Bæjarins besta - 28.11.1990, Qupperneq 4
4
BÆJARINS BESTA
BÆJARINSBESR
Úháð vikublað
á Vestfjörðum
Útgefandi:
H-prent hf.
Sólgata 9, ísafjörður
S 4560
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson
S 94-4277 & 985-25362
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson og
Halldór Sveinbjörnsson
S 94-4101 & 985-31062
Blaðamaður:
Róbert Schmidt
S 94-3516
Útgáfudagur:
Miðvikudagur
Upplag:
3800 eintök
Ritstjórnarskrifstofa
og auglýsingamóttaka:
Að Sólgötu 9 S 94-4570
Fax S 4564
Setning, umbrot
og prentun:
H-prent hf.
BÆJARINSBBIA er aðili að
samtökum bæjar- og
héraðsfréttablaða og
upplagseftirliti
Verslunarráðs.
Eftirprentun, hljóðritun,
notkun ljósmynda og
annars efnis er óheimil
nema heimilda sé getið.
- blað
sem
vitnað
er í.
ísafjörður:
Af bæjarmálum
I Golfklúbbur ísafjarðar hefur farið þess á leit við bæjar-
ráð að bæjarsjóður veiti fé til uppbyggingar golfvallarins í
Tungudal á árinu 1991. Jafnframt fer Golfklúbbur ísafjarð-
ar þess á leit við bæjarráð að við skipulagningu svæðisins við
Dvalarheimilið Hlíf verði gert ráð fyrir „púttvelli'1. Býðst
golfklúbburinn til að veita faglega ráðgjöf.
■ Skátafélagið Einherjar Valkyrjan hefur sent bæjarráði
bréf þar sem óskað er eftir fjárstuðningi til að koma upp
varanlegum stöfum (ártal) í Eyrarhlíð til að nota á gamlárs-
kvöld. Áætlaður kostnaður við verkið er kr. 215.000.-
Bæjarráð vísaði erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.
■ íbúar við Árvelli 2 og 4 í Hnífsdal hafa sent bæjarráði
bréf þar sem farið var þess á leit við bæj arsjóð að hann gengi
frá opnum skurði sem er fyrir framan húsin, en af honum
hefur stafað hætta fyrir börn. Forstöðumaður tæknideildar
bæjarins hefur lagt fram niðurstöður sínar á aðstæðum við
húsin og leggur hann til að grafinn verði nýr skurður fjær
húsunum og að uppgröftur úr honum verði notaður sem
vörn. Þá taldi forstöðumaður nauðsynlegt að hafa fram-
ræslu á þessum slóðum.
I Brunamálanefnd ísafjarðarkaupstaðar hefur lagt til að
þeir Hermann Hermannsson, Mjallargötu 1, ísafirði og
Gísli Úlfarsson, Sunnuholti 2, ísafirði verði skipaðir í
slökkvilið ísafjarðar.
I Samþykkt hefur verið að Guðmundur P. Gunnlaugs-
son, prentari og skíðaþjálfari sjái um rekstur Skíðheima
fyrir skíðaráð árið 1991 en Guðmundur hafði óskað eftir
■því að fá Skíðheima leigða.
■ fþrótta- og æskulýðsráð hefur lagt til að höfðu samráði
við svæðisstjóra skíðasvæðis ísafjarðar að drög að verðskrá
á aðgangskortum í lyftur á skíðasvæðið veturinn 1991, verði
samþykkt. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að árskort
fullorðinna hækki úr kr. 8.250.- í kr. 9.000., árskort barna
hækki úr kr. 4.000,- í kr. 4.500. Dagskort fullorðna hækki
úr kr. 700,- í kr. 750.-, dagskort barna hækki úr kr. 300.- í
kr. 350. Hálfsdagskort fullorðinna hækki úr kr. 400.- í kr.
500.-, hálfsdagskort barna hækki úr kr. 200.- í kr. 250.-.
Þá er gert ráð fyrir í tillögunni að kvöldkort fullorðinna
hækki úr kr. 400.- í kr. 500.-, kvöldkort barna hækki úr kr.
