Morgunblaðið - 03.11.2020, Síða 28

Morgunblaðið - 03.11.2020, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020 Við erum sérfræðingar í malbikun Faye athafnakona, sem veitekki aura sinna tal, helduruppteknum hætti í spennu-sögunni Silfurvængjum, sem er sjálfstætt framhald af Gull- búrinu eftir Camillu Läckberg, gefur reyndar í og lætur engan eiga inni hjá sér, allra síst karl- rembudrullu- sokka. Þegar utanað- komandi áhrif eins og til dæmis kór- ónuveira, sem enginn virðist ráða við og ætlar allt eins og gleði og bjartsýni að drepa, er hress- andi að lesa hetjusögu eins og Silf- urvængi. Það er líka ágætis tilbreyt- ing að hafa ofurkonu í aðalhlutverkinu og konur henni til aðstoðar. Faye læt- ur ekkert stöðva sig, allra síst skít- seiði sem reyna að bregða fyrir hana fæti. Hún er alltaf með ás uppi í erm- inni, búin að hugsa nokkra leiki fram í tímann og beitir króki á móti bragði. Faye fórnaði öllu fyrir Jack, eins og lesa má um í Gullbúrinu, en kom tvíefld til baka og svipti hann því sem skipti hann mestu máli. Tveimur ár- um síðar hefur hún komið sér fyrir á Ítalíu, en rekur gullnámuna, fyrir- tækið Revenge eða Hefnd, í Stokk- hólmi og hyggur á útrás í Bandaríkj- unum. Minna má það ekki vera fyrir konu sem klæðist fötum frá helstu tískuhúsunum, skartar dýrustu skartgripum og lítur ekki við hús- gögnum sem almúginn verður að láta sér nægja. Toppkona, sem lætur karla ekki ráðskast með sig heldur ráðskast með þá, jafnt í vinnu sem frí- tíma, en ekkert er fullkomið og svo bregðast krosstré og svo framvegis. Í sögunni eru flestir karlmenn, ef karlmenn skyldi kalla, vonlausir eiginhagsmunaseggir, sem líta á kon- ur eins og gluggaskraut, nauðgarar og persónur sem misnota börn og konur eins og að drekka vatn. Dusil- menni sem eiga ekkert gott skilið. Inn í frásögnina blandast upprifjun frá uppvexti Faye og hvernig hann mótaði hana að því sem hún nú er. Silfurvængir er fyrst og fremst góð afþreying, þar sem lög og reglur eru bara orð á blaði, skáldskapur, sem hittir örugglega víða í mark. Läckberg „Silfurvængir er fyrst og fremst góð afþreying, þar sem lög og reglur eru bara orð á blaði, skáldskapur, sem hittir örugglega víða í mark.“ Karlrembur finna til tevatnsins Glæpasaga Silfurvængir bbbnn Eftir Camillu Läckberg. Sigurður Þór Salvarsson þýddi. Sögur útgáfa, 2020. Kilja, 315 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Það er sérstakt að koma fram með þessum hætti en maður verður bara öðru hvoru að loka augunum og ímynda sér að það séu áheyrendur í salnum. Þetta verður óneitanlega öðruvísi,“ segir sópransöngkonan Hanna Þóra Guðbrandsdóttir um hádegistónleika þeirra Antoníu Hev- esi píanóleikara, sem verður streymt frá Hafnarborg í dag. Útsendingin hefst klukkan 12 en vegna sam- komubannsins verða engir gestir í salnum. Slóðina má finna á heima- síðu Hafnarborgar og á facebook- síðu safnsins. Kórónuveirufaraldurinn er sviðs- listafólki erfiður og fá tækifæri til að koma fram en Hanna Þóra segist þó hafa náð að koma fram á tónleikum í Reykholti og heimabæ sínum, Akra- nesi, í vor þegar ástandið var betra. „Annars hefur verið lítið að gera. Við áttum til dæmis að vera í upp- tökum í ágúst, að taka upp óperu Daníels Bjarnasonar, Brothers, en það var flautað af. Þetta eru flóknir tímar. Ég er samt frekar heppin því ég starfa líka við annað, er sjúkraliði á lyflækningadeild sjúkrahússins hér á Akranesi, og reyni svo að syngja eins mikið og ég get.“ Aríur eftir eftirlætið, Puccini Hanna Þóra hóf söngnám við Tón- listarskólann á Akranesi árið 1996. Haustið 1999 innritaðist hún í Söng- skólann í Reykjavík og þaðan lauk hún áttundastigsprófi vorið 2005. Hún hefur líka stundað söngnám í Kaupmannahöfn, Osló og Berlín. Hún hefur sungið ýmis óperu- hlutverk og var meðal annars ein- söngvari í óperunni Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erl- ingsson sem sett var upp í Íslensku óperunni 2014. Yfirskrift tónleika Hönnu Þóru og Antoníu í dag er „Dísætir tónar“ og munu valdar aríur hljóma. „Ég nefndi nokkrar aríur og svo valdi Antonía úr þeim, og valdi vel,“ segir Hanna Þóra. „Ég hef mikið sungið þær allar gegnum tíðina. Puccini er eiginlega eftirlætis- óperutónskáldið mitt og ég syng þrjár þekktar aríur úr La Bohème, meðal annars þær tvær sem Mimi syngur, og svo syng ég líka aríu úr Toscu og úr Adriana Lecouvreur eftir Cilea.