Morgunblaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 05.09.2020, Blaðsíða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2020 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður - Við erum hér til að aðstoða þig! - • Sérsmíðaðir skór • Skóbreytingar • Göngugreiningar • Innleggjasmíði • Skóviðgerðir Erum með samning við sjúkratryggingar Íslands Tímapantanir í síma 533 1314 Klukkan 16.30 mun Gudrita Lape flytja gjörning. Sýnendur eru Anna Júlía Frið- björnsdóttir (IS),Anna Sigríður Sig- urjónsdóttir (IS), Arvydas Zakar- auskas (LT), Eygló Harðardóttir (IS), Gudrita Lape (LT, IS), Jóhann- es Atli Hinriksson (IS), Kristín Reynisdóttir (IS), Lukas Bury (PL), Kaia Dobrowolska (PL), Pétur Magnússon (IS), Ragga Lára Weiss- happel (IS), Seweryn Chwala (PL) og Wiola Ujazdowska (PL). Sýningin er opin til 26. september. Listamannaspjall verður á morgun, sunnudag, kl. 14. Myndlistarsýningin On Common Ground verður opnuð á hlöðulofti Korpúlfsstaða í dag, laugardag, klukkan 16. Á sýningunni, sem er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík, eru verk eftir á annan tug lista- manna; íslenskra og listafólks frá Litháen og Póllandi sem býr nú og starfar á Íslandi. Innflytjendum á Íslandi hefur fjölgað mikið á undan- förnum áratugum, ekki síst frá Pól- landi og Litháen, og eru farnir að láta að sér kveða í menningarlífi landsins. Eitt markmið þessarar sýningar er, eins og segir í kynn- ingu, að viðurkenna vaxandi fjöl- breytni samfélags okkar og skapa sameiginlegan grundvöll til að skiptast á hugmyndum og stuðla að gagnkvæmum skilningi. Sýningin er haldin að undirlagi Akademíu skynjunarinar, aðalsýn- ingarstjóri er Pari Stave, listfræð- ingur sem starfar í samtímadeild Metropolitan-safnsins í New York, og með henni störfuðu Anna Eyjólfs- dóttir og Ragnhildur Stefánsdóttir. Vigdís Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, opnar sýn- inguna í dag og Pari Stave ávarpar gesti í útsendingu frá New York. Fjölbreytni Listamenn frá Íslandi, Litháen og Póllandi sýna verk. Listahátíðarsýning á Korpúlfsstöðum Fæðing guðanna / Freeze Frame nefnist einkasýning Hrafnkels Sig- urðssonar sem opnuð verður í Ás- mundarsal í dag, laugardag, kl. 15. Hrafnkell sýnir bæði í salnum á efri hæð og í Gryfjunni og má þar sjá ljósmynda- og myndbandsverk. Andri Snær Magnason ritaði texta um sýninguna og segir þar m.a.: „Fæðing guðanna / Freeze frame, hvað á listamaðurinn við? Kannski verður samhengið ljósara eftir hundrað ár, þegar sjávarmál hefur risið og ísinn er orðinn sjald- gæfari í veröldinni. Við munum muna þá tíma þegar ísinn á fjar- lægum heimshornum verndaði okk- ur, þegar hann var kyrr á einum stað. Þá munu menn kannski klífa fjallstinda og reyna að endurlífga þessa fornu guði sem bjuggu á fjallstindum og vörðu strandlengj- ur heimsins. Menn munu kalla til sín hrímið og menn munu ákalla þessa hrímguði og grátbiðja þá um að snúa aftur til fjalla. Það verður kannski hægt að laða þá fram við réttar aðstæður, þeir birtast þá kyrrir augnablik á frosnum ramm- anum, Freeze Frame, áður en þeir snúa aftur til hafs.