Morgunblaðið - 25.11.2020, Síða 17

Morgunblaðið - 25.11.2020, Síða 17
honum kært og má segja að oft hafi verið leitað til Sverris þegar eitthvað bjátaði á í húsum félag- anna KFUM og K í bænum. Við Sverrir vorum saman í bygging- arnefnd vegna nýbyggingar fé- lagsins við Holtaveg og kom þar fram góð reynsla hans við verk- legar framkvæmdir. Nú hin seinni ár höfum við orðið sam- ferða á fundi í AD, eftir að Sverrir hætti að keyra. Á leið okkar var oft spjallað um starfið og eins um fólkið í félaginu. Mér fannst með ólíkindum hvað hann fylgdist vel með og oft kom hann mér að óvör- um með fréttir sem ég hafði ekki heyrt. Ég þakka Sverri góða vináttu í gegnum árin og bið börnum hans og öllum hans afkomendum Guðs blessunar. Narfi. Það var gæfa að fá að kynnast Sverri og starfa með honum. Aðr- ir munu gera grein fyrir ævi hans en mig langar að koma á framfæri fáeinum þakkarorðum. Ég þakka samstarf á Holtavegi 28, í húsi KFUM og KFUK þar sem hann sinnti margvíslegum sjálfboða- störfum. Hann var traustur, mað- ur útsjónarsemi, framkvæmda, jákvæðni og þakklætis. Persónu- lega þakka ég orð hvatningar og uppörvunar, hvort sem var þá, eða fyrr og síðar í þjónustu kristniboðsins og tímaritsins Bjarma. Í þeim orðum birtist um- hyggja Sverris og að baki var án efa fyrirbæn fyrir mér og mínum. Eins ber að þakka fyrirbænir og stuðning við kristniboðsstarfið á langri ævi. Drottinn blessi minn- ingu Sverris en líf hans var öfl- ugur vitnisburður um hinn kross- festa og upprisna frelsara, drottin Jesú Krist. Ragnar Gunnarsson. Kveðja frá Skógarmönnum KFUM Í dag kveðja Skógarmenn góð- an félaga, Sverri Axelsson. Vatnaskógur var Sverri hug- leikinn, hann sat í stjórn Skógar- manna KFUM á árunum 1974 til 1978 en umhyggja og framlag hans til starfsins varði í raun allt hans líf. Sverrir byrjaði sem ung- lingur að aðstoða við ýmis verk, en síðar stýrði hann ýmsum stórum verklegum framkvæmd- um á staðnum og kom víða við varðandi uppbyggingu staðarins. Sverrir vann ætíð sem sjálfboða- liði og eru þau mörg verkin sem liggja eftir Sverri á staðnum, unn- in af brennandi anda fyrir starf- inu í þjónustu við ungmenni Ís- lands. Meðal þeirra verka er hann leiddi voru framkvæmdir við end- urnýjun á vatns- og frárennslis- málum staðarins. Þeirra fram- kvæmda njóta Skógarmenn enn og þær bera glöggt merki um natni og fagmennsku Sverris sem aldrei kastaði til höndunum. Í vetrarvinnuflokkum í Vatna- skógi var Sverrir oftar en ekki verkstjórinn og oft var grjóna- grautarpotturinn úr Hellulandi með og sá því Sverrir mönnum bæði fyrir fæði og verkefnum. Margur ungur maðurinn kynntist þar verksviti og útsjónarsemi Sverris og fékk þar tilsögn í verk- legum framkvæmdum, en kynnt- ist jafnframt einstökum eldmóð hans og kærleika. Árið 2000 var Sverrir sæmdur gullmerki Skógarmanna fyrir ómetanlegt framlag til starfsins í Vatnaskógi. Síðan eru liðin 20 ár og Sverrir hélt áfram, vann og að- stoðaði við uppbygginguna í Vatnaskógi fram á tíræðisaldur eða á meðan heilsan leyfði. Skógarmenn KFUM þakka samfylgd við góðan félaga og senda fjölskyldu Sverris innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Sverris Axelssonar. F.h. Skógarmanna KFUM, Ársæll Aðalbergsson.  