Morgunblaðið - 25.11.2020, Side 1

Morgunblaðið - 25.11.2020, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 5. N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  278. tölublað  108. árgangur  FLAUG SÍÐASTA FLUGIÐ TIL AKUREYRAR SJALDAN MEIRI SALA EN Í FARALDRI FYRSTI AÐGERÐA- SINNINN Í NÁTTÚRUVERND VIÐSKIPTAMOGGINN NÝ BÓK UM SIGRÍÐI 24TÍMAMÓT 4 „Samanburður við hin norrænu lönd- in sýnir að við erum með mestu raun- launahækkun á árinu þrátt fyrir að vera einnig með mesta atvinnuleysið og dræmustu hagvaxtarhorfurnar,“ segir Anna Hrefna Ingimundardóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Sam- taka atvinnulífsins. Mikil hækkun varð á launavísitölu í október. Vísitalan hækkaði um 0,7% milli september og október sam- kvæmt tölum Hagstofu Íslands. Síð- ustu 12 mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,1% en það er mesta árs- breyting frá því í apríl árið 2018. Þess- ar tölur rýma illa við áhrif kórónuveir- unnar sem hafa leitt til mikils tekjufalls og atvinnuleysis. Launahækkanir meginorsökin Anna Hrefna segir að í löndum þar sem þátttaka í stéttarfélögum sé mun minni en hér megi sjá áhrif kórónu- kreppunnar endurspeglast betur í rauntíma í mismunandi atvinnugrein- um. „Laun á markaði hér hafa ekki aðlagast aðstæðum,“ segir hún. Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, segir í viðtali í ViðskiptaMogg- anum í dag að launahækkanir séu meginorsök þess að Keflavíkurflug- völlur sé ekki samkeppnishæfur. „Launakostnaður er tveir þriðju hlut- ar af okkar rekstrarkostnaði.“ Laun úr takti við aðstæður  Mikil hækkun launavísitölu í október  Síðustu 12 mánuði nemur hækkun 7,1%  Á skjön við þróun annars staðar  Keflavíkurflugvöllur ósamkeppnishæfur MLaun ekki aðlagast ... »4 og 12 Miklar hækkanir » Launavísitala hækkaði um 0,7% í síðasta mánuði samfara miklu atvinnuleysi. » Frá ágúst 2019 fram til sama tíma 2020 hækkuðu laun á almenna markaðnum um 6% og um 8,2% á þeim opinbera. Þótt desembermánuður hafi ekki enn gengið í garð hefur miðborg Reykjavíkur verið prýdd jólaljósum víðast hvar og er Austurvöllur þar engin undantekning. Vinnumenn hafa í vikunni séð um að skreyta Óslóartréð sem árlega er sett þar upp, eftir að hafa verið höggvið í grennd við borgina. Fram undan er fyrsti sunnudagur að- ventu, en þá mun Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri tendra jólaljósin á trénu. Morgunblaðið/Eggert Óslóartréð skreytt á Austurvelli  Alls þáðu 230 manns úthlutanir með fjölbreyttum mat og öðrum nauðsynjum frá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur í gær. Von var á ámóta mörgum eða fleirum í úthlutuninni í dag en samtökin hafa þegar hafið undirbúning fyrir úthlutanir des- embermánaðar. Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, segir í samtali við Morgunblaðið að aðsókn þar hafi aukist síðustu mánuði miðað við síðustu mánuði í fyrra. »2 Á þriðja hundrað þáðu aðstoð í gær Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Nokkur gangur hefur verið í viðræðum milli Landsvirkjunar og Rio Tinto varðandi endurskoðun þess raforku- verðs sem síðarnefnda fyrirtækið greiðir í tengslum við framleiðslu sína í Straumsvík. Eru vonir bundnar við að samkomulag um verulega lækkun orkuverðsins náist fyrir áramót og herma heimildir Morgunblaðsins að raforkuverðið til verksmiðjunnar kunni að lækka um 30% í kjölfar end- urskoðunarinnar. Hafa forsvarsmenn Rio Tinto verið skýrir um það að verk- smiðjunni verði lokað ef raforkusamn- ingurinn verður ekki endurskoðaður hið fyrsta. Allt frá því í vor hefur álverksmiðjan í Straumsvík keyrt á lágmarksafköst- um, þ.e. keypt það lágmark sem henni ber af raforku frá Landsvirkjun, og hefur framleiðslan því aðeins verið um 85% af því sem áætlanir gera almennt ráð fyrir. Í samningaviðræðunum hef- ur komið fram að Rio Tinto muni ekki auka framleiðslu sína fyrr en sam- komulag við Landsvirkjun er í höfn. Gríðarlegt tap varð af rekstri álversins í Straumsvík í fyrra og nam það 13 milljörðum króna. Kom það til viðbótar við 5 milljarða tap árið 2018. Heimildir Morgunblaðsins herma að tap af rekstrinum hafi verið viðvarandi fram eftir þessu ári en að viðsnúningur hafi orðið í ágúst vegna hækkandi heims- markaðsverðs á áli. Er það nú u.þ.b. 2.000 dalir á tonnið. Heimildarmenn Morgunblaðsins segja að álverið þurfi um 2.000 dali fyrir hvert framleitt tonn til að reksturinn standi undir sér. Af- urðir þess eru hins vegar mun verð- mætari en meðalverð heimsmarkaðar- ins og því sé reksturinn nú nokkuð yfir núlli sem aftur dragi úr líkum á því að verksmiðjunni verði lokað í nánustu framtíð. Þokast í átt að samkomulagi  Landsvirkjun og Rio Tinto ræða raforkuverð  Veruleg verðlækkun í pípunum að sögn kunnugra Morgunblaðið/Ómar Orka Landsvirkjun hefur framleitt fyrir Straumsvík í rúm 50 ár. Ekki hefur verið ákveðið hvenær ráðist verður í framkvæmdir við endurbætur á snjóflóðagörðum fyrir ofan Flateyri og vörnum við höfnina og Flateyrarveg um Hvilftarströnd. Verið er að vinna að mati á snjóflóð- inu sem féll í janúar og fór yfir snjó- flóðavarnargarðinn og fór einnig í höfnina og eyðilagði bryggjur og báta. Verið er að huga að endurbótum á snjóflóðavarnargörðunum og vörn- um fyrir höfnina og Vegagerðin er að meta kosti við að verja veginn fyrir snjóflóðum. Fram kom á fund- um stjórnvalda með íbúum að það tekur eitt og hálft ár að undirbúa framkvæmdir, eftir að ákvörðun um bestu lausnir liggur fyrir. Flateyringar þurfa því að búa við óbreytt varnarkefi næstu tvo vetur, að minnsta kosti. Á móti hefur vökt- un snjóflóðahættu verið aukin og rýmingaráætlun samþykkt. »10 Varnir ekki tímasettar Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Á kafi Margir bátar skemmdust og eyðilögðust í snjóflóðinu í janúar.  Aukin vöktun á hættu á Flateyri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.