Morgunblaðið - 03.11.2020, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020
Anton Sveinn McKee hafnaði í
fjórða sæti í 100 metra bringusundi
í atvinnumannadeildinni í sundi í
Búdapest í Ungverjalandi í gær.
Anton keppir með liði Toronto
Titans en hann synti á tímanum
56,72 sekúndum en Ilya Shym-
anovich frá Hvíta-Rússlandi fór
með sigur af hólmi á tímanum 55,85
sekúndum.
Fyrir rúmri viku synti Anton á
tímanum 56,3 sekúndum og setti
bæði Íslands- og Norðurlandamet.
Anton synti því aftur undir eldra
Íslandsmetinu í gær.
Anton í 4. sæti í
100 metrunum
Ljósmynd/Simone Castrovillari
100 Anton Sveinn McKee keppti í
100 metra bringusundi í gær.
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður
í handknattleik, er smitaður af kór-
ónuveirunni samkvæmt fréttum
RÚV. Fóru allir leikmenn Lemgo í
Þýskalandi í skimun, en ekki er vit-
að hve margir reyndust jákvæðir.
Fram hafði komið að Bjarki myndi
ekki taka þátt í landsleiknum gegn
Litháen á miðvikudag.
Í gær voru gerðar breytingar á
hópnum í enn eitt skiptið. Sigvaldi
Björn Guðjónsson er kominn í
sóttkví í Póllandi og Arnór Þór
Gunnarsson mun gefa kost á sér í
leikinn í staðinn.
Bjarki Már með
kórónuveiruna
Ljósmynd/Lemgo
Veiran Bjarki Már er væntanlega
kominn í einangrun í Lemgo.
UPPGJÖR 2020
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
KR-ingurinn Atli Sigurjónsson var
besti leikmaður úrvalsdeildar karla
í knattspyrnu, Pepsi Max-
deildarinnar, á keppnistímabilinu
2020, samkvæmt einkunnagjöf
Morgunblaðsins. Hann vann titilinn
á minnsta mun eftir að hann og
Steven Lennon, sóknarmaður FH-
inga, urðu efstir og jafnir í M-
gjöfinni með 15 M hvor.
Þar réð úrslitum að Atli lék ein-
um leik færra en Lennon. Atli spil-
aði alla 17 leiki KR-inga, alla í
byrjunarliði, og Lennon spilaði alla
18 leiki FH-inga, alla í byrjunarliði.
Óhætt er að segja að Atli hafi
tekið stórt stökk á nýliðnu keppn-
istímabili. Hann var ekki fram-
arlega í M-gjöfinni árið 2019 og var
m.a. á eftir fjórum samherjum sín-
um í þáverandi Íslandsmeistaralið-
inu sem allir voru í úrvalsliði tíma-
bilsins hjá Morgunblaðinu.
Atli var annar markahæsti leik-
maður KR-inga með sex mörk og
var í algjöru lykilhlutverki í sókn-
arleik Vesturbæinga sem voru í
baráttu um Evrópusæti allt þar til
mótið var blásið af síðasta föstu-
dag. KR-ingar áttu þá eftir fimm
leiki.
Atli er 29 ára gamall Akureyr-
ingur, nánar tiltekið Þórsari, en
hann ólst upp norðan Glerár og lék
með Þórsliðinu frá unga aldri.
Hann spilaði með meistaraflokki fé-
lagsins frá 2008 til 2011 og fór þá
með liðinu upp í úrvalsdeild, lék
með því þar árið 2011 og spilaði þá
m.a. bikarúrslitaleik - gegn KR-
ingum.
Atli kom til liðs við KR fyrir
næsta tímabil, 2012, og lék í Vest-
urbænum í þrjú ár en síðan með
Breiðabliki tímabilin 2015 og 2016.
Atli sneri aftur til KR í byrjun
tímabilsins 2017 en lék síðustu vik-
ur þess sem lánsmaður með Þór.
Hann hefur síðan leikið samfleytt
með KR undanfarin þrjú tímabil.
