Morgunblaðið - 25.11.2020, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2020
Útreiðar Hestamenn og annað útivistarfólk hefur getað nýtt stillt og gott veður að undanförnu, líkt og þessi hestakona gerði í Víðidal í vikunni. Þótt kalt sé í veðri er útiveran hressandi fyrir alla.
Árni Sæberg
Uppi í áhorfenda-
stúku á spennandi fót-
boltaleik öðlast sumir
ótrúlega hæfileika og
yfirsýn. Þeir greina
leikinn betur en aðrir,
eru betri þjálfarar en
þeir sem stjórna af
hliðarlínunni og miklu
betri leikmenn en þeir
sem eru inni á vell-
inum. Dómaratríóið
stenst engan samanburð við þá
hæfileika sem finnast í stúkunni.
Efnahagslegar þrengingar sem
við glímum við eru ekki leikur
heldur dauðans alvara, lítt minni
en veiran sjálf sem ógnar lífi og
heilsu. En eins og í áhorfendastúk-
unni á fótboltaleiknum eru til sér-
fræðingar sem vita betur en aðrir.
Þeir hafa allt á hornum sér og
finna flestu allt til foráttu. Líkt og
á vellinum eru slíkir utanvallarsér-
fræðingar nauðsynlegir, halda öðr-
um við efnið, hitta stundum nagl-
ann á höfuðið og veita þegar vel
tekst til nauðsynlegt aðhald og eru
krydd sem lífgar upp á leikinn.
Aðgerðir stjórnvalda til að draga
úr áhrifum efnahagsáfallsins á
fyrirtæki og heimili vegna kórónu-
veirufaraldursins eru ekki yfir
gagnrýni hafnar. Sumt af því sem
gert hefur verið hefur ekki skilað
þeim árangri sem vonast var til,
annað er langt umfram væntingar.
Skattar lækkaðir
Ríkissjóður hefur haft bolmagn,
vegna skynsamlegrar fjármála-
stjórnar allt frá 2013, til að veita
heimilum og fyrirtækjum við-
spyrnu á erfiðum tímum. Allt að
600 milljarða halli á ríkissjóði á
tveimur árum er hins vegar því að-
eins réttlætanlegur að við stöndum
sterkari að vígi en ella og náum
þannig að treysta undirstöður sam-
félags sem börnin okkar taka við.
Að við skiljum ekki aðeins reikn-
inginn fyrir hallanum eftir fyrir
þau að glíma við.
Samþætting peningamála og
ríkisfjármála hefur líklega aldrei
verið betri hér á landi en undan-
farin misseri. Og þess hafa allir
notið – launafólk sem
fyrirtæki. Lægri vext-
ir styrkja samkeppn-
isstöðu atvinnulífsins
og eru mikilvæg
kjarabót fyrir launa-
fólk. Ríkissjóður hefur
ekki aðeins nýtt sér
sjálfvirkan sveiflujafn-
ara – ekki skorið niður
og ekki gripið til
skattahækkana –
heldur í raun aukið út-
gjöld og lækkað
skatta. Þannig hefur
verið unnið gegn samdrættinum.
Tekjuskattur einstaklinga var
lækkaður í ársbyrjun og aftur um
komandi áramót. Hið sama á við
um tryggingagjaldið. Erfða-
fjárskattur verður lækkaður, frí-
tekjumark fjármagnstekna á að
hækka (kemur sér fyrst og fremst
vel fyrir þá sem hafa takmarkaðar
fjármagnstekjur), skattaívilnanir
hafa verið auknar til að efla ný-
sköpun og ýta á undir fjárfestingar
einstaklinga í fyrirtækjum.
Stærstu aðgerðirnar
snúa að launafólki
Ein mikilvægasta aðgerð stjórn-
valda er svokölluð hlutabótaleið, til
að tryggja að ráðningarsamband
milli launagreiðenda og launa-
manns geti haldist. Í apríl síðast-
liðnum væru nær 33 þúsund ein-
staklingar á hlutabótum en yfir
16.400 á hreinum atvinnuleys-
isbótum. Í september síðastliðnum
fengu tæplega 3.600 einstaklingar
hlutabætur.
