Morgunblaðið - 03.11.2020, Page 24

Morgunblaðið - 03.11.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020 SLITSTERK OG MJÚK SÆNGURVERASETT fastus.is/rumfot Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Slétt Röndótt Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Dagurinn í dag hentar sérstaklega vel til að hefjast handa við nýtt verkefni. Láttu aðra um sín mál og snúðu þér að öðru á meðan. 20. apríl - 20. maí  Naut Varastu alla sýndarmennsku því þeir sem þú vinnur fyrir sjá í gegn um allt slíkt. Gættu þess að ofmetnast ekki þegar vel gengur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ættir að láta það eftir þér að kaupa eitthvað sem getur bætt heilsu þína til lengdar. Sjáðu til þess að ekkert og enginn trufli þig, þú mátt ekki við því. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þessi dagur nýtist þér vel hvað fjár- málin varðar en það fer þó eftir því hvernig þú hegðar þér. Losaðu þig við alla bagga og gakktu keikur á vit framtíðarinnar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur nokkrar ástæður til að vera reiður við ástvin þinn, en engin þeirra skiptir miklu máli. Allt á sér sinn stað og sína stund. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Fylgdu hugboði þínu og komdu skipu- lagi á atvinnu- og einkalíf þitt. Veldu þau verk- efni sem þér henta best og láttu aðra um að ganga frá hinum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú þarft að gefa þér tíma til þess að koma fjármálunum á hreint. Að hafa yfirsýn yfir hvert þú stefnir veitir þér öryggi og ró til að geta notið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt þér virðist lífið eitt allsherj- arveisluborð sem þú eigir bara að ganga í þá ertu ekki einn í heiminum. Ekki reyna að ráðskast með fólk. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert eins og suðupottur og þarft að fá útrás fyrir reiði þína. Hafðu hug- fast að ef þú ert tilbúinn til að gefa af þér færðu heilmikið til baka. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hindranir á ferli þínum má yfir- stíga með smá styrk og ákveðni. Líttu til þess sem vel hefur gengið og er þér og þínum til skemmtunar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þín bíða miklar rannsóknir í sam- bandi við verkefni sem þér verður falið. Sinntu þínu og varastu að dragast inn í deilur manna. 19. feb. - 20. mars Fiskar Breytingar geta átt við um allt, frá því að færa húsgögn upp í að skipta um starfs- vettvang. Vertu óhræddur við að segja nei. S igurður Páll Tryggvason fæddist á Húsavík 3. nóv- ember 1970 og ólst upp á Þverá í Reykjahverfi. „Ég hef alltaf verið sveita- strákur í mér og verið í búskap meira og minna alla mína ævi, þótt ég hafi ekki búið í sveitinni allan tímann og má segja að ég sé núna hobbýbóndi með foreldrum mínum á Þverá.“ Sigurður Páll er rótgróinn í Reykja- hverfinu enda á þriðju kynslóð sem hafa búið í sveitinni. „Á sumrin var maður í útileikjum og að hjóla og í fótbolta og svo var maður á snjóþotu á veturna að leika sér í snjónum auk þess sem maður fór snemma að taka þátt í búverkunum.“ Það er greinilegt að Sigurður er mikið náttúrubarn en hann er einnig mjög félagslyndur og áhugasamur um velferð náungans. Sigurður er búfræðingur frá Hvanneyri og útskrifaðist tvisvar, lauk fyrst hefðbundnu búfræðinámi og bætti svo við rekstrarfræði frá bú- fræðideildinni. „Ég starfaði á sambýli á Húsavík og við liðveislu á mínum yngri árum. Eftir aldamótin flutti ég til Akureyrar og starfaði þar í tæp tíu ár á sambýli þar sem hluti íbúanna voru aldraðir og einnig var ég á þess- um árum með allmarga skjólstæð- inga í liðveislu. Ég hef mikinn áhuga á mannlegum samskiptum og þroska manneskjunnar og hefur alltaf fund- ist það skemmtileg áskorun að leiða fram styrkleika hvers og eins svo hann fái notið sín. Liðveislan fólst mikið í því að rjúfa félagslega ein- angrun skjólstæðinga minna og efla andlega og líkamlega heilsu þeirra.