Fleiri minningargreinar um Sverri Inga Axelsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2020 ✝ Gunnar ÖrnGuðsveinsson fæddist í Hafnar- firði 3. ágúst 1943. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans 14. nóvem- ber 2020. Foreldrar hans voru Guðsveinn B. Þorbjörnsson, lög- reglumaður í Hafnarfirði, og Ólöf Kristjánsdóttir. Þau eru bæði látin. Systir Gunnars var Oddrún, f. 1945, d. 9. janúar 2015. Eftirlifandi maður henn- ar er Gestur Guðnason, f. 1946. Þeirra börn eru Guð- sveinn Ólafur, Helga og Lóa Björg. Gunnar ólst upp í Hafnar- firði og lauk prófi frá Flens- borgarskóla. Hann lauk námi sem framreiðslumaður frá Matreiðslu- og framreiðslu- skólanum 1963. Með náminu vann hann á Gullfossi og í Klúbbnum. Skömmu eftir að stofnaði fljótlega annað fyrir- tæki, HG Vending, sem hélt ut- an um rekstur á Scanomat- kaffivélunum og –kaffinu. Gunnar hætti rekstri fyrir- tækjanna 1996 og hóf störf hjá Sælkeradreifingu hjá Bjarna Óskarssyni. Fyrirtækið var selt til OJK og Gunnar fylgdi með og sá aðallega um vöru- innkaup. Gunnar ferðaðist mikið vegna starfa sinna. Á við- skiptaráðstefnur í Evrópu, Skandinavíu, Bandaríkjunum, Japan og Kína. Þau hjónin ferðuðust mikið. Börn þeirra bjuggu í Noregi og Danmörku og fóru þau í ótal ferðir til þeirra. Þau fóru og dvöldu í þorpinu Kovalam í Kerala-héraði á Suður- Indlandi. Á Ítalíu, í litla þorp- inu þeirra Levanto í Liguria- héraði, dvöldu þau mörg sum- ur. Gunnar hafði alltaf mikinn áhuga á íþróttum og voru handbolti, knattspyrna, golf og snóker þar efst á blaði. Faðir hans, Guðsveinn Þor- björnsson, var einn af frum- kvöðlum knattspyrnufélagsins Hauka og stofnandi handknatt- leiksdeildar félagsins. Gunnar byrjaði snemma að iðka knatt- spyrnu, en seinna átti hand- boltinn hug hans allan. Hann átti sæti í fyrstu stjórn hand- knattleiksdeildar félagsins 1958 og varð m.a. Íslands- meistari í 3 fl. karla og var í sigurliði meistaraflokks Hauka 1964 þegar það tryggði sér sæti í 1. deild. Dóttir Gunnars og Odu Jak- obsen frá Færeyjum (þau skildu) er Diana Guðsveinsson Mejnholt, f. 1972, gift Morten Mejnholt, f. 1972. Þeirra börn eru Alberte, f. 1998, Lukas, f. 2005, Alma, f. 2008 og Oskar, f. 2009. Eftirlifandi eiginkona Gunn- ars er Helga Þórunn Guðmundsdóttir, f. 1942. Son- ur Helgu og uppeldissonur Gunnars er Fidel Helgi San- chez, f. 1973, kvæntur Guðríði Jónsdóttur, f. 1973. Þeirra börn eru Thor, f. 2001, Oliver, f. 2003, og Emma Rán, f. 2008. Börn Gunnars áður eru Már, f. 1963 og Björk, f. 1964. Útför Gunnars fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 25. nóv- ember 2020, kl. 13. Streymt verður frá athöfninni. Slóð á streymið: https://youtu.be/lE4DNoNgTTg Virkan hlekk á streymið má einnig nálgast á: https:/www.mbl.is/andlat Hótel Saga var opnuð réðst Gunn- ar þangað sem framreiðslumaður. Gunnar fluttist til Danmerkur 1970. Hann starf- aði á Hótel Mari- enlyst í Helsingör sem þjónn og seinna á hótel Trouville í Horn- bæk. Gunnar opnaði veitingastað sinn „Kabyssen“ ásamt félaga sínum Hans Kröger mat- reiðslumanni. Gunnar seldi sinn hlut í veitingastaðnum er hann flutti heim til Íslands 1983. Hann stofnaði fyrirtæki sitt HG heildverslun 1984, ásamt eiginkonu sinni Helgu, með innflutning á tækjum, hús- gögnum og innréttingum fyrir