“ Þegar blaðamaður hefur orð á að það sé kannski við hæfi að sjúkraliði syngi hlutverk berklasjúklingsins Mimiar, hún hafi innsýn í veikindi, tekur Hanna Þóra undir það. „Það getur verið en þetta hlutverk snertir mig líka vegna þess að föður- amma mín dó úr berklum 33 ára gömul. Ég kynntist henni aldrei en skilst að ég sé mjög lík henni í útliti. En mér finnst ég ná vel tilfinn- ingalega utan um hlutverk Puccinis og lýríkin hans á vel við mig.“ Söng lög Sigfúsar í vitanum Hanna Þóra bætir við að ef henni þykir vænt um einhverja tónlist og hrífst af, þá finnist henni hún eiga að syngja hana. „Sama hvort það er ópera eða dægurlag. Ég elska öll fal- legu íslensku dægurlögin eins og eft- ir Sigfús Halldórsson, lögin hans eru í miklu uppáhaldi. Á aldarafmælinu hans í september fór ég í vitann hér á Akranesi og flutti með Jónínu Arn- ardóttur píanóleikara og skólastjóra í tónlistarskólanum hér þrjú lög eftir hann.“ Rétt eins og á tónleikunum í dag voru engir áheyrendur en flutning- urinn tekinn upp og svo sendur út. „Tónlistin gefur okkur flytjendunum rosalega mikið en það er auðvitað ennþá betra að geta miðlað henni til annarra. En nú verðum við bara að hafa í huga að þótt gestir séu ekki í salnum verða samt einhverjir að hlusta og horfa. Ég reyni að sjá þá fyrir mér og mun gefa alveg jafn mikið af mér og væru gestir í saln- um. Ef einhvern tímann hefur verið mikilvægt að tónlist fái að heyrast, þá er það núna,“ segir hún. Ímyndar sér að það séu áheyrendur í salnum  Hanna Þóra Guðbrandsdóttir í streymi frá Hafnarborg Ljósmynd/Hólmar Hólm Flytjendurnir Antonía Hevesi píanóleikari og Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópran koma fram á hádegistónleikum. Tónleikunum verður streymt. Afhending Hönnunarverðlauna, og málþing tengt þeim, átti að fara fram á fimmtudaginn kemur. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu hefur verið tekin ákvörðun um að fresta verð- laununum og freista þess að hægt verði að halda raunverulegan við- burð þegar fram líða stundir. Stefnt er að því að afhending Hönnunarverðlauna Íslands muni fara fram snemma á nýju ári en dómnefnd verðlaunanna hefur lok- ið störfum og verður hulunni þá svipt af verðlaunahöfum. Afhendingu Hönnunarverðlauna frestað Leikarinn Johnny Depp tapaði í gær máli sem hann höfðaði gegn breska dagblaðinu The Sun, eftir að hann var í blaðinu vorið 2018 sagður hafa beitt fyrrverandi eig- inkonu sína, Amber Heard, and- legu og líkamlegu ofbeldi. Depp hafði krafist þess að ummælin yrðu dæmd ómerk en talsmenn Sun fullyrtu að þau væru sönn. Málflutningurin stóð í rúmar tvær vikur í London í júlí og vakti mikla athygli fjölmiðla enda Depp með kunnustu leikurum samtím- ans. Í úrskurði dómarans segir að The Sun hafi sýnt fram á að mikið væri til í því sem kæmi fram í greininni. Depp hefur einnig höfðað mál í Bandaríkjunum gegn Heard, eftir að hún birti í Washington Post grein þar sem lögmaður Depps segir að gefið sé í skyn að hann hafi beitt Heard ofbeldi, sem hann harðneitar. Lögmaður henn- ar sagði í gær að í málaferlunum vestanhafs yrðu lagðar fram enn frekari sannanir fyrir því að svo hafi verið. Í úrskurði dómarans í gær segir að vörn Depps hafi snúist um að sýna fram á að Heard hafi sett upp blekkingaleik til að hafa af honum fé en sú hafi ekki verið raunin, heldur sé víst að ásakanir hafi átt við rök að styðjast. Depp tapaði skaðabótamálinu Johnny Depp Guðmundur Lúther Haf- steinsson, sviðs- stjóri húsasafns Þjóðminjasafns Íslands, mun í hádeginu í dag flytja erindi um hið merka húsa- safn. Fyrirlest- urinn verður fluttur í gegnum teams-live- stream, slóðina má sjá á vef safns- ins, thjodminjasafn.is, og verður hann einnig tekinn upp og birtur á youtuberás Þjóðminjasafnsins. Húsasafn Þjóðminjasafns Ís- lands veitir innsýn í húsakost þjóðarinnar á seinni öldum og þróun húsagerðar á Íslandi. Húsa- safnið er kjarni safnkosts Þjóð- minjasafns Íslands á landsbyggð- inni. Meðal húsa Þjóðminja- safnsins eru allir stærstu og merkustu torfbæir landsins og all- ar þær torfkirkjur sem eru í upp- runalegri gerð. Í húsasafninu eru tæplega fjörutíu ólíkar byggingar sem all- ar þykja mikilvægar. Fyrirlestur um húsasafn Þjóðminjasafns Þverá í Laxárdal

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.