200.- f kr. 250.-. Fjölskyldukort þar sem um er að ræða tvö
börn, hækki úr kr. 19.500 í kr. 21.450.-, fjölskyldukort þar
sem um er að ræða þrjú börn hækki úr kr. 21.500,- í kr.
23.640,- og að göngukort fullorðinna hækki úr kr. 2.500.- í
kr. 3.000,- og að göngukort barna hækki úr kr. 1.250,- í kr.
1.400,-
• Hörður Högnason hjúkrunarforstjórí stendur við hlið endurlíf-
gunarborðsins sem Rebekkustúkan Þórey á ísafirði færði Fjórð-
ungssjúkrahúsinu að gjöf í síðustu viku.
ísafjörður:
Amiðvikudags-
KVÖLDIÐ í síðustu
viku færði stjórn Rebekku-
stúkunnar Þóreyju, Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á ísafirði
endurlífgunarborð að gjöf.
Það var Bjöm Þór Sigur-
bjömsson yfirlæknir sem
veitti gjöfinni viðtöku ásamt
Guðmundi Marinósyni fram-
kvæmdastjóra Fjórðungs-
sjúkrahússins og Ijósmæðr-
um.
Endurlífgunarborðið er
notað til fyrstu umönnunar á
nýburum strax eftir fæðingu
og er útbúið til fullkominnar
endurlífgunar og annara
neyðaraðgerða ef svo ber
ísafjöröur:
Danshátíö hjá
Dagnýju Björk
FYRIR stuttu stóð yfir
dansnámskeið á ísafirði
á vegum Dagnýjar Bjarkar,
danskennara. Alls tóku átta
hópar þátt í dansinum á aldr-
inum frá 4 ára og upp úr.
Flestir hópanna voru í Jazz-
ballett, Hip Hop og
Madonnu dönsum en yngstu
hóparnir voru mest í sam-
kvæmisdönsum og leikjum.
Dagný Björk vonast til
þess að geta þjálfað upp pör
og hópa frá ísafirði til þess
að taka þátt í íslandsmótinu í
dansi sem verður á vori kom-
anda og ætlar því að koma
aftur til ísafjarðar eftir ára-
mót til þess að halda annað
námskeið. Að síðasta nám-
skeiði loknu voru haldnar
nemendasýningar hjá hóp-
unum og má með sanni segja
að hátíðarstemmning hafi
ríkt í Sjallanum þá daga sem
sýningarnar stóðu yfir.
„Á fsafirði er ofsalega
mikið af góðum dönsurum
en við verðum að passa þau
vel, því það er ábyrgðarhlut-
verk að kenna dans og til
þess þarf að minnsta kosti
fjögur ár í námi. Það er því
ekki á hvers manns færi að
ætla sér að skila því hlut-
verki sem skyldi, hvað varð-
ar rétt spor og rétta takta í
tónlist" sögðu þær stöllur
Dagný Björk Pjetursdóttir,
danskennari og aðstoðar-
kennari hennar, Sigríður Jó-
hannsdóttir í samtali við BB.
undir, annað hvort á fæðing-
arstofu eða skurðstofu, t.d.
eftir keisaraskurði.
Gjöfin er metin á 965.000
krónur og er frá fyrirtækinu
Ohmeda í Bandaríkjunum.
Endurlífgunarborðið léttir
mjög störf ljósmóðurinnar
og eykur jafnframt öryggi
við fæðingu nýbura.
Aðventukvöld í
ísafjarðarkapellu
sunnudaginn
2. desember 1990
kl. 21.00
Flytjendur:
Sunnukórinn
Kór ísafjarðarkirkju
Barnakór
Tónlistarskólans
Stjórnandi:
Ingibjörg
Gunnlaugsdóttir.
Rúnar Vilbergsson,
fagottleikari.
Margrét Gunnarsdóttir,
píanó.
Agota Joó,
píanó og orgel.
Sigríður Ragnarsdóttir,
píanó og orgel.
Tómas Tómasson,
flauta.
Söngstjóri:
Beata Joó