Morgunblaðið - 03.11.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 03.11.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020 „ÉG KIPPI MÉR OFTAST EKKI UPP VIÐ AÐ VERA STOPPAÐUR AF LÖGGUNNI, EN ÞETTA VAR BRÚÐKAUPSDAGURINN OKKAR OG ÉG VILDI AÐ ALLT VÆRI FULLKOMIÐ.” „VIÐ TÖFÐUMST SVOLÍTIÐ. ÍSJAKINN RAKST Á SKIP.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að deila með sér. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VOFF! VOFF! VOFF! VOFF! EKKI GLEYMA AÐ KÍKJA Á HEIMASÍÐUNA OKKAROG SVARA NOKKRUM SPURNINGUM ÉG HATA LÍKA NÚTÍMAHUNDA ÉG HEF ALDREI SÉÐ HERTOGANN SVONA REIÐAN EFTIR RÁNSFERÐ! ÉG HIRTI EKKI UPP EFTIR SNATA! Fjölskylda Eiginkona Sigurðar Páls er Sólveig Halla Kristjánsdóttir, f. 14.1. 1977, sóknarprestur í Húsavíkursókn. For- eldrar hennar eru hjónin Kristján Hermannsson, f. 18.12 1939, og Jór- unn Sigtryggsdóttir, f. 11.8. 1950, d. 25.6. 2002, bændur í Lönguhlíð í Hörgárdal. Kristján er nú ekkill og býr á Akureyri. Börn Sigurðar og Sólveigar eru Heiðdís Dalrós, f. 27.2. 2010, og Krist- ján Páll, f. 9.3. 2012. Börn úr fyrri samböndum eru Sindri Már, f. 26.4. 1993, starfar á Plastiðjunni Bjargi og býr á sambýlinu Þrastarlundi á Akur- eyri; Adam Lárus, f. 14.4. 1995, grunnskólakennari á Selfossi og Mjalldís Ósk, f. 3.2. 2001. Dóttir hennar er Alena Mist, f. 19.3. 2018, og þær búa á Akureyri. Systkini Sigurðar Páls eru Óskar, f. 26.2. 1967, starfsmaður hjá Jarð- borunum hf., búsettur í Reykjahverfi; Aðalheiður, f. 23.3. 1968, skólaliði á Húsavík, og Unnsteinn, f. 24.10. 1976, starfsmaður á Meðferðarheimilinu á Laugalandi og býr í Eyjafjarðarsveit. Foreldrar Sigurðar Páls eru hjónin Tryggvi Óskarsson, f. 18.3. 1942, og Árdís Sigurðardóttir, f. 8.7. 1947, bændur á Þverá, þar sem þau hafa búið allan sinn búskap. Sigurður Páll Tryggvason Jónína Ólafsdóttir húsfreyja í Miðhlíð II, Hagasókn,V-Barð. Þorgrímur Ólafsson bóndi í Ytri-Miðhlíð á Barðaströnd og í Miðhlíð II, Hagasókn,V-Barð. Aðalheiður Þorgrímsdóttir húsfreyja og bóndi í Skógahlíð Sigurður Pálsson bóndi í Skógahlíð í Reykjahverfi Árdís Sigurðardóttir húsfreyja og bóndi á Þverá Hólmfríður Jónsdóttir húsfreyja í Skógum Páll Sigurðsson bóndi á Skógum,Reykjahverfi. Hagur á tré og járn. Skáldmæltur. Guðrún Kristmundsdóttir húsfreyja á Litla-Búrfelli og Smyrlabergi,A-Hún. Stefán Jónsson bóndi á Litla-Búrfelli í Svínadal og Smyrlabergi í Torfalækjarhr.,A-Hún. Steinunn Stefánsdóttir húsfreyja og bóndi á Reykjarhóli Óskar Sigtryggsson bóndi og smiður, á Reykjarhóli í Reykjahverfi Ásta Lovísa Jónasdóttir húsfreyja á Stóru-Reykjum Sigtryggur Hallgrímsson bóndi á Stóru-Reykjum í Reykjahverfi Úr frændgarði Sigurðar Páls Tryggvasonar Tryggvi Óskarsson bóndi á Þverá í Reykjahverfi Sean Connery er fallinn frá ogharmdauði aðdáendum James Bonds. Ágúst Frímann Jakobsson kastaði fram dróttkvæðum brag „til heiðurs manni sem kenndi oss að bera hátt vor sköllóttu höfuð“. Skarð fyr skildi orðið skalli frækinn fallinn; bestur Bond ok mestur bráðfagr ok dáður. Lék hann löngum keikur lagði skúrk með bragði. Loks var fjör þó fokið féll hann þá úr elli. Sigurlín Hermannsdóttir yrkir: Um Vesturbæinn gekk í gær þar garðar voru skrýddir, kusk í trjánum, köngulær og kettir, ljósum prýddir. Furðuverur fóru á stjá og fúlar galdrakindur. Litlar nornir liðu hjá, líka beinagrindur. Í tröppum glóðu gulleit ker, gladdist barnafjöldi. Á gangstéttum sá heilan her á hrekkjavökukvöldi. Gylfi Þorkelsson skrifar á Boðn- armjöð við fallegar myndir af því sem við blasir: „Það verður ekki tekið af Flóanum að þar er fallegt – að líta annað. Ég stöðvaði bifreið- ina á leið úr vinnu því austur- og norðausturfjöllin nutu sín ein- staklega vel í skuggavarpi tærrar birtu undir lágskýjum“: Mikið gras í móanum en marg- víst þykir sannað að feikna er í Flóanum fagurt að líta annað. Við þessu urðu sterk viðbrögð. Atli Harðarson kvað: Flóinn sjálfur fagur er fyrir þann sem hefur vit á að gleðjast ef hann sér uppgröft, skurði og moldarlit. Arnar Bjarnason bætti við: Hér er byggð og blómleg sveit ber mér yl í hjarta; þeir sem búa á þessum reit þurfa ei neitt að kvarta. Guðmundur Beck kvað: Drullusíki og gróður grár geðið einatt þrúga. Flatneskja og fúablár fúlt er við að búa. Guðrún Bjarnadóttir bætti við: Í Grafningnum er grasið fínt. Grímsnes einstök hlýja. Um Flóann er víst engum sýnt. Við Eyrarbakka Kría. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af James Bond og ráp um Vesturbæinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.