Lennon var í dauðafæri
Steven Lennon átti líka frábært
tímabil en óhætt er að segja að
hann hafi verið rændur upplögðu
marktækifæri þegar mótið var
blásið af á föstudag. Lennon var
kominn með 17 mörk í 18 leikjum
FH-inga og hefði átt að eiga eftir
fjóra leiki til að skora þrjú mörk,
og verða þar með fyrstur í sögunni
til að skora tuttugu mörk á tímabili
í efstu deild karla. Hann vantaði
tvö mörk í viðbót til að jafna
markametið sem fimm leikmenn
deila. Óhætt er að segja að Skotinn
hefði verið afar líklegur til að ná að
minnsta kosti að jafna.
Lennon hefur skrifað nafn sitt í
knattspyrnusögu Íslands með
frammistöðu sinni undanfarin ár.
Hann er orðinn sjöundi marka-
hæsti maður efstu deildar karla frá
upphafi með 88 mörk og er marka-
hæsti erlendi leikmaðurinn í sögu
deildarinnar.
Gríðarlega jafnt í ár
Eins og sjá má á meðfylgjandi
korti af úrvalsliði Morgunblaðsins
úr Pepsi Max-deild karla 2020,
byggðu á M-gjöfinni, var gríðarlega
mjótt á mununum í ár. Enda árið
óvenjulegt að því leyti að enn voru
fjórar umferðir, plús einn leikur, en
tímabilið þó í raun jafnlangt og það
var til ársins 2008 þegar liðum var
fjölgað úr tíu í tólf.
Það var ekki nóg með að Atli og
Lennon yrðu jafnir og efstir heldur
voru þrír leikmenn jafnir með 14 M
á hælum þeirra. Það voru Patrick
Pedersen, sóknarmaður úr Val,
Ágúst Eðvald Hlynsson, miðjumað-
ur úr Víkingi, og Stefán Teitur
Þórðarson, miðjumaður úr ÍA.
Þar á eftir koma Valdimar Þór
Ingimundarson úr Fylki, Kennie
Chopart úr KR og Aron Bjarnason
úr Val með 13 M en Valdimar var
með forystu í M-gjöfinni þar til
hann yfirgaf Fylki eftir 14 umferðir
og fór til Strömsgodset í Noregi.
Þessir leikmenn eru allir í ellefu
manna úrvalsliði Morgunblaðsins
sem sjá má hér að ofan. Í ár komu
varnarmenn deildarinnar einhverra
hluta vegna ekki vel út í M-gjöfinni
og þar sem aðeins tveir varn-
armenn náðu að vera með 10 M
eða meira er Stefáni Teiti stillt upp
með þeim sem þriðja varnarmanni í
byrjunarliðinu.
Til hliðar eru síðan tíu vara-
menn, þeir sem stóðu næstir því að
komast í liðið.
Atli besti leikmaðurinn
eftir hnífjafna keppni
Atli Sigurjónsson og Steven Lennon fengu báðir 15 M fyrir frammistöðu sína
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
KR Atli Sigurjónsson var í lykilhlutverki í sumar og fékk 15 M.
3-4-3
Hversu oft leikmaður var valinn í lið umferðarinnar2
Varamannabekkur
Fjöldi sem leikmaður fékk á leiktíð2
Haraldur Björnsson
Stjörnunni
9
Patrick
Pedersen
Val
14
11
10
Pablo Punyed
KR
Tryggvi Hrafn
Haraldsson,
ÍA
Gunnar Nielsen
FH
Karl Friðleifur
Gunnarsson
Gróttu
Viktor Karl
Einarsson
Breiðablik
Brynjólfur
Willumsson
Breiðablik
Hilmar Árni
Halldórsson
Stjörnunni
Sigurður Egill
Lárusson
Val
Kristinn Freyr
Sigurðsson
Val
Birnir Snær
Ingason
HK
2
5
9 12
12
11
11
10
10
10
Þórir Jóhann
Helgason
FH
12
2
Stefán Teitur
Þórðarson
ÍA
14
3
Aron Bjarnason
Val
13
5
Valdimar Þór
Ingimundarson
Fylki
13
4
Kennie Chopart
KR
13
2
Brynjar Ingi
Bjarnason
KA
10
4
Atli Sigurjónsson
KR
15
4
Steven Lennon
FH
15
5
Ágúst Eðvald
Hlynsson
Víkingi
14
2
2
3
3
4
4
3
4
3
1
2
Lið ársins 2020 hjá Morgunblaðinu
England
Fulham – WBA......................................... 2:0
Leeds – Leicester..................................... 1:4
Staðan:
Liverpool 7 5 1 1 17:15 16
Leicester 7 5 0 2 17:9 15
Tottenham 7 4 2 1 18:9 14
Everton 7 4 1 2 15:11 13
Southampton 7 4 1 2 14:12 13
Wolves 7 4 1 2 8:8 13
Chelsea 7 3 3 1 16:9 12
Aston Villa 6 4 0 2 15:9 12
Arsenal 7 4 0 3 9:7 12
Manch.City 6 3 2 1 9:8 11
Newcastle 7 3 2 2 10:11 11
Leeds 7 3 1 3 13:13 10
Crystal Palace 7 3 1 3 8:11 10
West Ham 7 2 2 3 13:10 8
Manch.Utd 6 2 1 3 9:13 7
Brighton 7 1 2 4 11:14 5
Fulham 7 1 1 5 7:14 4
WBA 7 0 3 4 6:16 3
Sheffield Utd 7 0 1 6 3:10 1
Burnley 6 0 1 5 3:12 1
Ítalía
C-deild:
Cesena – Padova...................................... 0:2
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með
Padova.