“ Hversdagsleg málefni og persónulegar tengingar Hrafnkell Sigurðsson fæddist í Reykjavík og lærði þar áður en hann flutti fyrst til Maastricht og svo til London árið 1993. Hann lauk MFA-gráðu við Goldsmith‘s College í London árið 2002 og árið 2007 hlaut Hrafnkell hin virtu Íslensku sjónlistarverðlaun. Hann hefur nýtt sér ljósmyndun við gerð verka sinna en einnig má sjá notkun ann- arra miðla á borð við myndbönd, skúlptúra og innsetningar. Mörg ljósmyndaverka Hrafnkels eru seríur sem fjalla um hvers- dagsleg málefni og hreyfa við skynjun áhorfandans með persónu- legum tengingum, eins og segir í sýningartexta. Tærar myndir hans feli í sér hefðir málaralistar og minni áhorfandann á hinn lagskipta raunveruleika bak við myndræna fleti. Sýningunni í Ásmundarsal lýkur 18. október. Morgunblaðið/Einar Falur Listamaðurinn Hrafnkell Sigurðs- son opnar sýningu í Ásmundarsal. „Menn munu ákalla þessa hrímguði“  Hrafnkell sýnir í Ásmundarsal Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Leikhópurinn LalaLab frumsýnir í dag kl. 13 í Tjarnarbíói verk sem nefnist Tréð og er sýningin hluti af Listahátíð í Reykjavík. Verkinu er lýst sem einlægri fjölskyldusýningu um flóttafólk, sögð frá sjónarhorni drengs sem nefnist Alex. Leikstjór- arnir Sara Martí og Agnes Wild eru höfundar verksins og beita í því óvenjulegri hreyfimynda- tækni, varpa úr- klippum á tjald og myndstýra verk- inu fyrir framan áhorfendur. Sóley Stefánsdóttir semur og flytur tónlistina í verkinu en teikningar gerði listakonan Elín Elísabet Einarsdóttir. Fyrir fimm ára og eldri Sara segir verkið fyrir börn frá fimm ára aldri og fullorðna auðvitað líka. „Það gerast svolítið hræðilegir atburðir í verkinu,“ útskýrir hún. Sýningin fjalli ekki um stöðu flótta- barna heldur frekar um það hvernig hægt sé að búa til fallegan jarðveg fyrir börn og fólk sem þarf að flytja á nýjan stað af illri nauðsyn. Dag einn þegar Alex er að leik í garði sínum verður öflugur jarð- skjálfti og Alex missir fjölskyldu sína og heimili. „Það eina sem er eft- ir er grein af sítrónutré fjölskyld- unnar og hann reynir að finna því nýtt heimili en jarðvegurinn er ekki eins góður alls staðar, af ýmsum ástæðum.“ Sara segir Alex reyna að varð- veita það eina sem hann á eftir af heimili sínu og að greinin sé mynd- líking fyrir menninguna í heimlandi hans. „Við verðum alltaf að hafa hluta af okkur þegar við förum eitt- hvað og það er hann að gera,“ út- skýrir Sara og segist vona að sýn- ingin auki skilning og samkennd með flóttamönnum og aðstæðum þeirra. „Þetta er tilfinningasýning, það eru miklar tilfinningar í henni.“ Sara er spurð hvort búið sé að sýna börnum sýninguna og segir hún svo vera og að börnin hafi setið stjörf og einbeitt. „Þeim fannst þetta magnað og þetta er líka mjög óvenjuleg sýning, ekki hefðbundin leiksýning heldur útklipptar teikni- myndir sem eru settar fyrir framan vídeókameru,“ segir Sara og að börnunum þyki þetta form sérstak- lega spennandi, þetta sérstaka teiknimyndaform. Tveir leikarar, Kjartan Darri Kristjánsson og Elísabet Skagfjörð, stýra þessum úrklippum og leika líka nokkrar senur inni í verkinu, að sögn Söru. Hún segir þó hinn teikn- aða hluta ráðandi í sýningunni. „Þau eru með yfir 200 úrklippur sem þau setja inn fyrir framan vídeókameru og út á réttum stöðum. Þetta er mjöööög flókið,“ segir Sara kímin. Hefur