Bæjarins besta - 04.01.1990, Side 2
2
BÆJARINS BESTA
Benedikt Kristjánsson verslunarstjóri Vöruvals ásamt þeim (f.v.) Páli Péturssyhi frá Þekkingu
h.f. og Sveini Áka Lúðvíkssyni frá Sameind, sem aðstoða starfsfólk Vöruvals við að koma á
hinu nýja tölvuvædda sölukerfi.
Vöruval:
Nýtt sölukerfi
í notkun
VERSLUNIN Vöruval
tekur nú í byrjun janúar
upp nýtt sölukerfi frá IBM
sem felur það í sér að í versl-
uninni verða allar vörur
strikamerktar og tölva les
verð hvers hlutar við sam-
lagningu. Vörur í kjötborði
fá sína strikamerkingu á
verðmiðum tölvuvogarinnar.
Jafnframt verður miði á
öllum hillum þar sem fram
kemur verð, samanburðar-
verð miðað við kíló og upp-
lýsingar um þyngd. Þessi
breyting á að auðvelda mjög
alla afgreiðslu og flýta fyrir
viðskiptavinum, auk þess
sem öryggi við samlagningu
og bókhald fyrirtækisins
eykst. Viðskiptavinurinn fær
samlagningarstrimil þar sem
fram koma allar upplýsingar
um vöruheiti, magn, verð,
hlutfall virðisaukaskatts af
heildarupphæðinni og með
hverju er greitt. Verslunin
opnar með þessu nýja kerfi á
fimmtudag kl. 10.
Áfengissala:
Dnikkið fyrir 21
milljón í desember
EINS og fram kemur í
frétt annars staðar í
blaðinu var mikið um ölvun
um áramótin á ísafirði, og
þykir varla nýtt.
BB sló á þráðinn til útsölu-
stjóra Áfengis og tóbaks-
verslunar ríkisins á ísafirði
og hann sagði að í desember-
mánuði hefðu komið þar í
kassann 21 milljón 324 þús-
und krónur.
Ekki er hægt að fá sundur-
liðað hve mikil sala var á
bjór, léttum vínum og sterk-
um en til samanburðar má
nefna að í desembermánuði í
fyrra var selt áfengi fyrir 15
milljónir þannig að sé reikn-
Jónatan Arnórsson útsölustjóri. ÁTVR fékk fyrir 21 milljón í
kassann á jólavertíðinni.
að með verðhækkunum er I enda þótt þá hafi enginn
salan líklega svipuð og þá, ' bjórinn verið á boðstólum.
Áramótin:
Mikil ölvun
TÖLUVERT var að gera
hjá lögreglunni um ára-
mótin og var mikið um ölvun
í bænum á nýársnótt, en þó
minni en verið hefur nokkur
undanfarin áramót.
Nokkuð var um útköll
vegna ryskinga og eyddu
tveir nýársnóttinni í fanga-
geymslum lögreglunnar.
Fólk var mikið á ferli í mið-
bænum og það var ekki fyrr
en undir klukkan níu að
morgni að ró komst á, enda
veður gott.
Athyglisvert er að enginn
var tekinn grunaður um ölv-
un við akstur þessa nótt.
Jólaböllin voru vel sótt að venju og á þessarri mynd, sem
tekin var á jólatrésskemmtnn frímúrara á ísafirði, sést
Hurðaskellir rétta krökkunum góðgæti úr pokanum
sínum. Mörgum þótti þó öruggara að hafa einhvern sér
eldri í fylgd með sér þegar nálgast átti þennan skrítna
kall.
„Og hafið þið verið góðu bömin þetta árið?“ Frá jóla-
trésskemmtun Oddfellow-manna á ísafirði.