Morgunblaðið - 03.11.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.11.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020 Hreyfing Það er kjörið í notalegu haustveðri að leggja í göngu og upplifa fallegu haustlitina sem er að finna í íslenskri náttúru. Þá er ekki verra að hafa góðan félagsskap. Eggert Mjög miklar breyt- ingar hafa orðið á samfélaginu á árinu 2020 enda hefur kór- ónuveirufaraldurinn sett mark sitt á dag- legt líf allra lands- manna. Áhrifanna gætir alls staðar í samfélaginu en sótt- varnaaðgerðir hafa leitt til takmarkana á skólastarfi, ferðafrelsi og félagsstarfi svo fátt eitt sé nefnt. Þá hefur ástandið leitt til fé- lagslegrar einangrunar ýmissa hópa í viðkvæmri stöðu líkt og eldri borgara. Þessi staða verður sífellt þyngri þar sem faraldurinn hefur dregist á langinn, ekki síst meðal viðkvæmra hópa. Með það í huga er mikilvægt að gerð verði úttekt á því hver raunveruleg staða er í Reykjavík. Sjálfstæðisflokk- urinn leggur til út- tekt á stöðu geð- heilbrigðismála Í borgarstjórn í dag mun ég fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík flytja til- lögu um að gerð verði úttekt á stöðu geðheil- brigðismála hjá Reykjavíkurborg vegna kórónuveir- unnar. Í kjölfarið verði unnin að- gerðaáætlun sem fylgt verði eftir. Fulltrúum velferðarsviðs, skóla- og frístundasviðs og íþrótta- og tóm- stundasviðs verði falin gerð úttekt- ar annars vegar og aðgerðaáætl- unar hins vegar enda eru það þau svið Reykjavíkurborgar sem málið snertir helst. Vinnan verði jafn- framt unnin í samstarfi við fagaðila á sviði geðheilbrigðismála ásamt fulltrúum frá samtökum sem sinna geðheilbrigðismálum. Lagt er til að vinnu við greiningu og aðgerða- áætlun ljúki eigi síðar en í árslok 2020 og niðurstöðunni verði skilað til borgarráðs. Aðgerðaáætlun komi til framkvæmda í ársbyrjun 2021. Mikilvægt að bregðast við Það ástand sem hefur skapast í samfélaginu vegna kórónuveir- unnar bitnar illa á viðkvæmum hóp- um og því miður benda bráða- birgðatölur frá Ríkislögreglustjóra vegna sjálfsvíga til þess að staða geðheilbrigðismála sé þung. Alls var farið í 30 útköll vegna sjálfsvíga á fyrstu átta mánuðum ársins en út- köll á sama tíma árið 2019 voru 18 talsins. Að óbreyttu stefnir í aukið atvinnuleysi og mun þrengri stöðu en núna er í samfélaginu og því brýn nauðsyn að bregðast við. Félagsleg einangrun meðal ungmenna Í ofanálag við kórónuveiruna er ástandið meðal barna og ungmenna ekki eins og best verður á kosið í geðheilbrigðismálum. Það er því hætt við að þeirra staða sé að versna þar sem félagsleg einangrun er töluverð meðal ungmenna sem ekki hafa mátt mæta í skóla og lítið hefur verið um virkt félagslíf. Ung- mennaráð borgarinnar höfðu þegar árið 2017 óskað eftir því að geð- fræðsla fyrir nemendur á mið- og unglingastigi yrði efld. Tillaga þess var samþykkt en hefur ekki komið til framkvæmdar. Það er mikilvægt að efla fræðslu um geðheilbrigði og ætti það að vera eitt af forgangs- atriðum sem farið væri í núna. Verum leiðandi Mikilvægt er að við beinum at- hygli okkar að forvörnum og heilsu- eflingu í ríkara mæli, samhliða því að bæta kerfið sem tekst á við af- leiðingar geðraskana. Reykjavík- urborg verður að hafa skýra stefnumótun og vera leiðandi í því að allir íbúar sveitarfélagsins setji geðheilsuna í forgang. Þrengri fé- lagsleg staða vegna kórónuveir- unnar gerir það enn brýnna en ella. Eftir Valgerði Sigurðardóttur »Ungmennaráð borg- arinnar höfðu þegar árið 2017 óskað eftir því að geðfræðsla fyrir nemendur á mið- og unglingastigi yrði efld. Valgerður Sigurðardóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. valgerdur.sigurdardottir@reykja- vik.is Hugum að geðheilbrigði í heimsfaraldri Lög um fæðingar- orlof heyra undir barna- og félagsmála- ráðherra (bfr) sem er svolítið sérstakt vegna þess að þá mætti ætla að lögin væru til að gæta að félagslegum réttindum og hags- munum barna og frek- ar þyrfti að gæta að þeim börnum sem ættu verr stadda foreldra. Félagslegt ör- yggi er þegar ríkið verndar ein- staklinga fyrir alls kyns efnahags- legum og félagslegum vandamálum, líkt og vandamálum sem tengjast m.a. veikindum, meðgöngu og fæð- ingu. Talið er að ríkinu beri skylda til að tryggja að einstaklingar sem á þurfa að halda fái bætur. Samkvæmt íslensku stjórnarskránni er ríkinu bannað að mismuna fólki með lög- um, þó hefur verið talið að ríkinu sé heimilt að aðstoða þá sem minna mega sín umfram þá sem betra hafa það, en það virðist hafa breyst. Lög um fæðingarorlof slógu alveg