Morgunblaðið - 03.11.2020, Side 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020
✝ Ólafur Guð-mundsson
fæddist í Vest-
mannaeyjum 11.
maí 1934. Hann
andaðist á Landa-
koti 24. október
2020. Foreldrar
hans voru hjónin
Guðmundur Jóns-
son skósmiður á
Selfossi, f. 23.4.
1899, d. 16.1. 1989,
og Jóhanna Ólafsdóttir hús-
móðir, f. 26.7. 1895, d. 27.7.
1984.
Bræður Ólafs voru Marinó, f.
1927, d. 2006, og Björgvin, f.
1929, d. 2005. Uppeldisbróðir
og bróðursonur Ólafs er Jó-
hann Marinósson, f. 1947.
Hinn 7. ágúst 1964 giftist
Ólafur Ágústu Hafberg banka-
starfsmanni, f. 14. apríl 1947,
d. 8. janúar 2017, bjuggu þau
Hjaltason, f. 2005. Sonur Ernu
Margrétar er Viktor Rúnar
Nielsen, f. 2010. Synir Guð-
laugar Sunnu eru Franz Ágúst,
f. 2017, og Valur Kári, f. 2020.
Ólafur málarameistari ólst
upp í Vestmannaeyjum til 11
ára aldurs en þá flutti hann á
Selfoss. Hann lærði málaraiðn
á Selfossi og vann við fagið til
75 ára aldurs. Ólafur stundaði
stundaði myndlistarnám í
Myndlista- og handíðaskólanum
einn vetur og sérhæft myndlist-
arnám í Kaupmannahöfn tengt
oðrun og marmaramálun. Hann
hélt þeirri menntun reglulega
við og málaði meðal annars
stigaganga og lagaði gamalt
handverk með þessari tækni.
Ólafur var virkur í félagsmál-
um og starfaði um árabil í Mál-
arafélagi Reykjavíkur og Al-
þýðuflokki Kópavogs.
Útför Ólafs fer fram í Garða-
kirkju í dag, 3. nóvember 2020,
klukkan 15.
Streymt verður frá útförinni:
https://youtu.be/NCvpkp8GGtM
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á:
https://www.mbl.is/andlat
nánast alla sína bú-
skapartíð á Þing-
hólsbraut í Kópa-
vogi. Börn þeirra
eru: 1) Vilberg
Friðrik, f. 4.4.
1967, í sambúð
með Gitte Haman,
f. 17.4. 1968. 2) Jó-
hanna Guðrún, f.
17.4. 1968, gift
Hjalta Guðbirni
Karlssyni, f. 17.3.
1962. Barnabörn Ólafs og
Ágústu eru átta og þrjú lang-
afabörn.
Börn Vilbergs eru Erna Mar-
grét, f. 1990, Ágústa Jóhanna,
f. 1999, Elisabeth Lykke, f.
2003, og Ísak Óli Kjeld, f. 2010.
Börn Jóhönnu eru Guðlaug
Sunna Karvelsdóttir Gränz, f.
1990, Guðrún Heiða Hjaltadótt-
ir, f. 2001, Ólöf Aníta Hjalta-
dóttir, f. 2003, og Hjalti Freyr
Það er skrítið að vera að
kveðja pabba sinn og vera
fremur full af þakklæti en yf-
irkomin af sorg. Ég er þakklát
fyrir að hafa fengið að vera ná-
in pabba. Fengið að læra af
honum ýmsa iðn og listfengi.
Þakklát fyrir að hafa ljúf-
mennsku hans og æðruleysi til
eftirbreytni. Og þakklát fyrir
að hann þurfti ekki að þjást í
veikindum heldur sofnaði hann
hljóðlega og sáttur undir góðri
þjónustu og fagmennsku heil-
brigðisstarfsmanna á Landa-
koti. Hann fékk því notið út-
sýnisins á Þinghólsbrautinni
eins og hann vildi alveg þangað
til undir það síðasta. Síðasta
daginn sem hann lifði hringdi
hann í mig, sagði: „Ég bið að
heilsa öllum, og þú veist Jó-
hanna að ég elska ykkur öll.“
Það eru orð að sönnu, pabbi
elskaði fjölskylduna sína, gerði
allt fyrir börn og barnabörn
sem í hans valdi stóð, ljúfur og
elskulegur. Nú er hann farinn
til Gústu sinnar sæll og sáttur
lífdaga. Far í friði elsku pabbi.