Áætlað er að alls verði 34 millj-
örðum króna varið í hlutabætur og
56 milljörðum í atvinnuleys-
isbætur. Þetta þýðir að lang-
stærsta aðgerð stjórnvalda er
gagnvart launafólki í gegnum at-
vinnuleysistryggingar og hluta-
bætur eða alls um 90 milljarðar.
Réttur til tekjutengdra atvinnu-
leysisbóta var lengdur úr þremur
mánuðum í sex. „Nám er tækifæri“
í starfs- og tækninámi í framhalds-
skólum eða háskólum stendur at-
vinnuleitendum til boða á vorönn
2021, haustönn 2021 eða vorönn
2022.
Þá hefur verið ákveðið að greiða
sérstakt viðbótarálag á grunn-
bætur atvinnuleysistrygginga á
næsta ári. Grunnbætur hækka um
6,2%. Áætlað er að framlag rík-
issjóðs vegna þessa verði um tveir
milljarðar. Um leið verða greiðslur
vegna framfærslu barna atvinnu-
leitenda framlengdar út næsta ár
með 6% viðbótarálagi ofan á
grunnbætur vegna hvers barns.
Kostnaður er áætlaður 800 millj-
ónir. Þeir sem eru í staðfestri at-
vinnuleit fá greiddar rúmar 86 þús-
und krónur í desemberuppbót, alls
um 1,4 milljarða.
Horft hefur verið sérstaklega til
barnafólks. Í maí var greiddur sér-
stakur barnabótaauki með hverju
barni. Og nú verða skerðingarmörk
barnabóta hækkuð til að tryggja að
þau fylgi þróun lægstu launa á
vinnumarkaði. Áætlað umfang er
um 830 milljónir króna.
Í desember verður 50 þúsund
króna eingreiðsla til þeirra örorku-
og endurhæfingarlífeyrisþega sem
eiga rétt á lífeyri á árinu. Þessi
eingreiðsla bætist við desember-
uppbót. Alls einn milljarður króna.
Stefnt er að því að gera breytingar
á örorkulífeyriskerfinu í upphafi
næsta árs og draga úr innbyrðis
skerðingum. Þessi breyting skilar
þeim tekjulægstu tæplega átta
þúsund króna viðbótarhækkun á
mánuði umfram 3,6% hækkun sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpi næsta
árs. Heildarhækkun til tekju-
lægstu örorkulífeyrisþeganna
verður tæpar 20 þúsund krónur um
áramót. Heildarútgjöld aukast
vegna þessa um 1,2 milljarða á
næsta ári.
Lægri vextir skila kjarabótum
Þá er ónefnd ein mesta kjarabót
launafólks. Lækkun vaxta hefur
gert þúsundum heimila kleift að
endurfjármagna íbúðarlánin og
lækka þar með greiðslubyrði um
tugi þúsunda á mánuði. Og það
sem meira er: Fleiri hafa haft tök á
því að ráðast í kaup á eigin íbúð en
annars vegna hagstæðra vaxta-
kjara.
Fjármálafyrirtækin hafa leikið
stórt hlutverk í að mynda skjól fyr-
ir þá sem á þurfa að halda. Rúm-
lega 4.100 voru í greiðsluskjóli í
maí síðastliðnum og námu skuld-
irnar samtals um 111 milljörðum
króna. Um miðjan nóvember voru
909 einstaklingar í greiðsluhléi.
Svipað er að segja um fyrirtæki,
en nú eru um 460 fyrirtæki í
greiðsluhléi. Heildarskuldir eru
um 43 milljarðar. Í sumar sam-
þykkti Alþingi lög um greiðslu-
skjól. Úrræðið, sem er tímabundið,
veitir fyrirtækjum heimild til þess
að fá greiðsluskjól í allt að eitt ár
sem á að nýta til fjárhagslegrar
endurskipulagningar.
Launafólk hefur notið fullrar
endurgreiðslu virðisaukaskatts af
vinnu iðnaðarmanna við íbúðar-
húsnæði, frístundahús og bíla-
viðgerðir. Hið sama á við um al-
mannaheillafélög og sveitarfélög.
