Morgunblaðið - 03.11.2020, Page 4

Morgunblaðið - 03.11.2020, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Guðni Einarsson Jóhann Ólafsson Staða kórónuveirufaraldursins á Norðurlandi er að þyngjast og var Sjúkrahúsið á Akureyri fært á hættustig á laugardaginn var, að sögn Ölmu D. Möller landlæknis á upplýsingafundi almannvarna í gær. „Það er ótrúlegt að heyra dæmi frá starfsfólki í verslunum sem lýsir hótunum frá viðskiptavinum þegar þeim er leiðbeint í verslunum,“ sagði Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn á fundinum. Fólk hafði í hótunum og nánast beitti ofbeldi þegar bent var á grímuskyldu í verslunum. „Þetta er svo mikið kjaftæði að ég trúi ekki að við séum að takast á við þetta núna,“ sagði Víðir. Hann sagði að samfélagslega mikilvæg og ómissandi starfsemi, t.d. í matvæla- iðnaði eða einstaka stórfyrirtæki, fengi undanþágur frá hertum sam- komutakmörkunum. Á laugardaginn var bárust um 300 beiðnir um und- anþágur frá hertum reglum sem tóku gildi á miðnætti á föstudag. Víðir sagði æskilegt að ekki væri sótt um undanþágu nema um lífs- nauðsynlega ástæðu væri að ræða. Um 70 bakverðir við störf Í fyrri bylgju faraldursins var nefnt hvort opna ætti farsóttar- sjúkrahús. Kári Stefánsson, for- stjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sagði nýlega að hugleiða þyrfti að flytja aðhlynningu Covid-19-sjúk- linga á aðra stofnun en Landspít- alann. Ekki sé hægt að búa við það lengi að fólk komist ekki í valkvæðar aðgerðir. Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans, kvaðst ekki vera viss um að sérstakt farsóttarsjúkrahús þyrfti til að leysa vandann. „Það þarf að tryggja flæði fólks sem lokið hefur meðferð á Landspít- alanum og að geta sent það annað þar sem það fær viðeigandi þjón- ustu. Sérstakt Covid-sjúkrahús mun ekki leysa það vandamál,“ sagði Páll. „Það er og verður verkefni þjóðfélagsins næstu áratugina að tryggja þjónustu fyrir okkar elstu borgara, þegar þeir geta ekki búið lengur einir. Ekki bara að byggja húsnæði heldur að finna peninga til að reka þá þjónustu.“ Hann sagði að þjóðin hefði elst og því fylgdi þetta gríðarstóra verkefni eins og reynsla þjóða sem við viljum bera okkur saman við sýnir. Páll segir að enn sé svigrúm á Landspítala til að taka við Covid-19- sjúklingum ef þörf er á. Staðan er þó síbreytileg og fundar farsóttar- nefnd spítalans fyrst klukkan 7.30 á morgnana og svo reglulega allan daginn og langt fram á kvöld. „Spít- alinn getur brugðist við og tekið að sér gríðarlega erfið verkefni, tíma- bundið. En þá þurfa aðrir hlekkir í keðjunni að taka að sér þá sjúklinga sem lokið hafa meðferð og þurfa að útskrifast. Það er áskorunin,“ sagði Páll. Sjúkrahús í nágrannasveitar- félögum höfuðborgarinnar og Reykjalundur hefðu öll tekið við sjúklingum af Landspítalanum í miklum mæli auk fleiri staða. Um 70 bakverðir eru komnir til starfa á Landspítalanum, þótt stöðugildin séu ekki jafn mörg. Páll vonar að bakvörðum fjölgi og reynt sé eftir megni að fá hæft starfsfólk. Verkefni spítalans hvíli þó fyrst og fremst á fastráðnu, þaulreyndu starfsfólki spítalans sem leggi nótt við dag. Reynsla bakvarðanna er misjöfn og stundum nýtist hún best á öðrum stofnunum, þannig að hægt sé að útskrifa fólk annað af Land- spítalanum. Enginn á gjörgæslu á Akureyri „Miðað við það sem var í fyrstu bylgjunni segir tölfræðin að við get- um átt von á að fá 10-12% af því sem Landspítalinn sér hjá sér miðað við svæðið sem við þjónum aðallega,“ sagði Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Í gær voru 68 sjúklingar inniliggjandi á Landspítala vegna Covid-19. Sam- kvæmt því mætti búast við 7-8 sjúk- lingum á Akureyri. Á SAk lágu þrír sjúklingar með Covid-19 í gær og enginn þeirra á gjörgæslu. Bjarni sagði að SAk gæti tekið við 8-15 sjúklingum með Covid-19, áður en grípa þarf til verulegra ráðstaf- ana. Hægt er að taka við allt að 34 sjúklingum ef allt fer á versta veg. Við þær aðstæður mundi ríkja neyð- arástand á sjúkrahúsinu. Ekki hefur komið til tals að SAk taki við sjúklingum af Landspítalan- um til að létta þar á. „Það þarf mikið að ganga á áður en til þess kemur,“ sagði Bjarni. SAk hætti með val- kvæðar skurðaðgerðir í síðustu viku og eins hefur verið dregið úr annarri valkvæðri starfsemi. Lítil legudeild á Eyrarbakka Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU), sagði að þar væru ekki inni- liggjandi sjúklingar með Covid-19. Aðstaða og áætlun er til hjá HSU ef þarf að setja upp slíka deild. Díana segir að HSU hafi stigið inn með stuðning hjá Sólvöllum, heimili aldraðra á Eyrarbakka, þeg- ar upp kom Covid-19-smit hjá 11 heimilismönnum. Hjúkrunarfræð- ingur frá HSU hefur starfað þar síð- an á miðvikudaginn