Jóhanna Guðrún
Ólafsdóttir.
Í dag kveðjum við góðan vin,
Ólaf Guðmundsson málara-
meistara. Hann var mér sem
bróðir alla tíð. Við ólumst upp á
sama heimili, ég var 13 árum
yngri en hann. Samskipti okkar
voru alla ævi ljúf og góð. Óli
var menntaður málari og sér-
menntaður frá Kaupmannahöfn
í skiltamálun og ýmsu fleiru
tengdu faginu. Hann starfaði
við fagið mestan hluta ævi sinn-
ar. Hann var vandvirkur og ná-
kvæmur í öllu sem hann gerði
og vann oft fyrir sömu fjöl-
skyldurnar áratugum saman.
Þegar ég eltist dró úr ald-
ursmuninum á milli okkar ein-
hvern veginn. Óli varð stóri-
bróðir og ég litlibróðir. Óli var
góður félagi og vinur og pass-
aði vel upp á mig sem ungling
og reyndar alla tíð.
Sem ungur maður fór hann
með vini sínum til Tönsberg í
Noregi og vann þar í verk-
smiðju í marga mánuði. Þetta
var honum mikil upplifun og
hann var orðinn sigldur. Lærði
líka norsku. Það var ekki al-
gengt að fólk færi mikið til út-
landa á þeim árum. Og auðvitað
fékk „litlibróðir“ flotta jólagjöf
þetta ár – svarta drossíu, raf-
hlöðudrifna. Lítið úrval var af
leikföngum fyrir börn á þessum
árum og enginn átti flottari bíl
en ég.
Síðan liðu árin og við eign-
uðumst báðir fjölskyldur. Elstu
börnin okkar voru á svipuðum
aldri. Við Óli keyptum okkur
saman sumarbústað á Stokks-
eyri þar sem við nutum þess að
eyða parti úr sumrinu. Rækt-
uðum grænmeti í sandgarðin-
um okkar og krakkarnir undu
vel við sitt. Í minningunni skein
sólin alla daga þarna á suður-
ströndinni og við vorum öll að
dunda eitthvað. Krakkarnir
veiddu við bryggjuna og komu
heim með alls konar veiði, mest
marhnúta.
Við áttum forfeður frá þess-
um stað og það tengdi okkur
betur við hann. Eftir 10 ár
seldum við svo kotið til ætt-
ingja okkar.
Seinna ferðuðumst við saman
með konum okkar til nokkurra
landa. t.d. Kúbu-Níkaragva og
líka Evrópu. Það lá vel fyrir
honum að læra tungumál, talaði
ensku, dönsku og spænsku. Var
grúskari og lærði þetta bæði
einn og líka á námskeiðum.
Ferðirnar okkar voru mjög
skemmtilegar samverustundir.
Óli var mjög góður og hjálp-
legur foreldrum sínum og að-
stoðaði þau við ýmislegt þegar
þau voru orðin öldruð. Hann
elskaði barnabörnin sín mikið
og talaði oft um þau og hrósaði.
Hann og Ágústa kona hans
voru mjög barngóð bæði og
krakkar hændust að þeim.
Hann var líka mjög hjálpleg-
ur við okkur í fjölskyldunni og
fljótur að bjóða aðstoð enda
handlaginn.
En lífið líður hratt og áður
en maður veit af er komið að
kveðjustund. Ég og kona mín
og börn viljum þakka „stóra-
bróður“ mínum fyrir alla vin-
áttu og hlýju sem við fengum
að njóta frá honum alla ævi.
Farðu í friði kæri vinur.
Jóhann Marinósson.
Ólafur
Guðmundsson
✝ IngveldurHilmarsdóttir
fæddist í Reykjavík
27. júlí 1937. Hún
lést á Hrafnistu við
Sléttuveg í Reykja-
vík 24. október
2020.
Foreldrar henn-
ar voru Ásta Kjart-
ansdóttir, f. 13.
