Morgunblaðið - 16.09.2020, Blaðsíða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020
fréttum og stjórnmálum og fylgist
vel með. Hann hefur líka áhuga á
golfi, skotveiði, myndlist, tónlist og
kvikmyndum eins og margir. En
ekki allir vita að hann hefur líka sér-
stakan áhuga á köttum og bresku
konungsfjölskyldunni. „Ég hef gríð-
arlegan áhuga á köttum og maður
myndi ætla að ég ætti kött heima en
svo er þó ekki. Vandamálið er að
þótt kettir séu þekktir fyrir að vera
mjög snyrtilegir, þá eru þeir ekki
jafn snyrtilegir og ég. Það þýðir að
ég hef ekki lagt í langtímasambúð
með ketti, því ég held að það myndi
bara ekki ganga upp, en ég hef samt
stundum passað ketti í styttri tíma
sem hefur verið ágætt.“
Fjölskylda
Kærasti Davíðs er Daniel Barrios
Castilla, f. 26.4. 1992, meistaranemi í
raforkuverkfræði við HR. Foreldrar
Daniels eru Luis Adolfo Barrios Re-
strepo, f. 4.8. 1959, framkvæmda-
stjóri og Maria Elva Castilla San-
chez, 27.5. 1958, endurskoðandi. Þau
búa í Medellín í Kólumbíu.
Systkini Davíðs eru Gauti Elfar
Arnarsson, hálfbróðir sammæðra, f.
23.4, 1993, tryggingaráðgjafi í
Reykjavík, Karl Þorláksson, hálf-
bróðir samfeðra, f. 13.5. 1993, nemi í
Kópavogi, Skúli Þorláksson, hálf-
bróðir samfeðra, f. 15.4. 1995, tölvu-
maður í Reykjavík, Nína María Arn-
arsdóttir, hálfsystir sammæðra, f.
2.5. 1996, nemi á Akureyri, Marínó
Geir Arnarsson, hálfbróðir sam-
mæðra, f, 2.5. 1996, d. 2.5. 1996.
Foreldrar Davíðs eru Þorlákur
Karlsson, f. 2.7, 1954, rannsókna-
stjóri og dósent í Háskólanum í
Reykjavík og María Grenó, f. 29.7.
1959, aðalbókari Kjarnafæðis á Ak-
ureyri. Þau skildu.
Davíð Þorláksson
Úr frændgarði Davíðs Þorlákssonar
Margrét Magnúsdóttir
verkakona, Akureyri
Ingólfur Árnason
verkamaður á Akureyri
Hrafnhildur Ingólfsdóttir
leiðbeinandi á leikskóla, Akureyri
Ólafur Aðalbjörnsson
skipstjóri, Akureyri
Soffía Hafl iðadóttir
húsfreyja, Hólakoti við Grenivík
Aðalbjörn Jóhannsson
útgerðarmaður, Hólakoti við Grenivík
María Grenó
aðalbókari Kjarnafæðis, Akureyri
Pétur Ólafsson
hafnarstjóri, Akureyri
Anna Rakel Péturs-
dóttir lands liðs kona í
knattspyrnu, Svíþjóð
Guðrún Gestsdóttir
húsfreyja, Meðalheimum á Ásum
Eysteinn Björnsson
bóndi, Meðalheimi á Ásum
Brynhildur Eysteinsdóttir
húsfreyja, Hrauni í Ölfusi
Karl Þorláksson
bóndi, Hrauni í Ölfusi
Vigdís Sæmundsdóttir
húsfreyja, Hrauni í Ölfusi
Þorlákur Jónsson
bóndi, Hrauni í Ölfusi
Hrafnkell Karlsson
bóndi á Hrauni í Ölfusi
Þorlákur Karlsson
dósent í HR, Reykjavík
„FRÁBÆR MYND. RIFJAÐI UPP MARGAR
MINNINGAR SEM ÉG VILDI AÐ VÆRU
MÍNAR.”
„SVONA NÚ! BIDDU HANN AFSÖKUNAR Á
ÞVÍ AÐ HAFA TROÐIÐ Á HONUM ÞARNA
EFST Í STIGANUM.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... verðmætari en
peningar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
FLJÚGANDI
FÍLL !
ÁÐUR EN ÞIÐ FÁIÐ BORÐ ÞARF ÉG
AÐ KYNNA YKKUR NOKKUR ATRIÐI UM
HOLLUSTUHÆTTI!
HVER
ERU ÞAU?
YKKUR VÆRI HOLLAST AÐ HAFA HVORKI
Í HÓTUNUM VIÐ NEINN HÉR NÉ VALDA
LÍKAMSMEIÐINGUM!
Helgi R. Einarsson sendi mérlínu með athugasemdinni
„mér datt þetta svona í hug“ og
kallar „Ímyndunarafl“:
Að Jesús Kristur sé kona
kirkjunnar menn virðast vona.
Hún ósköp er trist
þessi umræða’ um Krist.
„Af hverju láta þeir svona?“
Og Helgi hélt áfram: „Fyrst við
erum komin á þessar slóðir kemur
önnur, sem dregur dám af ástand-
inu í þjóðfélaginu“ – „Presturinn“:
Um morguninn peysuna prjónaði.
E.h. bílinn sinn bónaði.
Skrapp svo í sund,
synti um stund
og um kvöldið í kirkjunni tónaði.
Gylfi Þorkelsson yrkir á Boðnar-
miði í tilefni af því að „kirkjuþing
biðst afsökunar á að hafa fagnað
fjölbreytileikanum“:
Af Jesú og himnanna jarli
er jarðföst hin staðlaða mynd
af hvítum, miðaldra karli
að klóra sér, neðan við þind.
Því er fagnað með fordómasnarli
að fjölbreytileikinn er synd.
Á heimasíðu Gylfa las ég þetta
erindi og fékk vatn í munninn:
Bleikja, hún er besta fæða
bragðlaukana kætir mjög.
Um annan fisk þarf ei að ræða.
Út á gott að setja lög,
kartöflur með sætar snæða
og salatblað. Já, veisla hög.
Jón Gottskálksson Selá orti um
sjálfan sig:
Búið verður býsna vel
og borðað spaðið feita
þegar karl í Ketusel
kemst til rólegheita.
Jón bjó í Ketuseli á Skaga.
Þegar Kvæðakver Halldórs Lax-
ness kom út orti Ingveldur Einars-
dóttir á Reykjum í Mosfellssveit, en
kverið var mjög gisprentað og oft
aðeins ein vísa á síðu:
Þitt hef ég lesið, Kiljan, kver;
um kvæðin lítt ég hirði,
en eyðurnar ég þakka þér;
þær eru nokkurs virði.
Ólafur Bjarnason á Munaðarhóli
var bátasmiður góður. Þannig fór-
ust honum orð um skipasmíðar
sínar:
Hundrað eitt með höfuð sveitt
hlunnajóra fríða,
þrjátíu tvenna og átta enn
eg hef gjört að smíða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Kristi, konu
og prestinum