Morgunblaðið - 16.09.2020, Blaðsíða 28
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Við fyrstu sýn virðist langur vegur á
milli ljósmyndunar og reksturs
snyrtivöruverslunar en Íris Björk
Reynisdóttir hefur sýnt að svo er
ekki. „Ég lærði förðun áður en ég fór
í ljósmyndanámið, hún efldi tengsla-
netið í snyrtivöruheiminum og það
hefur komið að góðum notum við
verslunarreksturinn,“ segir hún.
„Það er líka gaman að vinna við og
selja vörur sem maður þekkir vel og
hefur áhuga á, að gefa af sér til við-
skiptavinanna.“
Ljósmyndun heillaði Írisi Björk
þegar hún var á hagfræðibraut í
Verzlunarskóla Íslands. Þá var hún
meðal annars formaður ljósmynda-
nefndar og segir að bóklega námið
hafi legið vel fyrir sér en ljósmynda-
nám á Englandi hafi togað fastar í
sig. Eftir framhaldsskóla hafi hún
farið í förðunarnám til að auka lík-
urnar á að komast inn í enskan ljós-
myndaskóla enda aðallega með bók-
legt nám að baki. Síðan hafi hún farið
í London College of Fashion og út-
skrifast þaðan með BA-gráðu í
Fashion Photography and Styling.
Að því loknu hafi hún lært net-
markaðssetningu og útskrifast með
diplómugráðu. „Þá fann ég að net-
verslun hentaði mér vel.“
Íris Björk bjó á Englandi í átta ár
og vann þar lengst af sjálfstætt við
að taka tískumyndir. „Um tveimur
árum eftir að ég útskrifaðist úr ljós-
myndaskólanum fann ég að þetta
tískuumhverfi í London átti ekki við
mig og fór að hugsa um að gera eitt-
hvað annað.“
Fjölskyldufyrirtæki
Fjölskyldan hafði hug á því að fara
út í einhvers konar rekstur saman og
fyrsta hugmyndin var að útbúa
snyrtivörubox mánaðarlega að
enskri fyrirmynd og selja í áskrift.
Að vel athuguðu máli var það ekki
talið vænlegt, en Íris Björk segir að
talsmenn heildverslana hafi hvatt
þau til þess að opna netverslun
vegna þess að almenna snyrtivöru-
verslun hafi vantað hérlendis.
Fyrir um þremur árum stofnaði
Íris Björk fyrirtæki með foreldrum
sínum, Valgerði Ólafsdóttur og
Reyni Jóhannssyni, snyrtivöru-
netverslunina Beautybox.is, og í
febrúar síðastliðnum, rétt áður en
kórónuveirufaraldurinn skall á, opn-
uðu þau verslun á Langholtsvegi 126
í Reykjavík. Fyrstu tvö rekstrarárin
bjó hún á Englandi og sá um heima-
síðugerð, vörumerkjastjórnun og
markaðsmál en foreldrar hennar um
allan daglegan rekstur og sérhæfðari
tæknimál. „Ég leigði skrifborð hjá
markaðsstofu samfélagsmiðla og
vann þar mína vinnu. Þegar ég byrj-
aði voru aðeins þrír starfsmenn á
skrifstofunni en nú er hún ein öfl-
ugasta markaðsstofa samfélagsmiðla
í London,“ segir Íris Björk. „Rekst-
urinn hefur gengið mjög vel og net-
verslunin hefur færst í aukana frá
því faraldurinn hófst,“ heldur hún
áfram. „Ég hef þá trú að netverslun
eigi eftir að aukast til muna eftir að
viðskiptavinir eru komnir á bragðið.“
Íris Björk segir umhverfið í
snyrtivörunum mjög spennandi og
neytendur verði jafnframt sífellt
kröfuharðari, jafnt á netinu sem í
verslunum. „Þeir koma ekki inn í
verslun og láta segja sér hvað þeir
eigi að kaupa heldur vita hvað þeir
vilja og spyrja krefjandi spurninga:
hvað er þetta, hvað er í þessu, hvað
gerir þetta? Við höfum brugðist við
þessu með því að vera með góðar
upplýsingar á íslensku á vefnum og
veitum sambærilegar upplýsingar í
versluninni.“
Spennandi umhverfi
í snyrtivörunum
Ljósmyndir Viktor Richardsson
Beautybox.is Íris Björk Reynisdóttir í versluninni á Langholtsvegi.
Tískuljósmyndir og förðun góður grunnur hjá Írisi Björk
Í Lundúnum Ljósmynd eftir Írisi.
e ti t rinn a Ru
fæ lustend 10 f ir a
r a allega, fín rík ólkinu
á h rj gi.
a stjarna
k f
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 260. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
MENNINGÍÞRÓTTIR
„Það hefur verið þannig í síðustu leikjum að við ör-
væntum ekki þótt við séum ekki að spila okkar besta
leik. Við höfum verið að verjast vel og við vitum að við
getum alltaf skorað mörk, þótt við séum ekki að spila
vel. Við erum með menn sem hafa reynslu af því að
vera í toppbaráttu og vita hvað til þarf,“ segir Aron
Bjarnason, leikmaður toppliðs Vals í Pepsí Max-
deildinni, í samtali við Morgunblaðið í dag. Aron er í liði
umferðarinnar í blaðinu sem er birt í dag fyrir
frammistöðu sína gegn Víkingi. »22
Vitum að við getum alltaf skorað
mörk þótt við spilum ekki vel
List án landamæra 2020, listahátíð fatlaðra á Ís-
landi, verður haldin 23.-31. október þrátt fyrir erf-
iðar aðstæður vegna Covid-19 og verður Helga
Matthildur Viðarsdóttir listamaður hátíðarinnar að
þessu sinni. Verður í kvöld fjallað um listsköpun
hennar í sjónvarpsþættinum Með okkar augum á
RÚV. Helga Matthildur fæddist árið 1971, býr í
Reykjavík og hefur unnið að list sinni í nokkur ár
undir handleiðslu listkennara hjá Ás
styrktarfélagi þar sem hún hefur
starfað í um 30 ár. Þar hefur
hún sótt vatnslitanámskeið og
námskeið í textíl og teikningu.
Hún fæst við myndlist daglega
af mikilli elju og áhuga, og
skapar fjölda teikninga í hverri
viku. Fyrsta einkasýningin á
verkum hennar verður opnuð í
Listasal Mosfellsbæjar 23.
október og verður opin
til 13. nóvember 2020.
Helga Matthildur Viðarsdóttir lista-
maður Listar án landamæra 2020