Morgunblaðið - 03.11.2020, Side 10

Morgunblaðið - 03.11.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020 Ísfrost, sími 577 6666, Funahöfða 7, 110 Reykjavík Ýmsar stærðir kælikerfa í allar stærðir sendi- og flutningabíla, fyrir kældar og frystar vörur. Vottuð kerfi fyrir lyfjaflutninga. Við ráðleggjum þér með stærð og gerð búnaðarins eftir því sem hentar aðstæðum hverju sinni. ÖFLUG KÆLIKERFI FRÁ THERMO KING FÆRANLEG KÆLITÆKI Í SENDIBÍLA Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Fyrstu skrefin í snjallvæðingu Hafnarfjarðabæjar hafa nú verið tekin með uppsetningu veður- stöðvar loftgæðamæla og skynjara í rusladöllum á miðbæjarsvæðinu. Lýsir hf. í Hafnarfirði og starfs- fólk þar hafa útbúið þessa tækni. „Almenningur kallar eftir upplýs- ingum sem aftur má nýta til þess að skila samfélaginu margvíslegu hagræði,“ segir Hrafn Guðbrands- son, framkvæmdastjóri Lýsis, í samtali. Búnaðurinn var kynntur í sl. viku en í Hafnarfirði er vilji til þess að innleiða þessa tæknilausn víðar í starfsemi bæjarins. Veðurstöð á bókasafnshúsi „Við bindum miklar vonir við snjalltækni og að hún auki skil- virkni, hagræðingu og geti bætt þjónustu við íbúa,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Af hálfu bæjaryf- irvalda er horft til þess sem kallað er „snjallborg“ með skilvirkari þjónustu að leiðarljósi. Er núna meðal annars í skoðun að í Hafn- arfirði verði settir upp heitir reitir á fjölförnum stöðum í bænum; það er svæði þar sem er aðgangur að þráðlausu neti og upplýs- ingaveitum á netinu. Þar hafa Thorsplan við Standgötu og tjald- svæðið á Víðistaðatúni verið nefnd. Veðurstöðin í Hafnarfirði er á þaki bókasafnshússins á horni Reykjavíkurvegar og Strandgötu. Hún er tengd svonefndu LoRa- WAN-kerfi, sem Lýsir á og rekur, og á vef Hafnarfjarðarbæjar er hægt að nálgast upplýsingar um til dæmis úrkomu, vindátt og -hraða, svikryksmengun, upp- gufun, sólargeislun og loftþrýsting auk veðurspár. Skynjarar sem starfsfólk Lýsir hefur forritað og virkjað hafa nú verið settir í rusladalla í Strand- götu í Hafnarfirði og verður komið fyrir víðar á næstunni. Búnaður þessi greinir hve mikið er í stömp- um þessum og sendir upplýsingar þar um til þeirra sem stýra sorp- hirðu. Hreinsunarfólk er þá aðeins sent út á örkina ef tunnurnar eru orðnar fullar. Fyrrnefndir skynj- arar ganga fyrir sparneytnum raf- hlöðum sem nýtast í allt að fimm til tíu ár. Vakti bílastæði og stýri götuljósum „Snjalltækni getur nýst á flest- um sviðum samfélagsins. Mögu- leikarnir eru endalausir og við er- um alltaf með spennandi verkefni í þróun,“ segir Hrafn Guðbrands- son. „Vöktun á bílastæðum er meðal verkefna sem við erum með í vinnslu, betri nýting þeirra er áherslumál víða. Þá erum við að útbúa lausn við stjórn götuljósa, sem er með rauntímaeftirliti þann- ig að lýsingin verður skilvirkari, og öruggari en nú.“ Setja skynjara í snjalla dalla  Lýsir með lausn í snjöllum Hafnarfirði  Veðurstöð og heitir reitir  Hag- ræði sem bætir þjónustu bæjarins  Endalausir möguleikar og spennandi þróun Morgunblaðið/Sigurður Bogi Snjallbær Snjalltækni getur nýst á flestum sviðum samfélagsins, segir Hrafn Guðbrandsson, hér við rusladallana sem eru við Strandgötuna. Jón Gunnarsson hjá Ice-Group í Reykjanesbæ hefur styrkt starf Fjölskylduhjálpar Íslands (FÍ) í bænum með rausnarlegum hætti undanfarin fjögur ár. Hann hefur fært hjálparstarfinu 100 mat- argjafir fyrir einstaklinga. Ice-Group hefur nú ákveðið að gefa matvörur að upphæð 500.000 kr. á mánuði í október, nóvember og desember, samtals 1.500.000 kr. Þetta er gert í samvinnu við Krón- una sem gefur sérstakan afslátt. Anna Valdís Jónsdóttir, varafor- maður FÍ, sagði að Sigurður Magn- ússon, fisksali í Reykjanesbæ, færði Fjölskylduhjálpinni í Reykjanesbæ fiskmeti í hverri viku til úthlutunar. Auk þess gaf hann 40 gjafabréf til kaupa á fiskmeti sem skjólstæð- ingar nýttu sér. Fjölskylduhjálpin á Suðurnesjum höfðar nú til annarra fyrirtækja á svæðinu að láta einnig gott af sér leiða. gudni@mbl.is Rausnar- legar gjafir  Fjölskylduhjálpin í Reykjanesbæ styrkt Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hjálparstarf Fjölskylduhjálp Ís- lands úthlutar mat til þurfandi íbúa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.