hótel, veitingahús og stofn- anir. Fyrirtækið óx hratt og var fyrst staðsett í Sundahöfn og síðar í Fákafeni. Gunnar Þá er hann látinn, víkingur- inn, vinur minn, Gunnar Guð- sveinsson. Æðrulaus, glaður og reifur og þakklátur, allt til enda. Strákarnir okkar, æskuvinirn- ir, Óli og Fidel, leiddu okkur saman. Gunnar hafði lifað og starfað lengi í Danmörku og m.a. rekið veitingahúsið Kabys- sen í Helsingör, held ég í ein 10 ár. Hér heima hafði hann nú hitt Helgu Guðmundsdóttur, sem varð ástin hans og helsti stuðn- ingsmaður frá þeim tíma til hinstu stundar. Árin liðu, Gunn- ar var á tímum allumsvifamikill, m.a. við rekstur fyrirtækis þeirra Helgu, HG heildverslun- ar, sem seldi tæki og tól fyrir veitingahús og hótel. Þar naut reynsla Gunnars sín vel af veitingarekstri og svo var hann menntaður framreiðslu- maður. Þá var hann hreinlega sölumaður af Guðs náð, sem aldrei sló af í sölumennskunni og hvers manns hugljúfi. Gunn- ar og Helga urðu viðskiptavinir mínir á lögfræðistofunni og ævi- vinir okkar barna minna. Ótalmarga aðfangadaga var einn áfangastaða okkar krakk- anna á jólarúntinum að heim- sækja þessa elskulegu vini okk- ar. Eftirminnileg er veisla okkar vinanna þegar okkur tókst að smala saman Óla og Fidel og fjölskyldum þeirra og Gunnar eldaði af snilld sinni ofan í okkur öll, sérvaldar stórsteikur og lék á als oddi. Áfengið og vinur minn áttu ekki gott skap saman, en honum þótti gaman að kaupa það. Naut ég lengi góðs af þessum áhuga hans. Þannig barst straumur ljúffengra veiga á borð mitt frá vini mínum. Fyrir nokkrum árum bauð Gunnar mér í veiði í Norðurá, varð þetta hans fyrsta og síðasta ferð til laxveiða. Þá kom sér illa hvað hann var harður af sér og end- aði tvíbrotinn eftir túrinn. En samvera okkar þarna varð til þess að við uppgötvuðum það ótrúlega: Við höfðum nefnilega verið samskipa á Gullfossi í ágúst 1961 rúmum 20 árum áður en leiðirnar lágu saman samkvæmt áðurgreindu, þegar ég var á leið heim á Frón í fyrsta sinni frá Þýskalandi með mömmu og þremur systkinum mínum og hann, sem þá var að læra til þjóns á Hótel Sögu, að leysa af á Gullfossi, þar sem fjörið var mest og kaupið hæst. Lengi hittumst við Gunnar í „löns“ til skrafs og ráðagerða, á völdum veitingastað, sem uppfyllti strangar gæðakröfur hans, varð Kringlukrá oft fyrir valinu. Á útleiðinni kíkti Gunnar venjulegast við hjá meistara eld- hússins til að athuga hvort ekki þyrfti að endurnýja einhver tæki í eldhúsinu Helga og Gunn- ar samglöddust mér innilega þegar þau fréttu af kynnum okkar Kristbjargar minnar og buðu okkur út að borða, þrátt fyrir að Gunnar væri orðinn mjög veikur. Okkur þótti mjög vænt um það. Sjálfsagt sleppa fáir á langri ævi við að fá ör á sálina og fór vinur minn ekki varhluta af því, en um þau mál var honum tregt tungu að hræra. Margar af minningum mínum af þeim Gunnari og Helgu eru perlur á minningafesti minni. Að leiðarlokum þakka ég Gunnari samfylgdina og skila góðri kveðju frá fjölskyldu minni og óska Helgu og öðrum í fjölskyldu hans Guðs blessunar. Tryggvi Agnarsson. Nú á kveðjustund hrannast minningar æskuáranna upp og þar er af mörgu að taka. Ég gleymi aldrei kvíðanum þegar við, ég, þú, Ingvar og Óli, vorum sendir í danskennslu til Rigmor Hansen, 10-11 ára. Allt