Alls nemur endurgreiðslan nær
þremur milljörðum. Full endur-
greiðsla verður a.m.k. út næsta ár.
Allir vinna skilar þannig árangri.
Um 176 þúsund einstaklingar
hafa sótt ferðagjöfina og þar af
hafa 126 þúsund nýtt gjöfina fyrir
nær 880 milljónir króna. Kærkom-
in búbót fyrir allt launafólk og víta-
mínsprauta fyrir ferðaþjónustuna.
Vörn fyrir atvinnulífið
Með sama hætti og stutt hefur
verið við heimilin hefur verið gripið
til margvíslegra aðgerða til að
verja atvinnulífið, – tryggja verð-
mætasköpunina í nútíð en ekki síð-
ur framtíð.
Launagreiðslur hafa margir nýtt
sér heimild til að festa á allt að
þremur gjalddögum staðgreiðslu
og tryggingagjalds fram á næsta
ár eða fyrir alls 19,4 milljarða.
Um einn milljarður hefur verið
greiddur í lokunarstyrki til 998
fyrirtækja sem gert var að loka
samkvæmt ákvörðun heilbrigðis-
yfirvalda. Nýlega samþykkti þingið
framhald lokunarstyrkja og er um-
fang þeirra meira en áður.
Stuðningslán að fjárhæð um 7,1
milljarður hafa verið veitt 850
fyrirtækjum. Lánin eru með fullri
ríkisábyrgð að 10 milljónum króna
og 85% ábyrgð fyrir allt að 30
milljónum til viðbótar.
Á fyrstu dögum þessa mánaðar
samþykkti Alþingi frumvarp fjár-
málaráðherra um svokallaða tekju-
fallsstyrki fyrir einstaklinga og
lögaðila í atvinnurekstri sem urðu
fyrir verulegum tekjumissi 1. apríl
til 31. október. Samkvæmt mati
fjármálaráðuneytisins má ætla að
heildarkostnaður ríkissjóðs vegna
tekjufallsstyrkja geti orðið að há-
marki 23,3 milljarðar.
Í lok síðustu viku kynnti fjár-
málaráðherra viðspyrnustyrki sem
leysa tekjufallsstyrkina af hólmi.
Með þeim er verið að styðja fyrir-
tæki til að viðhalda lágmarks-
starfsemi þangað til við komumst
út úr kófinu. Eðli máls samkvæmt
er töluverð óvissa um kostnaðinn
en ráðuneyti fjármála telur að
hann geti ekki orðið hærri en 20
milljarðar.
Verkefninu ekki lokið
Hér er ekki sett fram heildstætt
yfirlit yfir allar þær aðgerðir sem
gripið hefur verið til, s.s. 900 millj-
óna króna stuðning við tómstunda-
iðkun barna tekjulágra foreldra,
átak í geðheilbrigðismálum, viðbót-
arframlög til heilbrigðiskerfisins
eða umfangmiklar fjárfestingar í
innviðum, s.s. samgöngum, stofnun
sprota- og nýsköpunarsjóðsins
Kríu eða stóraukinn stuðning við
rannsóknir og þróun fyrirtækja.
En verkefninu er ekki lokið – langt
í frá.
Um það verður varla deilt að
ríkissjóði hefur verið beitt af miklu
afli samhliða markvissum aðgerð-
um í peningamálum. Auðvitað má
ýmislegt gagnrýna og það skal ját-
að að stundum en ekki oft langar
mig að setjast upp í stúku við hlið-
ina á þeim sem allt veit betur. En
það væri svipað og að varn-
arleikmaður tæki til fótanna út af
vellinum og upp í áhorfendastúk-
una í miðjum leik þegar sigur er í
augsýn.
Eftir Óla Björn
Kárason » Líkt og á vellinum
eru utanvallarsér-
fræðingar nauðsynlegir,
hitta stundum naglann
á höfuðið og veita þegar
vel tekst til nauðsynlegt
aðhald.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Vörn fyrir launafólk og fyrirtæki