Morgunblaðið - 24.10.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 24.10.2020, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 MORGUNBLAÐIÐ 11 unni hjá mér dæmið um þorskinn sem er kominn í yfir 90% nýtingu og gæti farið hærra, meðal annars nýtingu slógs í lýsisframleiðslu, en Íslend- ingar eru að gera vel á þessu sviði og við getum flutt þá þekkingu betur út.“ Ásta Dís bendir á að talið er að um þriðjungur allra framleiddra matvæla eyðileggist í framleiðslu eða í dreif- ingu og þegar matvælum er fargað þegar þau eru komin yfir síðasta sölu- dag. „Þegar litið er til þessara mat- væla sem hent er þá eru það ekki bara matvælin sem eru að eyðileggj- ast heldur tapast allt sem lagt var í framleiðsluna og dreifinguna, eins og mannleg vinna, vatn og orka. Þarna verður gífurleg sóun og það er mjög brýnt að framleiðendur og seljendur matvæla bæti þetta ferli. Um 10% af þeim hitaeiningum sem mannkynið neytir eru talin koma frá sjávarfangi að sögn Ástu Dísar sem segir að það þurfi fyrst og fremst betri stjórnun veiða og aukið eldi ef hlutdeild sjávarfangs eigi að vaxa. „Fiskeldi hefur vaxið hratt á und- anförnum árum og það þarf að auka það enn meir ef við eigum að geta fætt mannkynið því veiðar munu ekki standa undir stöðugri fólksfjölgun. Því getum við sagt að það sé fyllilega raunhæft að gera ráð fyrir að fiskeldi aukist enn frekar. Vöxturinn er þó takmörkunum háður, meðal annars vegna fæðu fyrir eldisfisk, rétt eins og höf, vötn og ár hafa sínar takmark- anir eins og komið hefur í ljós á und- anförnum áratugum. Til viðbótar þessu má nefna vandamál eins og aukin gróðurhúsaáhrif, hlýnun jarðar og vaxandi mengun á landi og í sjó, sem er meðal annars tengd vaxandi fiskeldi. Þess vegna þurfum við að vanda okkur vel. Deilur eru uppi um hvort eldi eigi að vera í sjókví eða í landeldi og þessa þætti þarf að skoða til hlítar, hvaða leiðir koma best út með tilliti til sjálfbærni, að við skilum jörðinni og auðlindum hennar af okk- ur í betra ásigkomulagi en við tókum við.“ Öðrum til eftirbreytni Vegna þessa telur hún brýnt „að þjóðir heims horfist í augu við alvarleg fæðu- vandmál í heiminum og forgangsraði í þeirra þágu og Ís- lendingar gætu vafa- lítið lagt meira til á alþjóðavettvangi í umræðunni um fæðuöflun framtíð- arinnar, einkum hvað varðar sjáv- arfang, vegna þess að hér hefur verið rekinn arðbær sjáv- arútvegur sem hefur skilað miklum verð- mætum til sameig- inlegra verkefna. Þannig hefur sjáv- arútvegur hér verið gefandi en ekki þiggjandi eins og raunin er víða í hin- um vestræna heimi og Íslendingar hafa náð miklum árangri í fullnýtingu sjávarafurða sem ætti að verða öðrum þjóðum til eftirbreytni.“ Samkvæmt tölum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna hefur lítil breyting orðið á heildarmagni sjávarafurða sem fram- leiddar eru með veiðum á villtum stofnum frá aldamótum. Árið 2000 veiddust 85 milljónir tonna á heims- vísu úr sjó en árið 2018 voru veiddar 84 milljónir tonna. Á sama tímabili fór eldi í sjó úr því að framleiða 14 millj- ónir tonna í 31 milljón tonna, en það er rétt rúmlega 114% vöxtur. Ef litið er til veiða í ferskvatni nam heildarafli 9 milljónum tonna árið 2000 og 12 milljónum árið 2018. Á sama tíma jókst