gekk það samt vel og nú á aðeins ég eftir að stíga síðasta dans fyrir lokun. Og ekki var kvíðinn minni þegar við spiluðum fjórhent Veiðimannamars á skemmti- kvöldi hjá Haukum í Sjálfstæð- ishúsinu – og fer ekki mörgum sögum af þeim hæfileika. Ofarlega í huga eru Dan- merkurárin þín, heimsóknir og höfðinglegar móttökur og gagn- kvæmu keppnisferðirnar sem þú komst á við Helsingörliðið í handbolta sem þá var eitt það sterkasta í Danmörku. Veit ég að margir minnast þeirra með söknuði. Flestar minningar tengjast félaginu okkar, Haukum, en þar vorum við í fyrstu stjórn hand- knattleiksdeildar félagsins, 14 og 15 ára. En nú er mál að linni, kæri vinur. Ég kveð þig með þakk- læti fyrir öll árin okkar og óska þér góðrar ferðar með orðum Starra í Garði: Hvers vegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. Bjarni Hafsteinn Geirsson. Gunnar Örn Guðsveinsson Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær móðir okkar, amma og langamma, MARGARET ROSS SCHEVING THORSTEINSSON hjúkrunarfræðingur, lést á Landspítalanum 13. nóvember. Útför fer fram frá Lindakirkju miðvikudaginn 25. nóvember klukkan 11, að nánustu ættingjum viðstöddum. Athöfninni verður streymt á netinu á https://youtu.be/l-wKMIncp9Y Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Rauða kross Íslands. Gunnar Bent Scheving Thorsteinsson Carole Ann Scheving Thorsteinsson Guðrún M. Scheving Thorsteinsson Ósk Scheving Thorsteinsson Þorsteinn Scheving Thorsteinsson Ástríður Scheving Thorsteinsson, Karl Trausti Einarsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, VIKTORÍA KARLSDÓTTIR, Áshamri 3f, Vestmannaeyjum, lést 31. október. Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum mánudaginn 30. nóvember klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt frá vef Landakirkju, www.landakirkja.is. Jónas Ragnar Gíslason Erika Ruiz Stella Gísladóttir Guðmundur Gíslason Guðný Jensdóttir Viktoría Gísladóttir Fanney Gísladóttir Oddur Magnús Oddsson Bryndís Gísladóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, GUÐFINNA THORLACIUS hjúkrunarkennari, Háagerði 4, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 22. nóvember. Útför fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 27. nóvember kl. 10.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Streymt verður frá athöfninni af síðu Akureyrarkirkju. Kristjana Aðalgeirsdóttir Jari Turunen Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir Margrét Th. Aðalgeirsdóttir Ari Gunnar Óskarsson Petra, Breki, Gunnar Aðalgeir og Inga Rakel Margrét G. Thorlacius Ólafur Þór Thorlacius Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi okkar og langafi, JÓHANN PÉTUR RAGNARSSON frá Efri-Tungu, Skutulsfirði, lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 17. nóvember. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 28. nóvember, að viðstöddum nánustu ættingjum. Guðmundur Jens Jóhannss. Soffía Þóra Einarsdóttir Björn Bergsson Jóhann Pétur Guðmundsson Nanna Vilborg Harðardóttir Bjarki Guðmundsson Þórdís G. Guðmundsdóttir Ragnar A. Guðmundsson Þóra Matthíasdóttir Einar Ási Guðmundsson Guðbjörg Ebba Högnadóttir Sólveig G. Guðmundsdóttir Valtýr Þórarinsson barnabarnabörn Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.