÍ og
útskrifaðist ári á undan Adolf.
Rótað í ruslahaug tungumálsins
– Þessi titill, Ekkert er sorglegra
en manneskjan, það fyrsta sem mér
datt í hug var að þetta væri meló-
dramatískt gamanverk …
„Já, ég myndi lýsa því sem meló-
dramatísku gamanverki,“ segir Adolf
og hlær. En um hvað er verkið? „Við
leyfum áhorfendum dálítið að túlka
þetta sjálfir en erum alla vega búnir
að setja persónurnar í þessa leik-
mynd sem er köld, sneydd allri nátt-
úru, gerð af manninum fyrir mann-
inn. Svo flytja þau þessa texta um
hamingjuna, fálmkennda leit manns-
ins að henni: Við erum að róta í rusla-
haug tungumálsins.
Hamingjan hefur getið af sér svo
marga texta og við erum að skoða þá
og henda þeim fram á sviðið í sam-
hengi við óperuna. Hvað þýðir það að
óperusöngvari sé að syngja lag tekið
upp úr sjálfshjálparbók eða upp úr
sjálfshjálparsmáforriti eins og
Headspace? Við erum að setja þessa
texta, myndir og lög saman við
óperusöngva með textum úr kirkju-
og miðaldabókmenntum sem eru líka
um hamingjuna,“ útskýrir Adolf.
Maðurinn hafi alltaf verið og sé enn
að leita að hamingjunni.
Inn á við
Adolf bendir á hina miklu mark-
aðssetningu hamingjunnar, til dæmis
með sjálfshjálparbókum og smáfor-
ritum. Flestir þeir textar segi fólki að
leita inn á við og útiloka það sem
gengur á hið ytra. „Þetta rímar ekk-
ert svo illa við stærri hugmyndir um
kirkju, trúarbrögð eða einhverja
hugmyndafræði sem þarf að fylgja til
að finna hamingjuna,“ segir Adolf og
Friðrik bætir við að norræna velferð-
arkerfið gangi til dæmis út frá því að
það sé hagfræðilega hagstætt fyrir
samfélagið að fólk geti lifað tiltölu-
lega áhyggjulausu lífi og fundið ein-
hverja merkingu.
Á sviði Tjarnarbíós eru nokkrar
ferðatöskur með hjólum sem vekja
forvitni blaðamanns. Adolf og Frið-
rik segja söngvarana ganga um með
þær og að þeir sleppi aldrei takinu af
þeim. „Þetta er líka leikur að tákni,
ferðataskan þýðir svo margt í dag.
Hún er leitin eilífa að betri stað og
það er líka búið að leggja hana á hill-
una, það getur enginn farið neitt en
hún er líka bara ferðataska sem rím-
ar vel við þessa póstdramatísku hug-
myndafræði, að við erum ekki að
leika okkur með söguþráð heldur líka
með táknið ferðatösku, að setja það
inn,“ segir Adolf.
Yfirleitt ekki skemmtilegar
– Hafið þið áhuga á óperum al-
mennt?
„Ég hef mikinn áhuga á óperum en
finnst þær yfirleitt ekki mjög
skemmtilegar,“ segir Friðrik sposk-
ur og Adolf tekur undir. Óperur séu
almennt leiðinlegar en þó ekki þeirra
ópera. „Það er líka eitthvað við óper-
una, hún er álitin fallegasta list-
formið, hún er upphafið form en
óperan er ekki pólitískt tól. Það er
ekki mikil pólitík í óperum, myndi ég
segja. Þetta er fyrsta leikstjórnar-
verkefni mitt eftir útskrift og mér
fannst spennandi að takast á við það
sem er talið vera fallegasta leik-
húsformið og það upphafnasta, fín-
asta, evrópskasta og vestrænasta og
reyna að umturna því, skoða óperuna
frá pólitísku sjónarhorni og svara
spurningunni hvort hægt sé að setja
fegurð og pólitík saman. Er það
hægt? Og hver er pólitík fegurðar, af
hverju setur maður upp fegurð og
má setja upp fegurð í dag? Ég veit
það ekki. Má setja upp pólitík í dag?
Ég veit það heldur ekki en mér
fannst áhugavert að svara því af því
þetta er líka ópera og hún er mjög
falleg, það má ekki gleyma því,“ segir
Adolf.
Við veltum fyrir okkur stöðu list-
formsins í dag og Friðrik segist telja
að nú sé mikil endurreisn í óperunni
og að áhugi ungs tónlistarfólks á
óperuforminu fari vaxandi. Adolf
bendir í framhaldi á að óperan sé svo
marghliða, falleg í eðli sínu en líka
kuldaleg, kaldhæðin, einlæg og
kjánaleg. „Það eru blússandi sókn-
artækifæri fyrir óperuna,“ segir
Adolf sposkur, „hún er bara allt,
ótrúleg suða.“
Friðrik bendir á að þegar einhver
syngi texta sé hann einhvern veginn
æðri en um leið sé búið að framand-
gera tilfinningarnar. „Þú ferð ekki á
trúnó í partíi þar sem einhver fer allt
í einu að syngja fyrir þig,“ nefnir
Friðrik sem dæmi en tilhugsunin er
vissulega skondin.
Söngvarar sýningarinnar eru allir
ungir og upprennandi og að brjótast
fram á sviðið, að sögn þeirra félaga.
„Fólk á þrítugsaldri með blússandi
áhuga á því að syngja óperur,“ segir
Friðrik og bætir við að flytjendur séu
allir lærðir óperusöngvarar.
Frekari upplýsingar um sýn-
inguna má finna á tjarnarbio.is.
Ljósmyndir/Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir
Hamingjuleit Frá æfingu á óperunni Ekkert er sorglegra en manneskjan í Tjarnarbíói. Ferðalangar í hamingjuleit.
Höfundar Friðrik Margrétar-Guðmundsson og Adolf Smári Unnarsson.
Póstdramatísk leit að hamingjunni
Söngvarar ráfa um svið Tjarnarbíós með ferðatöskur í leit að merkingu í nýrri óperu, Ekkert er
sorglegra en manneskjan Texti og tónlist unnin samhliða og snúningur tekinn á óperuformið
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
MÁLA
Í SUMAR?
VITRETEX á steininn.
HJÖRVI á járn og klæðningar.