Morgunblaðið - 16.09.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.09.2020, Blaðsíða 1
Garðyrkjubændurnir á Melum á Flúðum leggja sig eftir ræktun á káli í ýmsum lita- afbrigðum. Þar á meðal er appelsínugult og fjólublátt blómkál, rautt grænkál og fjólu- blátt spergilkál. Þá rækta þau toppkál sem er afbrigði af hvítkáli en öðruvísi að lögun, eins og heitið gefur til kynna. „Ég geri þetta mikið fyrir búðina. Við selj- um þetta þar en það sem er umfram það fer í bæinn, í sérverslanir geri ég ráð fyrir,“ segir Guðjón Birgisson á Melum. Hann segir að yfirleitt sé svipað bragð af litskrúðuga kálinu og grænum systkinum þess. Þó séu sumar tegundir bragðsterkari vegna þess að þær hafi haft lengri tíma til að vaxa. Uppskerustörf garðyrkjubænda í útirækt- un standa sem hæst. Flestir eru komnir yfir kúfinn, hafa náð að sinna markaðnum fyrir ferskar afurðir og eru að taka upp til að setja í kæligeymslur. Kartöflubændur eru þó sums staðar á eftir áætlun í uppskerustörfum vegna bleytu í görðunum. Uppskeran er í meðallagi og sums staðar betri en það. Kálið selst vel og í haust hafðist varla undan að skera hausana og senda á markað. »6 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fjölbreytni Appelsínugult og fjólublátt blóm- kál ásamt toppkálshausum. Rækta litskrúðugt kál á Flúðum  Garðyrkjubændurnir á Melum framleiða litakálið aðallega fyrir eigin búð M I Ð V I K U D A G U R 1 6. S E P T E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  218. tölublað  108. árgangur  VERK UM VALD OG VALDLEYSI ÞURFT AÐ LOKA STÖÐVUM BLIKUR SAGÐAR Á LOFTI Í ORKU- SÆKNUM IÐNAÐI ÞOKAST Í RÉTTA ÁTT 9 VIÐSKIPTAMOGGINNOLEANNA FRUMSÝND 24 Útlit er fyrir að mistur vegna gróðurelda sem nú geisa á vest- urströnd Bandaríkjanna berist yfir Atlantshafið og til norð- urs, að sögn Elínar Bjarkar Jónsdóttur veðurfræðings. Þar sem lofti að vestan fylgi oftast lægð muni mistrið ekki sjást í þurru lofti, en gæti greinst í efnamælingum. Líklega muni ryk frá eldunum berast hingað til lands á meðan þeir loga. »11 Morgunblaðið/Árni Sæberg Von á mistri vegna gróðurelda á vesturströndinni  Fólki fjölgar hér á landi og þjóðin er að eld- ast. Fyrir vikið fjölgar grein- ingum krabba- meins enda eykst nýgengi krabba- meina með aldr- inum. Hins vegar hefur hættan á að fá krabba- mein minnkað með árunum með breyttum og betri lífsháttum; holl- ara mataræði og minni reykingum, auk skimunar fyrir forstigum leg- hálskrabbameins, að sögn Lauf- eyjar Tryggvadóttur, fram- kvæmdastjóra Krabbameinsskrár Krabbameinsfélagsins. Dánartíðni af völdum krabbameina heldur áfram að lækka hér á landi. »4 Áhætta minnkar og dánartíðni lækkar Laufey Tryggvadóttir Þjóðarbúið gæti orðið af 13 til 20 milljörðum króna til ársloka, ef mið- að er við að árstíðarleiðréttur fjöldi ferðamanna hefði haldist óbreyttur frá fyrri hluta ágúst og ef ekki hefði komið til tvöfaldrar skimunar á landamærum. Þetta er meðal þess sem ráða má úr nýrri skýrslu starfshóps fjármála- ráðherra um efnahagsleg áhrif val- kosta í sóttvarnamálum, en fyrir- komulag tvöfaldrar skimunar og sóttkvíar fyrir alla komufarþega til landsins hófst 19. ágúst. Tekið er fram í skýrslunni að þó skuli hafa í huga að ekki sé víst að forsenda um óbreyttan fjölda ferða- manna hefði gengið eftir. Vísbendingar séu um að dregið hafi úr flugumferð samhliða vexti faraldurs kórónuveirunnar hér á landi og í Evrópu, áður en hertar að- gerðir á landamærum tóku gildi. Sóttvarnaaðgerðir innanlands eru sagðar hafa verið lengst af mildar í alþjóðlegum samanburði og árangur þeirra góður, að mati starfshópsins. Ísland skeri sig ekki úr hvað varði samdrátt í komu ferðamanna í sum- ar, en samkvæmt skýrslunni var samdrátturinn svipaður hér á landi og í mörgum öðrum löndum þar sem ferðaþjónustan er mikilvæg, s.s. á Spáni og í Grikklandi. Fórn fyrir langtímaávinning Bent er á það að árangursríkar sóttvarnir feli í sér skammtímafórn fyrir langtímaávinning, og tekið fram að gagnlegt væri að útskýra markmið sóttvarnaaðgerða betur og auka fyrirsjáanleika um þær eftir því sem við verði komið. Þá beinir hópurinn því til stjórn- valda að skoða hvort aðrar sótt- varnaaðgerðir á landamærum séu mögulegar án þess að taka of mikla áhættu fyrir þróun faraldursins er- lendis. Leggur hópurinn einnig til að skoðaðar verði gaumgæfilega leiðir til að veita ferðaþjónustunni stuðn- ing til að viðhalda reynslu, þekkingu og viðskiptasamböndum á meðan ástandið vari. Peningamagn í umferð á Íslandi jókst um 227 milljarða frá lokum jan- úar til loka júlímánaðar. Ísland sker sig ekki úr  Starfshópur ráðherra segir Ísland ekki hafa skorið sig úr hvað varðar samdrátt í komu ferðamanna í sumar  Aðgerðir hafi lengst af verið mildar og borið árangur MJókst um ... »ViðskiptaMogginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.