ágúst 1915, d. 8.
mars 1986, og
Hilmar J. Norðfjörð, f. 2. sept-
ember 1906, d. 24. mars 1988.
Þau skildu. Ásta giftist Erlendi
Þorsteinssyni, f. 12. júní 1906, d.
10. júní 1981.
Ingveldur giftist Jóni
Ingvarssyni, f. 10. febrúar 1937,
d. 6. júní 2016.
Börn þeirra eru: 1)
Erlendur, f. 27.
febrúar 1957,
kvæntur Kristínu
Einarsdóttur, f. 22.
janúar 1958. Börn
þeirra voru fjögur,
eitt er látið. 2)
Kjartan, f. 28. nóv-
ember 1959, d. 30.
nóvember 2006.
Giftur Írenu Er-
lings, f. 7. apríl 1961. Börn
þeirra eru tvö og barnabörn
þrjú. 3) Ásta f. 18. október 1963,
d. 14. ágúst 2006, gift Guðsteini
Eyjólfssyni, f. 20. desember
1958. Þau skildu. Börn þeirra
voru tvö og eitt barnabarn.
Nú þegar komið er að því að
kveðja þig elsku frænka er
margs að minnast en ekki er
hægt að telja allt upp hér.
Inga var kornung þegar for-
eldrar hennar skildu og móðir
hennar giftist Erlendi Þor-
steinssyni sem reyndist henni
besti fósturfaðir. Inga var mik-
ið í Þrúðvangi á Laufásvegi 7
hjá afa Kjartani og ömmu Mar-
gréti. Hún gekk í Miðbæjar-
barnaskólann sem var beint á
móti. Ásta og Erlendur fluttu í
Eskihlíð 21 og þar ólst Inga
upp.
Við Inga urðum strax miklar
vinkonur og leit ég alltaf upp til
hennar þar sem hún var tveim-
ur árum eldri en ég. Ásta og
Erlendur voru mikið á ferðalagi
þar sem hann var varaþing-
maður Alþýðuflokksins og í
síldarútvegsnefnd á Siglufirði
svo hún fékk oft að gista á Ás-
vallagötunni heima hjá mér
þannig að samband okkar varð
nánara og leyndarmálin flugu á
milli. Síðan fór Inga frænka til
Elínar og Hannesar frænda í
New York sem vann þá hjá
Sameinuðu þjóðunum. Hún fór
í skóla þar og var einn vetur og
tók sérnám í spænsku, sem
kom sér vel seinna þegar hún
og Jón maðurinn hennar
keyptu hús á Spáni sem þau
áttu í tíu ár og voru þar á
hverjum vetri og heimsóttu
börnin þau mikið þangað. Hún
leysti mig af hjá Sjóvá eftir sjö
ára vinnu þar sem ég gekk með
fimmta barnið og í þá daga
þurfti að fara heim til fólks og
innheimta á staðnum. Seinna
komu gíróseðlarnir og Inga var
hækkuð upp á skrifstofu og var
þar í nær þrjátíu ár. Inga og
Jón ferðuðust mikið um landið
og voru það ógleymanlegar
ferðir sem við fórum með þeim,
eins og í Landmannalaugar,
Eldgjá og innar í landið, staðir
sem ég hafði aldrei komið á,
þetta var stórkostleg upplifun.
Það var ekki alltaf gleði sem
fylgdi þeim hjónum. Þau misstu
fyrsta barnabarn sitt, Jón
Ingvar, 10 ára úr krabbameini í
janúar árið 1990 og sorgin hélt
áfram því Ásta dóttir þeirra
barðist við krabbamein í fimm
ár og lést í ágúst 2006. Kjartan
sonur þeirra var fluttur til
Danmerkur og var að glíma við
MS-sjúkdóminn og kom heim
til þess að fylgja systur sinni
og þremur mánuðum seinna
var hann dáinn, í nóvember
2006. Heilsu hrakaði hjá Ingu
fljótlega eftir þetta og var hún
meira og minna undir eftirliti
lækna. Þau seldu húsið á Spáni
2014 vegna heilsubrests og
varð það mikil breyting á lífi
þeirra. Jón keyrði hana á
Landspítalann til rannsóknar
og aðeins nokkrum dögum
seinna keyrði Erlendur Jón á
Landspítalann vegna sýkingar í
sári á hendi sem ekki var hægt
að lækna og dó Jón viku seinna
úr blóðeitrun. Inga var í dag-
vist á Borgum í Grafarvogi og
var mjög ánægð þar, þar til
hún veiktist í sumar og þurfti
að fara á spítala, fyrst Landa-
kot, síðan Vífilsstaði og endaði
á Sléttuveginum þar sem hún
kvaddi þessa jarðvist umkringd
fjölskyldunni sinni.
