Morgunblaðið - 03.11.2020, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN
Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR.
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Hrekkjavökuvika
í Sambíóunum
Sjáðu nokkrar að frægustu Hrollvekjum allra tíma
Einn mesti töffari kvikmyndasög-
unnar er fallinn frá, Skotinn Sean
Connery, sem skaut upp á stjörnu-
himininn með túlkun sinni á njósn-
aranum James Bond í fyrstu Bond-
myndinni. Dr. No, árið 1962. Conn-
ery var níræður þegar hann lést, 31.
október, á heimili sínu á Bahama-
eyjum og hafði þá glímt við langvar-
andi veikindi, að sögn sonar hans,
Jasons.
Connery var einn dáðasti kvik-
myndaleikari 20. aldarinnar, kyn-
tákn og tískufyrirmynd og í huga
margra aðdáenda James Bond hinn
eini sanni Bond, þeirra á meðal leik-
arans Daniels Craigs sem leikið hef-
ur Bond í fimm síðustu myndum um
njósnarann. Á vef BBC er haft eftir
Craig að Connery hafi verið tákn-
mynd ákveðins tímabils og stíls og að
leikarinn hafi búið yfir mikilli hnyttni
og sjarma. „Hann mun áfram hafa
áhrif á leikara og kvikmyndagerðar-
menn,“ er haft eftir Craig.
Harðjaxl í Edinborg
Connery, fullu nafni Thomas Sean
Connery, fæddist í Edinborg 25.
ágúst 1930. Hann var af verkafólki
kominn, ólst upp við mikla fátækt,
hætti í skóla 13 ára og fór að sinna
ýmsum störfum, var m.a. mjólkur-
póstur og múrhleðslumaður áður en
hann gekk í breska sjóherinn.
Gegndi hann herþjónustu í þrjú ár en
þurfti að hætta vegna magasárs. Á
vef BBC segir að Connery hafi feng-
ið á sig orð í Edinborg fyrir að vera
mikill harðjaxl eftir að sex manna
gengi reyndi að ræna hann og fékk í
kjölfarið að kenna á því. Var gengið
afgreitt að hætti Bonds … James
Bonds.
Connery hélt áfram að sinna ýms-
um láglaunastörfum og sat m.a. fyrir
í Listaháskólanum í Edinborg. Hann
þótti ekki aðeins fagur heldur einnig
lipur í knattspyrnu, svo lipur að
Manchester United bauð honum
samning en Connery kaus heldur að
freista gæfunnar sem leikari. Fyrsta
kvikmyndin sem hann lék í var Lilacs
in the Spring frá árinu 1954 en hann
lék einnig í sjónvarpsþáttum og
-myndum í upphafi ferilsins og fyrsta
aðalhlutverkið var í BBC-sjónvarps-
myndinni Blood Money. Það var svo
eiginkonu kvikmyndaframleiðand-
ans Cubbys Broccolis, Dönu, að
þakka að Connery var ráðinn í hlut-
verk James Bonds. Þótti henni
Connery búa yfir sjarma og kyn-
þokka söguhetjunnar og lék hann
akski fréttamaðurinn Borat myndi
ekki láta sjá sig í honum (sjá mynd
fyrir ofan) og hörmungina High-
lander 2.
Ásakanir um ofbeldi
Connery kunni illa athyglinni sem
fylgdi því að vera kvikmyndastjarna
og kyntákn, var lítið fyrir sviðsljósið
og kveikiþráðurinn í honum þótti oft
stuttur. Hann kvæntist leikkonunni
Diane Cilento árið 1962 en þau skildu
árið 1973 og greindi Cilento frá því
löngu síðar, árið 2006 í ævisögu sinni
sem þá kom út, að Connery hefði
beitt hana andlegu og líkamlegu of-
beldi. Í viðtali við Playboy árið 1965
sagði Connery að sér þætti ekkert
athugavert við að slá konur af og til
þótt hann mælti ekki með því. Var
því síðar haldið fram af vinum hans
að rangt hefði verið haft eftir honum.
Árið 1993 voru þó svipuð ummæli
höfð eftir honum í Vanity Fair; að
sumar konur væru einfaldlega að
biðja um kinnhest, og í viðtali við
Barböru Walters árið 1987 var Conn-
ery spurður út í ummælin í Playboy
og sagðist hann enn sömu skoðunar.
Árið 2006 var komið annað hljóð í
strokkinn. Connery sagði þá að rangt
væri að slá konur, eins og rifjað var
upp í skoska dagblaðinu The Scots-
man og fleiri fjölmiðlum á dánardegi
leikarans. helgisnaer@mbl.is
Connery … Sean Connery
007 Connery við tökur á Bond-myndinni Goldfinger árið 1964, við hina sígildu glæsibifreið Aston Martin DB5.
Óskar Connery í hlutverki lögreglumannsins Jimmys
Malones í The Untouchables frá árinu 1987. Við hlið
hans sést Kevin Costner í hlutverki Eliots Ness. Conn-
ery hlaut Óskarsverðlaun fyrir bestan leik í auka-
hlutverki fyrir túlkun sína á Malone.
AFP
Karlmenni Connery brá á leik og hnyklaði vöðvana fyrir
ljósmyndara á Cannes-kvikmyndahátíðinni í maí árið
1999. Þar var hann stadddur vegna kvikmyndarinnar
Entrapment sem Jon Amiel leikstýrði.
Zed Connery í kostulegum búningi í
vísindaskáldskaparmyndinni Zard-
os frá árinu 1974. Hár og skegg í stíl
við fötin en skammbyssan furðulega
ófrumleg miðað við annað.
Bond alls í sjö kvikmyndum en var
tregur til í þeirri síðustu. Með Bond
hófst rysjóttur kvikmyndaferill leik-
arans sem hlaut þó Bafta-, Golden
Globe- og Óskarsverðlaun á ferl-
inum.
Af eftirminnilegum og vönduðum
kvikmyndum sem hann lék í má
nefna The Untouchables, The Man
Who Would Be King, The Hunt for
Red October, Marnie og Nafn rósar-
innar, kvikmynd eftir samnefndri
bók Umbertos Ecos sem Connery
hlaut Bafta-verðlaun fyrir. Af öllu
einkennilegri og lélegri myndum má
nefna vísindaskáldskaparmyndina
Zardoz þar sem Connery var í svo
kjánalegum búningi að jafnvel kas-
Skoski leikarinn sem þótti nógu kynþokkafullur og sjarmerandi til að leika James Bond er nú
fallinn frá, níræður að aldri Lék bæði í vönduðum og slökum kvikmyndum á löngum ferli