Morgunblaðið - 25.11.2020, Side 11

Morgunblaðið - 25.11.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2020 Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ekki við- urkennt kosningasigur Joes Bidens þó hann hafi samþykkt að undirbúningur á tilfærslu valda til Bidens geti hafist þegar í stað. Tók forsetinn þá ákvörðun árla dags í gær að íslenskum tíma. Þrátt fyrir að hafa enn í hótunum varðandi úr- slit kosninganna 3. desember sl., sagði Trump að alríkisstofnun sem hefur umsjón með valdatil- færslunni (GSA) bæri að gera það sem gera þyrfti. Stofnunin sagði að Biden væri „augsýnilega sig- urvegari“ forsetakjörsins. Eftirgjöf Trumps átti sér stað eftir að Michigan staðfesti formlega að Biden hefði unnið sigur þar, sem var áfall fyrir málatilbúnað Trumps sem hald- ið hefur því fram að kosningasigrinum hafi verið „stolið“ frá sér. Valdatilfærsluferlið færi nú af stað Tilkynning GSA þýðir að hinn nýkjörni forseti fær aðgang að upplýsingum leyniþjónustunnar CIA, skrifstofuhúsnæði og aðgang að embættis- mönnum. Hann sver forsetaeið og tekur formlega við völdum í janúar sem 46. forseti Bandaríkjanna. Samstarfsmenn Bidens lýstu ánægju með að nú skyldi hægt að hefja valdatilfærsluna. „Ákvörð- unin í dag er þarft skref til að takast á við þær ógn- ir sem að þjóðinni steðja, þar á meðal að koma böndum á kórónuveirufaraldurinn og efnahagslíf- inu inn á réttar brautir,“ sagði í yfirlýsingu kosn- ingastjórnar Bidens. Forsetinn fráfarandi tísti á samfélagsvefjum á sömu stundu og GSA upplýsti samverkamenn Bi- dens um að valdatilfærsluferlið færi nú af stað. Forstjórinn Emily Murphy sagðist myndu veita honum aðgang að fjármagni upp á 6,3 milljónir dollara til að standa undir kostnaði sínum næstu átta vikurnar. Í tístinu sagði Trump að „í þágu bestu hags- muna ríkisins legg ég til við Emily og samstarfs- menn hennar að gera það sem þarf varðandi fyrstu starfsreglur og ég hef beðið mitt lið um það sama,“ sagði Trump. Hann dró ekki í land og hélt í framhaldi af tístinu áfram haldlitlum ásökunum um spillingu og hét því að halda áfram „góðri bar- áttu“. Ekkert kemur lengur í veg fyrir að Biden taki við 20. janúar. Það breytist ekki þótt Trump neiti að játa sig sigraðan. Bárust hótanir á netinu og yfir síma Trump setti Emily Murphy á sínum tíma yfir GSA en hún sagði „nýlega þróun varðandi laga- þrætur og staðfestingu kosningaúrslita“ hafa orð- ið til þess að hún setti valdatilflutninginn af stað. Hafnaði hún því að hafa sætt þrýstingi frá Hvíta húsinu varðandi tímasetninguna. „Mér bárust hins vegar hótanir á netinu, sím- leiðis og í pósti sem beint var gegn öryggi mínu, fjölskyldu minni, starfsliði mínu og gæludýrum. Ætlunin var að knýja mig til að taka þessa ákvörð- un of snemma,“ sagði Murphy í bréfi til Bidens. Repúblikanar hafa flestir fylkt sér um Trump og þá ákvörðun hans að játa ekki ósigur. Þó hefur rjátlað af fylginu á vaxandi hraða. Öldungadeild- armaðurinn Lamar Alexander frá Tennessee sagði að forsetinn ætti að setja Bandaríkin í fyr- irrúm og styðja við bakið á Biden. „Í lífinu man fólk eftir því síðasta sem þú gerðir,“ sagði hann. AFP Óskin uppfyllt Stuðningsmenn Bidens kröfðust viðurkenningar kosningaúrslitanna í Michigan. Trump opnar leið fyrir Biden  Tilkynning GSA þýðir að Biden fær aðgang að upplýsingum leyniþjónustunnar, skrifstofuhúsnæði og aðgang að embættismönnum  „Augsýnilega sigurvegari“ Lögregla í París gekk fram af tals- verðri hörku er hún upprætti í fyrri- nótt tjaldborg sem heimilislausir innflytjendur höfðu reist. Sló í brýnu milli lögreglunnar og innflytjenda og stuðningsfólks þeirra. Innanríkisráðherranum Gerald Darmanin blöskraði myndsenur frá Lýðveldistorginu í París það mikið að hann krafði lögregluna um tæm- andi skýrslu um aðgerðirnar. Beitti lögreglan meðal annars táragasi og elti fólkið uppi og lamdi með kylfum. Tugir tjalda voru fjarlægðir og var eigendum nokkurra þeirra velt út. Sögðust þeir vera heimilislausir og ekki eiga í hús að venda og neyðast til að búa á götunni. Nokkur hundruð sjálfboðaliða komu flóttamönnum til aðstoðar, mynduðu keðju á torginu og hrópuðu slagorð þar sem krafist var landvist- arleyfis og húsnæðis handa flótta- fólkinu öllu. Fyrir rúmri viku voru aðrar og mun stærri búðir ólöglegra innflytjenda við þjóðarleikvanginn Stade de France í norðurhluta borg- arinnar rýmdar. „Þeir beittu of miklu ofbeldi,“ sagði Shahbuddin, 34 ára Afgani, við AFP-fréttastofuna. „Við biðjum bara um þak yfir höfuðið.