var. Útbúin var lítil legudeild fyrir heimilisfólk sem smitaðist. Aðrir fóru í annað hús- næði í sóttkví. Sýni eru tekin reglu- lega hjá þeim. Hjá HSU er hólfuð deild þar sem tekið er við sjúklingum sem mögu- lega geta verið smitaðir af Covid-19. Þeim er haldið aðskildum frá öðrum þar til niðurstaða sýnatöku er ljós. Kórónuveirusmit á Íslandi Staðfest smit frá 30. júní 4.931 staðfest smit Heimild: covid.is Nýgengi innanlands 1. nóvember: 198,0 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa Nýgengi, landamæri: 23,5 14 daga nýgengi 72 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af 3 á gjörgæslu 26 ný inn an lands smit greindust 1. nóvember 1.488 í skimunarsóttkví 100 80 60 40 20 0 2.023 einstaklingar eru í sóttkví 905 eru með virkt smit og í einangrun júlí ágúst september október Fjöldi smita innanlands Fjöldi smita á landamærum16 einstaklingar eru látnir Farsóttarsjúkrahús ekki lausn  Afgreiðslufólki hótað í verslunum  Enn er svigrúm á Landspítalanum  Þrír sjúklingar með kór- ónuveiru lágu á SAk í gær  HSU veitti Sólvöllum, heimili aldraðra, stuðning þegar þar kom upp smit Velferðarnefnd Alþingis heldur opinn nefndarfund á morgun klukkan níu. Tilefnið er að Landspítali hafi verið færður á neyðarstig í fyrsta sinn. Helga Vala Helgadóttir, formaður velferðarnefndar, segir í samtali við Morgunblaðið að nefndin hafi átt í góðu samstarfi við þríeyki almannavarna, Landspítalann og ráðherra frá því fyrsta kórónuveirusmit kom upp hér á landi. Það skipti máli að fá upplýsingar frá þessum að- ilum til þess að stjórnvöld geti búið þannig um hnútana að starfsemin fari fram með sem bestum hætti. Fundurinn hefst klukkan níu og verða gestir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, Anna Sigrún Bald- ursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra, Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar og formaður farsótta- nefndar Landspítala, Alma Möller landlæknir, Laura Scheving Thorsteinsson, hjúkrunarfræðingur og teymis- stjóri, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Elsa B. Friðfinns- dóttir skrifstofustjóri og Ásta Valdimarsdóttir, ráðu- neytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu. Ræða ástand spítalans  Mikilvægt að nefndin hafi yfirsýn yfir stöðu spítalans svo að tryggja megi starfsemi, segir formaður velferðarnefndar Morgunblaðið/Ómar Neyðarstig Landspítali var settur á neyðarstig 25. október eftir hópsmit á Landakoti. ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Netverslun Nettó hefur haldist stöð- ug frá því að þriðja bylgja heimsfar- aldurs kórónuveiru hófst hér á landi. Þá virðist sem breytt kauphegðun sé komin til að vera. Þetta segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Samkaupum. „Þetta er orðinn verulegur hluti af markaðnum og þróunin hefur verið mjög hröð. Net- verslun er orðin það stór á stuttum tíma að þetta er breyting í kaup- hegðun til framtíðar,“ segir Gunnar. Í kjölfar fyrstu bylgju faraldurs- ins margfaldaðist netsala Nettó og á tímabili annaði verslunin vart eftir- spurn. Afkastagetan var af þeim sök- um aukin. Ná að anna mikilli eftirspurn „Við lærðum alveg helling og breyttum um aðferðafræði, fórum af stað með vöruhús og bættum af- kastagetu. Núna erum við að ná að anna allri eftirspurninni innan dags- ins. Hins vegar getur afgreiðslutím- inn lengst aðeins ef eftirspurnin eykst. Á Akureyrarsvæðinu er til dæmis gríðarlegt álag,“ segir Gunn- ar og bætir við að salan hafi minnkað í sumar. Hins vegar hafi hún tekið fljótt við sér í haust. „Í ágúst fjór- faldaðist salan og hefur frá þeim tíma verið jöfn. Á sama tíma hefur salan í verslunum haldið sér. Það er auðvitað enginn í útlöndum og marg- ir veitingastaðir eru lokaðir. Það er því meira keypt í búðunum þó fólk fækki kannski ferðunum þangað. Helsta breytingin er að fólk fer sjaldnar og kaupir meira inn í einu,“ segir Gunnar. Styrkja góð málefni Nú á dögunum hrinti Nettó verk- efninu, Notum netið til góðra verka, úr vör. Felur verkefnið í sér 200 kr. styrk til góðra málefna með hverri keyptri sendingu úr netverslun Nettó. Ef vel tekst til má ráðgera að styrkurinn kunni að hlaupa á millj- ónum króna. Fyrirtækið hefur óskað eftir tillögum um góð málefni frá við- skiptavinum. „Á laugardag komu 160 athugasemdir sem sýnir kannski hvar netverslun er stödd. Verkefnið verður í gangi út nóvember.“ Netsala hefur haldist stöðug  Mikið álag fyrir norðan  Telur kauphegðun breytta til frambúðar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nettó Netverslun hefur blómstrað í faraldrinum og þar eru matarinnkaup engin undantekning. Netverslun hefur margfaldast hjá Nettó á þessu ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.