nýjan streng þegar kom að styrk- veitingum ríkisins. Lögin kveða á um að ríkið skuli styðja þá sem hærri laun hafa um- fram hina. Þetta eru eiginlega kapítalísk lög. Hjálpa skal hinum „duglegu“ en hinir geta étið það sem úti frýs. Einkennilegt að lögin heyri undir bfr nema það sé komin fram ný stefna um félagsmál og fullreynt með „aum- ingjana“ og rétt að rík- ið einbeiti sér að því að styrkja þá sem betra hafa það og hafa sýnt hversu „duglegir“ þeir eru. Ekki að það þurfi að vera slæmt. Er þá ekki um að ræða ráðherra kapítalískra leiða sem og félagslegra. Með lög- unum er ljóst að ríkið telur að börn sem eiga foreldra sem minna mega sín skuli fá að finna fyrir því hvernig það er og þess vegna sé ekki rétt að veita þeim sama styrk og foreldrum hinna „duglegu“. Um þessi lög er mikil sátt í þjóðfélaginu, sem sjá má á því að verkalýðshreyfingin styður þau sem og að sjálfsögðu bfr og Al- þingi, og Hæstiréttur telur þau í samræmi við stjórnarskrána. Í lögunum eru mörg ákvæði til að koma í veg fyrir að „aumingjarnir“ fái umfram það sem þeim ber. Svo kom kórónuveiran og bætti um bet- ur. Veiran kom eins og himnasend- ing til stjórnvalda vegna þess að þeir sem hefðu átt rétt misstu hann. Stjórnvöld bönnuðu fólki að mæta í vinnuna. Samkvæmt lögum er hægt að dæma fólk í þriggja ára fangelsi ef það mætir í vinnuna. Almennt er fólk þannig innstillt að það telur rétt að fylgja reglum stjórnvalda þótt þær séu ekki endilega alltaf gáfuleg- ar, en það er kannski vegna þess að oft gefast ráð því verr sem fleiri koma saman. Dóttir mín vinnur á hárgreiðslu- stofu og yfirvöld skipuðu að þeim yrði lokað m.a. í apríl. Vegna þess að dóttir mín var í skóla á þessum tíma vann hún einungis 25%-40% vinnu. Stjórnvöld ákváðu þá að koma fram með eitthvað sem nefnt hefur verið hlutabótaleiðin. Til að hún ætti rétt á leiðinni greiddi atvinnurekandi hennar henni mótframlag í apríl vegna þess að atvinnurekandinn hélt þá að hún ætti rétt á hlutabótaleið- inni. Starfshlutfall hennar lækkaði um 100% vegna þess að yfirvöld bönnuðu henni að vinna. Samkvæmt reglum um hlutabótaleiðina þurfti starfshlutfall að lækka um a.m.k. 20%, sem það hafði gert í hennar til- felli. Hún þurfti hins vegar, til að eiga einhver réttindi, að vinna 50% vinnu, en það var bannað. Svo stjórnvöld sögðu henni að hún ætti ekkert inni hjá þeim, hvorki atvinnu- leysisbætur né bætur í samræmi við hlutabótaleiðina. Eru þeir sem falla svona milli skips og bryggju kannski „aumingjarnir“ sem þarf að gæta að því að fái ekki of mikið? Falla þeir kannski ekki milli skips og bryggju? Dóttir mín er barnshafandi og varð veik og þurfti þess vegna að fara í veikindafrí tveimur mánuðum fyrir ætlaðan fæðingardag. Enn og aftur leitaði hún á náðir stjórnvalda. Lög um fæðingarorlof kveða á um að sé þungaðri konu nauðsynlegt af heilsufarsástæðum að leggja niður launuð störf eða hætta þátttöku á vinnumarkaði meira en mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag barns skuli hún eiga rétt á greiðslum í fæðing- arorlofi þann tíma en þó aldrei leng- ur en tvo mánuði. Skýrara gat þetta nú ekki verið svo dóttir mín sótti um réttindi í samræmi við framangreint og skilaði öllu sem henni bar að skila og beðið var um eins og t.d. lækn- isvottorði. Svarið kom svo frá Vinnu- málastofnun og það kom örlítið á óvart og var á þá leið að þar sem hún hefði ekki verið í vinnu í apríl ætti hún engan rétt! Stjórnvöld bönnuðu henni að mæta til vinnu í apríl og hún hlýddi því, enda þriggja ára fangelsi yfirvofandi ef hún mætti. Stjórnvöld neituðu henni um réttindi sem hún hefði átt fullan rétt á ef stjórnvöld hefðu ekki bannað henni að mæta til vinnu í apríl. Þetta er jafn gáfulegt og ef at- vinnurekandi hringdi í starfsmann sem væri með ráðningarsamning við hann og segði að hann þyrfti ekkert að mæta í vinnu næstu viku vegna þess að atvinnurekandinn ætlaði að nota tímann til að þrífa og mála en svo ætti starfsmaðurinn að mæta til vinnu eftir það. – Þegar launin voru svo greidd fékk starfsmaðurinn ekki laun vegna þessarar viku. Þegar hann spurðist fyrir um hverju það sætti sagði atvinnurekandinn að það væri vegna þess að hann hefði ekki mætt til vinnu. Bfr var látinn vita af þessu og honum virðist hafa þótt þetta eðli- legt. Eftir Berg Hauksson » Þeir sem hefðu átt réttindi missa þau vegna þess að stjórn- völd bönnuðu þeim að mæta til vinnu. Bergur Hauksson Höfundur er lögmaður og afi. „Kapítalista“-, barna- og félagsmálaráðherra?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.