“ Búðirnar voru reistar í mótmæla- skyni við fyrri aðgerðir lögreglu sem fjarlægt hefur búðir hundraða inn- flytjenda að undanförnu, aðallega afganskra. Alls voru um 500 blátjöld á torginu þegar mest var en þau fylltust fljótt. Kom til átaka er lögreglan hófst handa við að rýma torgið. Yfirmaður húsnæðisdeildar Parísar, Ian Bross- art, fordæmdi framgöngu lögregl- unnar í máli sem hann sagði snúast um félagsmál en ekki glæpi. Emm- anuel Macron hefur tekið upp harð- ari stefnu gagnvart ólöglegum inn- flytjendum sem margir hverjir vilja komast til Bretlands. agas@mbl.is Reiði vegna hörku lögreglu í París  Hefur krafið lögreglu um skýrslu AFP Torg Tjöld höfðu verið reist en lög- regla leyfði þeim ekki að standa. Tekjur áætlunarflugfélaga munu dragast saman um 60% frá í fyrra, allt af völdum kórónuveirunnar, að sögn heimssamtaka áætlunarflug- félaga (IATA). IATA segir að mikil ógn steðji að flugsamgöngum í heild vegna tekjufallsins. „Árið sem senn er á enda verður líklega það versta í sögu flugsins.“ Samtökin bæta því við, að þótt kostnaður hafi verið skorinn niður sem svarar milljarði dollara á dag, þotur kyrrsettar og starfsfólki fækkað hrúgist upp tap sem eigi sér enga hliðstæðu. Í samanburði við árið 2019 er áætlað að tekjur flugfélaga 2020 verði um 328 milljarðar dollara í heild. agas@mbl.is FLUGSAMGÖNGUR AFP Áhrif Flugfélög hafa orðið að leggja þotum í stórum stíl í faraldrinum. Tekjur flugsins minnka um 60% Sextán sam- bandslönd Þýskalands hafa orðið sammála leiðbeiningum um samfélags- samgang. Þær verða kynntar á fundi fulltrúa landanna með Angelu Merkel í dag, en reglurnar munu takmarka jólahald. Þannig mega í mesta lagi 10 manns koma saman í einu á tíma- bilinu frá og með Þorláksmessu og fram á nýársdag. Börn teljast ekki með í þeirri tölu en fjöldinn er tvö- falt meiri en annars gildir um sam- gang fólks í desember. Í drögum að nýju reglunum segir að efna þurfi til viðræðna við trú- félög um hvernig hindra megi snertingu gesta við messur og bænahald. ÞÝSKALAND Takmarka samgang Angela Merkel Virkni rússneska bóluefnisins Spútn- ik V gegn kórónuveirunni er 95%, að sögn vísindamanna sem þróað hafa bóluefnið, sem gefið er í tveimur skömmtum. Rússneskir borgarar þurfa ekki að borga fyrir bólusetn- ingu en hún mun kosta um 10 dollara annars staðar. Geyma má Spútnik við tveggja til átta stiga hita á celcíus, ólíkt sumum öðrum bóluefnum sem geyma verður í frosti. Útreikningar á skilvirkni rúss- neska bóluefnisins voru fyrst gerðir 28 dögum eftir töku og mældist hún 91,4%. Seinni mælingin fór fram 42 dögum eftir seinni sprautuskammt- inn. „Sýndi bóluefnið þá yfir 95% virkni,“ sagði í tilkynningu rússneska heilbrigðisráðuneytisins og lyfja- tilraunastofnunarinnar Gamaleya. Lyfjarisarnir Pfizer og BioNTech segja virkni síns bóluefnis 95% og bandaríska lyfjafyrirtækið Moderna sagði virkni síns bóluefnis 94,5%. Miklar vonir eru bundnar við þessi bóluefni og önnur en leiðtogar víða um veröld biðja fólk að sýna þolin- mæði enn um sinn þótt langþreytt sé á Covid-19-veirunni, en hún hefur farið hamförum að undanförnu. Ástr- alska flugfélagið Qantas flýgur ekki með aðra farþega á næstunni en þá sem sýnt geta fram á að þeir hafi ver- ið bólusettir fyrir kórónuveirunni. Forstjóri félagsins, Alan Joyce, sagði þessa reglu koma til framkvæmda um leið og bóluefni verður tiltækt. Hann spáði því að þetta yrði regla fremur en undantekning í flug- samgöngum. Á vegum stjórnvalda víða um heim og flugfélaga er nú unnið að undirbúningi útgáfu sér- staks skírteinis um að handhafi þess sé bólusettur. Frakkar byrja að aflétta aðgerðum gegn kórónuveirunni frá og með komandi laugardegi og í sjónvarps- ávarpi í gærkvöldi kvaðst Emmanuel Macron forseti vonast til að hægt yrði að ganga enn lengra frá og með 15. desember og aflétta nær öllum takmörkunum á allri athafnasemi og útivist. agas@mbl.is Virkni bóluefnisins Spútnik 95%  Frakkar komnir yfir topp veiru- bylgjunnar, segir Frakklandsforseti AFP Efni Miklar vonir eru bundnar við bóluefnin gegn kórónuveirunni. G e f ð u s i l k i m j ú k a j ó l a g j ö f w w w . l i f s t y k k j a b u d i n . i s

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.