unnið mikið með vídeó – Hefur LalaLab einhvern tíma unnið sýningu svipaða þessari? „Nei, síðasta sýning sem við gerð- um saman, við Agnes Wild sem leik- stýrum þessu saman, var Karíus og Baktus og það voru bara Karíus og Baktus sem allir þekkja. Við gerðum vídeó og notuðum þau mikið í þeirri sýningu og mér finnst mjög gaman að vinna með vídeó, vinn eiginlega alltaf með það í mínum sýningum og mig langaði að prófa þessa aðferð. Ég sá svipaða aðferð notaða í Bret- landi og fannst þetta svo spennandi. Þegar við byrjuðum á þessu kom- umst við að því að þetta væri ógeðs- lega erfitt,“ segir Sara og hlær við. „Við þurftum að finna út úr öllu sjálf og það tók sinn tíma en við erum rosalega stolt af útkomunni.“ Elín Elísabet, teiknari sýning- arinnar, á mikinn heiður skilinn hvað útkomuna varðar og hefur hún m.a. verið að teikna fyrir Grapevine og þær Rán Flygenring voru á Borgarfirði eystri í allt sumar með Ekki-lundabúðina sína. Sóley Stef- ánsdóttir, sem notar fornafnið sem listamannsnafn, samdi tónlist sem hún flytur í hverri sýningu og segir Sara að hljóðmyndin sé líka unnin af miklum metnaði. „Hljóðmaðurinn okkar var í stúdíói að taka upp hljóð- ið þegar sítrónur detta ofan í bast- körfu,“ nefnir Sara sem dæmi. „Þetta er meiriháttar metnaðar- fullt.“ Sara segist lengi hafa gengið með hugmyndina að Trénu í maganum. Heimurinn sé sífellt að breytast og fólk neyðist víða til að flýja heima- lönd sín. „Þessi sýning á ekki minna erindi til foreldra en barna,“ bendir Sara á. „Ég er ekki að segja að við eigum allt í einu að opna öll landa- mæri en við verðum að gera okkur grein fyrir því að við erum ekki ein hérna. Mér finnst bara allt í lagi að byrja á því snemma. Börn byrja svo snemma að spyrja og vita að það er mikið að gerast fyrir utan Covid sem skapar enn meiri flóttamannavanda. Þetta er bara fólk sem þarf heimili og þess vegna þykir mér þetta mik- ilvægt.“ Frekari upplýsingar um Tréð má finna á tjarnarbio.is. Vídeóvörpun Leikari myndar klippimyndir með vídeóvél sem síðan er varpað á stórt tjald. Hér má sjá drenginn Alex sem missir fjölskyldu sína. Tilfinningasýning Sara Marti  Fjölskyldusýningin Tréð sýnd í Tjarnarbíói  Grein af sítrónutré er myndlíking fyrir menningu flóttafólks Íslenska óperan stendur fyrir söngskemmtun í Norðurljósasal Hörpu á morgun, sunnudag, klukk- an 20. Fram koma Elmar Gil- bertsson tenór og Bjarni Frí- mann Bjarnason píanóleikari og flytja þeir aríur og sönglög. Þetta verður opnunarviðburður starfsárs Íslensku óperunnar og er takmark- að framboð af miðum vegna sam- komutakmarkana. Elmar er nú fastráðinn við óp- eruna í Stuttgart og hefur komið fram í fjölmörgum óperuhlut- verkum hér heima og erlendis. Hann var kjörinn söngvari ársins árið 2016 fyrir hlutverk í Évgení Onegin í uppfærslu Óperunnar. Bjarni Frímann hefur verið tón- listarstjóri Íslensku óperunnar frá árinu 2018 og á að baki rómaðan tónlistarferil sem hljómsveitar- stjóri og píanóleikari. Hann hefur stjórnað uppfærslum Íslensku óp- erunnar á undanförnum árum og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarflytjandi ársins 2020. Söngskemmtun Ís- lensku óperunnar Bjarni Frímann Bjarnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.