ferskvatns- og land- eldi um rúm 168% úr 19 milljónum tonna í 51 milljón tonna. Samanlagt framleiddi allt eldi í heiminum 82 milljónir tonna, sem er um 46% af öllu framleiddu sjávarfangi að sjávar- spendýrum, krókó- dílum og þangi og öðrum sjávar- plöntum undan- skildum. „Þar sem fiskeldi er þegar orðið eins mikið og raun ber vitni vaknar sú spurning hvort fisk- eldi geti leyst hluta af fæðuvanda fram- tíðarinnar og hugs- anlega stutt enn bet- ur við veiðar á villtum fiski því það er jú takmörkuð auðlind. Það er nauðsynlegt að ná jafnvægi á markaði og það jafnvægi ræðst af hagkvæmni eins og raunin er í öðrum efnahags- legum ákvörðunum,“ segir Ásta Dís. Náið samstarf fyrirtækja Eins og fyrr segir er tækniþróun einn þeirra þátta er bókin fjallar um. „Sú mikla tækniþróun sem er að eiga sér stað byggist meðal annars á fjórðu iðnbyltingunni. Náið samstarf tækni- fyrirtækja á borð við Völku, Skagann 3X, Marel og fleiri fyrirtæki við ís- lensk sjávarútvegsfyrirtæki hefur ýtt undir mun hraðari þróun, meðal an- anrs í fiskvinnslu og meðferð afla, en annars hefði orðið. Íslenskur markaður er líklega sá besti í heiminum til að stunda nýsköp- un og tækniþróun, vegna þess að fyrirtækin vinna mjög vel saman að þróuninni. Með því fæst gríðarleg þekking hjá tæknifyrirtækjunum, sem síðan er flutt úr landi og til ým- issa landa, sem gerir það að verkum að erlendar þjóðir hafa náð að byggja hraðar upp sinn sjávarútveg en ella,“ segir Ásta Dís. Hún segir að áður fyrr hafi fólk sem starfaði í vinnslum verið stutt af vélum en að sú staða sé að breytast og er starfsfólk í auknum mæli í aukahlutverki eftir því sem hugbún- aður tekur við stuðningshlutverkinu. „Í framtíðinni verður mannshöndin hvergi nærri og lausnir í fiskvinnslu verða byggðar á upplýsingatækni og gervigreind. Þá hefur krafan um rekjanleika aukist á undanförnum ár- um og staðan er orðin þannig að víða er hægt að segja hvar tiltekinn þorskur var veiddur, á hvaða miðum, í hvaða kasti og svo framvegis.“ Mikil viðurkenning Ásta Dís segir töluverðan áhuga vera á bókinni, meðal annars að nýta hana í kennslu erlendis auk þess sem al- þjóðastofnanir hafa pantað eintök. „Það hefur vantað svona bók á er- lendum markaði.“ Spurð hvaða merkingu það hefur að bókin sé gefin út fyrir alþjóðlegan markað, svarar hún: „Það að svona virt forlag eins og Academic Press innan Elsevier skuli strax hafa sýnt því mikinn áhuga að gefa út svona bók sýnir okkur að Ísland er afar framarlega sem sjávarútvegsland og viðurkennt sem slíkt. Við unnum með mjög mörgum aðilum og margir af okkar þekkstustu og færustu vís- indamönnum á þessu sviði lásu yfir fjölmarga kafla í bókinni. Þá fékk Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti og núverandi formaður Norð- urslóða, handritið þegar það var kom- ið nokkuð langt og hann skrifaði inn- gangsorðin að bókinni, sem er mjög mikilvægt fyrir okkur þar sem orð Ólafs Ragnars vega þungt á al- þjóðavísu, sér í lagi í tengslum við Norðurslóðir.“ fólksfjölgun Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Töluverð eftirspurn er eftir bókinni sem skoðar sjávar- útveginn í víðu samhengi. Ágúst Einarsson hefur skrifað fjölda bóka um sjávarútveg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.