Morgunblaðið - 17.11.2020, Síða 8
Stefán Einar Stefánsson
ses@mbl.is
Ó
endanlega oft hefur
bandaríska bílaframleið-
andanum Tesla verið
spáð dauða. Spádóm-
unum hefur farið fækkandi á síðustu
árum en viðkvæðið hefur verið að
þegar stóru bílaframleiðendurnir
myndu hasla sér völl á markaðnum
myndu þeir ýta „sprotanum“ út af
sviðinu. Það hefur þó ekki gerst.
Tesla er nú metið á 387 milljarða
dollara. Fyrirtækið keppti um nokk-
urt skeið við Toyota um titilinn verð-
mætasti bílaframleiðandi heims. Síð-
arnefnda fyrirtækið er í dag metið á
194 milljarða dollara. eða rétt um
helminginn af því sem óskabarn
Elon Musk er talið rísa undir.
Risinn rumskar
Volkwagen er stærsti bílafram-
leiðandi heims, sé litið til fjölda fram-
leiddra eintaka. Því skiptir máli
hvernig þýski risinn hreyfir sig á
þessum markaði. Og hann hefur látið
til sín taka á þessu sviði, að miklu
leyti gegnum tengiltvinn-tæknina en
einnig e-Golf sem notið hefur mikilla
vinsælda frá því að hann kom fyrst á
markað 2014. En hann byggði á eldri
tækni sem gerir ráð fyrir dísel- eða
bensínvél í húddi og ljóst var að
fyrirtækið myndi eins og allir aðrir á
þessum markaði hanna nýjan bíl frá
grunni sem tæki tillit til þess að í
stað bensíntanks þarf að koma fyr-
irferðarmikilli rafhlöðu fyrir undir
bílnum og mótorar sem knýja dekkin
áfram eru minni og allt öðruvísi
hugsaðir en tæknin sem sprengi-
hreyfillinn byggir á. Á þessari stað-
reynd kveikti Nissan fyrr en aðrir og
kom Laufinu á markað 2010, fimm
árum eftir að Tesla kynnti Roadster
í fyrsta sinn til sögunnar og sama ár
og Tesla fór á markað (tveimur árum
áður en S-bíllinn var kynntur til sög-
unnar).
Golfinn var millileikur
Þótt flestir hafi gert sér grein fyr-
ir að e-Golf væri tímabundið svar
VW við mjög hratt vaxandi spurn
eftir rafbílum, hefur þess alllengi
verið beðið að fyrirtækið kæmi fram
með bíl sem skákað gæti Nissan
Leaf og Tesla 3 sem hafa borið höfuð
og herðar yfir aðrar bílategundir á
markaðnum. Nissan hefur afhent ríf-
lega 500 þúsund Lauf út á mark-
aðinn og Tesla hefur selt yfir 650
þúsund eintök af 3 og afhent yfir 200
þúsund eintök af bílnum nú þegar.
Og nú hefur svarið litið dagsins
ljós í ID.3 og í því felast meiri tíðindi
en þau sem tengjast bílnum sem slík-
um. Hann er byggður á MEB-
undirvagninum (þ. Modularer E-
Antriebs-Baukasten) sem bíla-
framleiðendurnir Audi, SEAT,
Skoda ásamt Volkswagen, sem
heyra undir VW-samstæðuna, hafa
þróað í sameiningu og verður nýttur
sem grunnur að mörgum ólíkum raf-
bílum á komandi árum. Er honum
ætlað að tryggja hagkvæmni í fram-
leiðslunni, mikið innanrými en minna
ytra byrði (sem skiptir máli þegar
kemur að loftmótstöðu) og staðlað
form utan um þær rafhlöður sem
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stundum fær maður það á
tilfinninguna að bestu
hönnuðirnir hafi farið í
kaffi þegar kom að aft-
urhleranum en það á ekki
við í tilviki ID.3. Þar var
enginn í kaffi.
Stærsti bílaframleiðandi heims hefur slegið tóninn um með hvaða hætti hann hyggst hasla sér völl á sviði rafbílavæðingarinnar.
ID.3 er yfirlýsing um að Volkswagen ætlar sér vænan skerf af kökunni sem þar er til skiptanna. Enn á fyrirtækið þó eftir að koma
fram með nýjungar á sviðinu sem koma því í sjálft bílstjórasætið í kappakstrinum um leiðtogahlutverkið á rafbílamarkaðnum.
Volkswagen hnyklar smávöðvana
ID.3 er stærri en
hann virðist. Það
er galdurinn við
hönnun bílsins.
Bíllinn er skemmtilega
sportlegur þegar hann er
kominn á 20 tommu felgur.
8 | MORGUNBLAÐIÐ
» 100 kW með 58 kWs rafhlöðu
» Sjálfskiptur
» Afturdrifinn
» 201 hestafl / 310 Nm
» 0-100 km/klst. á 7,3 sek.
» Hámarkshraði 160 km/klst.
» 0 g/km CO2
» 15,4 kWst / 100 km
» Eigin þyngd 1.805 kg
» 385 l farangursrými
Umboð: Hekla
» Grunnverð 5.190.000 kr.
» Verð á prófuðum bíl:
6.890.000 kr.
Volkswagen
ID.3 Pro
Performance