Ég kveð þig í bili elsku
frænka og þakka allt er við átt-
um saman.
Áslaug H.
Kjartansson.
Ingveldur
Hilmarsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
fósturmóðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARÍA GUNNARSDÓTTIR,
Mosabarði 10, Hafnarfirði,
lést á Sólvangi sunnudaginn 25. október.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
4. nóvember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis
nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina.
Anton H. Jónsson
Gunnar Már Antonsson Guðrún Lára Guðmundsdóttir
Guðrún Antonsdóttir Dan Hillergård
Anton Már Antonsson Helga María Guðjónsdóttir
Auður Lísa Antonsdóttir Egill Örlygsson
Sigurður Hilmar Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
MAGNÚS H. MAGNÚSSON
rafvirkjameistari frá Hólmavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
mánudaginn 19. október. Útförin fer fram
frá Lindakirkju fimmtudaginn 5. nóvember klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins fjölskylda og nánustu vinir
viðstödd en streymt verður frá athöfninni á Facebook;
www.facebook.com/groups/magnus.h.magnusson
Þorbjörg Magnúsdóttir
Sigrún Hulda Magnúsdóttir
Sigrún Harpa Magnúsdóttir Jónas Þórðarson
Marín Magnúsdóttir Andri Þór Guðmundsson
Eyjólfur Magnússon Auður Agla Óladóttir
Sigurbjörg Magnúsdóttir Mohammed Omar
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
AMALÍA BERNDSEN,
Lundi 7, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans
sunnudaginn 18. október.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn
4. nóvember klukkan 15. Í ljósi aðstæðna munu einungis þeir
nánustu vera viðstaddir. Útförinni verður streymt á
streyma.is/utfor. Sálmaskrá verður aðgengileg á vefslóðinni.
Einnig verður hægt að nálgast hana í anddyri Seltjarnarneskirkju
á útfarardegi.
Sveinbjörn Þór Haraldsson
Inga Björk Sveinbjörnsdóttir Ágúst Heiðdal Friðriksson
Haraldur Þór Sveinbjörnsson Edda Þöll Hauksdóttir
Berglind Berndsen Sveinbjörnsdóttir, Steinar V. Ægisson
og barnabörn
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma
og systir,
ÓLÖF ODDSDÓTTIR
lífeindafræðingur,
Kríuhólum 2,
lést 28. október. Útförin fer fram frá
Lindakirkju 6. nóvember klukkan 15.
Aðeins nánustu aðstandendur verða viðstaddir, en athöfninni
verður streymt á https://www.lindakirkja.is/utfarir/
Þeim sem vilja minnast Ólafar er bent á mæðrastyrksnefnd.
Arnar Pálsson Sólveig Sif Halldórsdóttir
Þorgeir Arnarsson Lilja Oddsdóttir
Áshildur Arnarsdóttir Kristján Oddsson
Teitur Arnarsson Ólafur Oddsson
Ágústa Oddsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir
og afi,
ÞORSTEINN G. SIGURÐSSON,
Þorláksgeisla 1,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
28. október. Útförin fer fram frá
Árbæjarkirkju föstudaginn 6. nóvember klukkan 14.30.
Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur
viðstaddir.
Sigurður Þórir Þorsteinsson Hildur Hrönn Oddsdóttir
Halldór Örn Þorsteinsson Lilja Björg Sigurjónsdóttir
Kristján Helgason
Erna Þórey, Eiður Þorsteinn, Alexandra Mist, Helga Karen,
Emma Sóley og Ísak Logi
Minningargreinar
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum.