Morgunblaðið - 16.09.2020, Side 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2020
»Félag íslenskra bókaútgef-
enda (Fíbút) opnaði nýverið
Bókamarkað sinn í Hörpu.
Bókamarkaðurinn var fyrst
haldinn í Listamannaskálanum
við Austurvöll árið 1952 og var
um langt skeið rekinn í Perl-
unni. Síðustu árin hefur heima-
völlur hans verið í stúkubygg-
ingu Laugardalsvallar, sem
þjónar á þessum tíma árs fót-
boltanum, en Fíbút stefnir að
því að opna árlegan vetrar-
markað sinn í Laugardalnum í
lok febrúar á næsta ári. Um 60
útgefendur eru með bækur sín-
ar í Hörpu og verða til sölu ríf-
lega 5.100 titlar í þremur flokk-
um. Í flokki barnabóka eru um
1.785 titlar, í flokki skáldverka
eru samtals tæplega 1.740 titl-
ar og í flokki fræðibóka og rita
almenns efnis um 1.590 titlar.
Bókamarkaðurinn í Hörpu mælist vel fyrir hjá almenningi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lesefni Barnabókaflokkurinn er sá stærsti í ár með 1.785 titla. Allir geta því fundið eitthvað við sitt hæfi.
Áhugasamur lesandi Bókvitið verður ekki í askana látið.
Rit Í flokki fræðibóka og rita almenns efnis kennir ýmissa grasa.
Staða rannsóknarlektors við Há-
skóla Íslands, í nafni Stephans G.
Stephanssonar, hefur verið sett á
fót og verður Birna Bjarnadóttir
bókmenntafræðingur fyrst til að
gegna þessu starfi. „Ásamt því að
efla samstarf um alþjóðlegar rann-
sóknir á landnámi innflytjenda í nú-
tímabókmenntum, mun rannsókn-
arlektorinn hafa umsjón með og
efla samstarf Háskóla Íslands og
Manitóbaháskóla á sviði rannsókna
og kennslu. Íslensk stjórnvöld
munu styðja með beinum hætti við
kennsluþáttinn,“ segir í tilkynningu
vegna starfsins. Rannsóknarlektor-
inn mun líka hafa umsjón með
áframhaldandi fjáröflun í styrktar-
sjóð Stephans G. Stephanssonar
sem er í vörslu Háskóla Íslands en
tilurð rannsóknastöðunnar má
rekja til sjóðsins.
Rannsóknarlektor í nafni Stephans G.
Lektor Birna Bjarnadóttir.
Sinfóníuhljómsveit Suðurlands hef-
ur verið stofnuð og er markmiðið
að byggja upp grundvöll fyrir starf-
semi klassískrar hljómsveitar á
Suðurlandi. Hugmyndasmiður
verkefnisins er Guðmundur Óli
Gunnarsson hljómsveitarstjóri sem
starfaði að uppbyggingu Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands frá stofn-
un hennar í 23 ár og byggir hann
starfið á þeirri reynslu sinni, að því
er fram kemur í tilkynningu.
Fyrsta verkefni hljómsveit-
arinnar eru skólatónleikar sem
haldnir verða í dag, 16. september,
á þremur stöðum, þ.e. í Þorláks-
höfn, Hveragerði og á Flúðum fyrir
nemendur úr uppsveitum Árnes-
sýslu. Fjórtán manna klassísk
hljómsveit undir
stjórn Guð-
mundar Óla mun
heimsækja
skólana með
sögumanni og
flytja nemendum
40 mínútna dag-
skrá en á henni
er tónverkið Lyk-
illinn eftir
Tryggva M. Bald-
vinsson við sögu Sveinbjörns I.
Baldvinssonar. Einnig flytur hljóm-
sveitin þekkt lög og hljóðfæri
hljómsveitarinnar verða kynnt.
Tónleikunum lýkur með því að
börnin taka lagið við undirleik
hljómsveitarinnar.
Fyrstu tónleikar sinfóníuhljómsveitar
Guðmundur Óli
Gunnarsson
Harpa Dögg Kjartansdóttir opnaði
einkasýninguna Myndmál í SÍM-
salnum, Hafnarstræti 16, 4. sept-
ember og lýkur sýningunni 23.
september.
Á sýningunni vinnur Harpa með
samspil milli tvívíðra og þrívíðra
verka sem skapa ljóðræna heild, að
því er fram kemur í tilkynningu,
„vinnur með þau ótal kerfi sem um-
lykja tilvist okkar og við notum til
að skilja betur umheiminn“, eins og
segir þar. Hversdagslegir hlutir
mætast í myndmáli þar sem skoðuð
eru tungumál, kerfi, umbreytingar,
eiginleikar og gildi hluta. Á sýning-
unni má sjá skúlptúra og myndverk
unnin með blandaðri tækni og not-
ast Harpa við fundið efni sem er
sett saman á óvæntan og ljóðrænan
hátt, eins og því er lýst.
Harpa Dögg sýnir Myndmál í sal SÍM
Sýnir Harpa Dögg Kjartansdóttir.