“ Hóflega stríðinn Árið 2008 lauk Sigurður Páll prófi frá Nuddskóla Íslands, en hann sagði að á þeim tíma hafi hann verið farinn að huga að samspili líkama og and- legrar heilsu og vildi fá meiri þekk- ingu. „Þar var farið ítarlega í flesta þætti sem viðkoma heilsu, andlegri og líkamlegri, eins og næringarfræði, hreyfingu og líkamsbeitingu. Ég lærði þar að líta heildrænt á ein- staklinginn, t.d. út frá göngulagi og hátterni sem var mjög lærdómsríkt.“ Það þarf ekki að tala lengi við Sig- urð til að heyra að þar er mikill húm- oristi á ferð, sem lætur sér annt um umhverfið og fólkið í kringum sig. „Ég hef alltaf haft mjög gaman af fólki og viljað gera öðrum lífið léttara. Mér finnst gaman að glettast við fólk og er hóflega stríðinn, nema eig- inkonunni finnst það stundum mega vera í minna mæli. Ég kann að meta hreinskilni fólks.“ Náðu að jarma sig saman Margir muna frá voðaveðrinu árið 2012 þegar fjöldi kinda fór undir snjó á Norður- og Norðausturlandi og bændur misstu margt fé. Sigurður rifjar upp að hann hafi ásamt föður sínum farið upp í fjall að leita að fé, nánast daglega vikum saman. „Þetta var síðan nokkrum vikum eftir veð- urofsann og enn verið að leita. Það var mjög kyrrt og gott veður og við vorum staddir í þröngum litlum dal og allt á kafi í snjó. Það var algjör kyrrð, þegar mér fannst ég heyra smá jarm langt í burtu og reyndi að horfa vel í kringum mig en sá ekkert. Ég prófaði að jarma á móti, gerði það nokkrum sinnum og þá heyrði ég jarmið aftur og fór þá að gruna að þetta væri hugsanlega jarm undir snjó og kannski nær en mig hafði grunað. Þá fór ég að leita á ýmsum stöðum hvar skepnan gæti verið und- ir snjó. Við jörmumst á, ég og þessi skepna, og smám saman geng ég á hljóðið. Þar sem jarmið heyrðist best, þá reyni ég að stappa niður fótunum og dett niður á holu og þar er þá eitt lamb, en ærin var dauð undir lamb- inu, sem var byrjað að narta í mömmu sína til að geta lifað af. Þetta var 4-6 vikum eftir að kindurnar lentu í snjónum og í raun ótrúlegt að lamb- ið hafði lifað þetta af.“ Prestakall í Laufási Eiginkona Sigurðar Páls, Sólveig Halla Kristjánsdóttir, er prestur og bjó fjölskyldan eitt ár í Laufási með- an hún sinnti þar afleysingaprest- þjónustu frá 2018-2019. Sigurður vann þá á Grenivík og vinnufélagar hans þar kölluðu hann gjarnan prestakall og honum hafi fundist það svo skemmtilegt að hann ætli bara að halda þeim titli til streitu. Víst er að Sigurður heldur áfram að huga að þeim sem þurfa aðstoð og honum er tíðrætt um stöðu aldraðra í þjóðfélag- inu. „Við ættum að sýna þeim eldri enn þá meiri virðingu, því þetta er jú fólkið sem ruddi nýjar brautir og byggði svo margt gott upp sem við búum að og eigum að varðveita og fara vel með.“ Sigurður Páll Tryggvason húsfaðir og prestakall – 50 ára Léttleikinn alltaf í fyrirrúmi Morgunblaðið/Atli Vigfússon Bóndinn Hér er Sigurður Páll á Þverá með sumrung á bakinu. Fjölskyldan Sigurður Páll og Sólveig Halla með börn sín Kristján Pál og Heiðdísi Dalrós. Til hamingju með daginn 40 ára Ásdís ólst upp í Keflavík og býr þar enn, þótt bærinn sé núna kallaður Reykjanesbær. Ásdís er stuðningsfulltrúi í Njarðvíkurskóla. Ás- dísi líður best með fjölskyldunni en hún hefur líka mikinn áhuga á tónlist. Maki: Björn Kjartan Sigurþórsson, f. 1979, vinnur við vörudreifingu hjá UPS. Synir: Kjartan Freyr, f. 2002, Baltasar Þór, f. 2008, og Aron Óðinn, f. 2011. Foreldrar: Þorvaldur Ólafsson, f. 1949, d. 2009, og Sigríður Kjartansdóttir, f. 1951, var meðhjálpari. Hún býr í Kefla- vík. Ásdís Björk Þorvaldsdóttir 40 ára Gestur ólst upp á Selfossi en býr í Kópa- vogi. Gestur er við- skiptastjóri hjá Sec- uritas. Helstu áhugamálin eru íþróttir, t.d. skíði, hjólreiðar og golf, útilegur og ferðalög bæði innanlands og erlendis. Síðan er það samvera með fjölskyldu og vinum. Maki: Aðalbjörg Eggertsdóttir, f. 1983, sölu- og markaðsstjóri hjá Lyfjum og heilsu. Börn: Eyrún Erla, f. 2006, Ragnheiður Embla, f. 2013, og Kormákur Breki, f. 2017. Foreldrar: Guðjón Gestsson, f. 1934, d. 2020, og Rannveig Jóna Einarsdóttir, f. 1944. Hún býr á Selfossi. Gestur Guðjónsson Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.