Bandaríkin
New York City – New York Red Bulls.. 5:2
Guðmundur Þórarinsson kom inn á hjá
NYC á 86. mínútu.
Danmörk
SönderjyskE – AGF................................. 1:1
Ísak Óli Ólafsson var ónotaður varamað-
ur hjá SönderjyskE.
Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 61.
mínútuna með AGF.
Staðan:
SønderjyskE 7 4 2 1 13:9 14
Vejle 7 4 1 2 15:13 13
Midtjylland 7 4 1 2 11:11 13
AGF 7 3 3 1 14:8 12
Brøndby 7 4 0 3 12:12 12
Nordsjælland 7 3 2 2 15:10 11
AaB 7 3 2 2 8:9 11
København 7 3 1 3 14:13 10
OB 7 3 1 3 11:11 10
Randers 7 2 1 4 9:7 7
Horsens 7 0 2 5 4:13 2
Lyngby 7 0 2 5 7:17 2
Svíþjóð
AIK – Varberg ......................................... 1:0
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á hjá AIK
eftir 74 mínútur.
Helsingborg – Malmö.............................. 0:1
Arnór Ingvi Traustason var á vara-
mannabekknum hjá Malmö.
Staðan:
Malmö 26 15 8 3 52:25 53
Elfsborg 26 10 13 3 41:33 43
Djurgården 26 12 6 8 43:30 42
Häcken 26 10 11 5 39:27 41
Norrköping 26 11 7 8 52:39 40
Hammarby 26 10 10 6 42:37 40
Sirius 26 9 10 7 42:43 37
Örebro 26 10 6 10 33:36 36
Mjällby 26 9 8 9 40:41 35
AIK 26 9 8 9 27:28 35
Östersund 26 8 9 9 26:32 33
Varberg 26 7 7 12 33:39 28
Gautaborg 26 4 12 10 27:40 24
Falkenberg 26 5 8 13 29:44 23
Helsingborg 26 4 10 12 28:42 22
Kalmar 26 4 9 13 28:46 21
B-deild:
Norrby – Brage........................................ 1:4
Bjarni Mark Antonsson var ekki í leik-
mannahópi Brage.
Lögreglan mun
rannsaka mögu-
leg brot karla-
liða Vals og
Leiknis Reykja-
vík á sótt-
varnalögum en
leikmenn beggja
liða fögnuðu vel
þegar Íslands-
mótið í knatt-
spyrnu var blás-
ið af.
Valsmenn fögnuðu Íslands-
meistaratitlinum og Leiknismenn
fögnuðu sæti í efstu deild á næsta
ári. Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfir-
lögregluþjónn, staðfesti í samtali
við Fréttablaðið að málið yrði
rannsakað. Birtust myndir og
myndbönd af fögnuði beggja liða
og leikur grunur á broti á sótt-
varnalögum, en fleiri en 20 virtust
koma saman í fögnuði beggja liða.
Félögin sendu bæði frá sér yfirlýs-
ingu þar sem beðist var afsökunar
á framferðinu.
johanningi@mbl.is
Fögnuður til
rannsóknar
Ásgeir Þór
Ásgeirsson