Bæjarins besta - 28.11.1990, Blaðsíða 13
BÆJARINS BESTA
13
na-w*
ókyrrast eftir mönnunum og
hafði samband við fólksflutn-
ingabílstjórann og tilkynnti
honum að mennirnir hefðu
ekki skilað sér. Hann snéri
strax við og fann þá heilu á
höldnu í slysavarnarskýlinu,
þar sem þeir höfðu aðhafst í
einn og hálfan tíma.
-r.
Bessi seldi
í Grimsby
&KUTTOGARINN Bessi
ÍS 410 frá Súðavík seldi
224,5 tonn, mestmegnis
þorsk í Grimsby dagana 19.
og 20. nóvember síðastliðinn
fyrir rúmar 26.4 milljónir
króna. Meðalverð aflans var
því 117.60 krónur fyrir kílóið
sem telst frekar lélegt, mið-
að við markaðsverð að und-
anförnu.
Að sögn Ingimars Hall-
dórssonar, framkvæmda-
stjóra Frosta hf. og Álftfirð-
ings hf. sem gerir út Bessa er
skýringin á þessari slöku
sölu sú að mestur hluti aflans
var veiddur á fyrstu vikunni
eftir að skipið fór út. Síðan
datt veiðin niður og var því
enginn nýr fiskur í skipinu til
þess að lyfta verðinu upp.
Bessi heldur aftur á veiðar í
kvöld. 's-
slæms skj'ggnis, en þá var
fólksflutningabíllinn farinn.
Mennirnir þurftu að ganga
áfram niður heiðina til að
komast í slysavarnarskýlið
Sólveigarbúð. Par var hand-
virkur sími en mennirnir
kunnu ekki að nota hann
rétt. Bílstjórinn sem beið
þeirra á heiðinni fór að
Jolabokm 1 ar er:
Saga ísafjarðar
og Eyrarhrepps
SAGA
SAFJARftÆ
Eyrarhr^PP* B,n
Fjórða og seinasta bindið er nú
komið út og nær yfír tímabilið frá
1921-1945.
Það er lifandi lýsing af mann-
lífi á ísafirði á millistríðsárunum
og byggð og búsetu í Eyrarhreppi
á sama tímabili.
SÖGUFÉLAG ÍSFIRÐINGA
Aðalfundur
Aðalfundur Togaraútgerðar ísafjarðar hf.
fyrir árið 1989 verður haldinn í Stjórnsýsluhús-
inu á ísafirði, 4. hæð, fimmtudaginn 29. nóvem-
ber nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillaga um aukningu hlutafjár í félaginu.
4. Tillaga um breytingar á samþykktum fé-
lagsins þar sem m.a. ér gert ráð fyrir að
aflétta hömlum á sölu hlutabréfa í félag-
inu.
5. Önnurmál.
Ársreikningur félagsins, ásamt tillögum
stjórnar um útgáfu jöfnunarhlutabréfa, aukn-
ingu hlutafjár og breytingar á samþykktum,
hggja frammi, hluthöfum til sýnis, hjá undirrit-
uðum, á bæjarskrifstofunni á ísafirði, frá og
með 20. nóvember nk.
ísafirði 14. nóvember 1990.
Fh. Togaraútgerðar ísafjarðar hf.
Magnús Reynii Guðmundsson íoim.
Núpsskóli í Dýrafirði:
Breiðadalsheiði:
Súðavík:
Ráðskonur í mötuneyti
Núpsskóla mótmæla
- ríkið hættir launagreiðslum til starfsfólks mötuneyta í héraðs-
skólum á landsbyggðinni
Tveir menn
veðurtepptir
á Breiðadalsheiði
- hugðust ganga í blindbvl til móts við bfl
sem beið þeirra á heiðinni
ÁÐSKONUR í mötu-
neyti hérðasskólans
að Núpi lögðu niður vinnu í
einn dag í byrjun mánaðar-
ins, í mótmælaskyni við
kvörðun Menntamálaráðu-
neytisins um að hætta launa-
greiðslum til starfsmanna
mötuneyta í hérðasskólum á
landsbyggðinni.
„Með þessu mótmælum
vorum við að vekja athygli á
að ríkið skuli vera hætt að
greiða laun til starfsmanna í
mötuneytum hérðasskólana.
En ég efast um að mótmælin
hafi vakið athygli, því við
erum svo afskekkt hérna.
Þessi skóli er algerlega mun-
aðarlaus og við fáum ekki
greidd laun eins og við höf-
um fengið venjulega. Það
var greidd viss upphæð út úr
mötuneytinu án þess að yfir-
vinna væri tekin með, en hún
er óhjákvæmileg á haustin.
Við erum tvær í fullu starfi
og nokkrar í hlutastarfi.
Þetta er eitthvað sem þess-
um háu herrum hefur yfir-
sést“. sagði Jóna B. Krist-
jánsdóttir ráðskona í
mötuneyti Núpsskóla í sam-
tali við blaðið, en hún er
búin að starfa við ýmis störf
við skólann síðustu 30 ár.
TVEIR sjómenn af togur-
unum Sléttanesi og
Framnesi frá Þingeyri, þurftu
að aðhafast við í skýli Slysa-
varnarfélagsins á Breiða-
dalsheiði í hálfan annan
klukkutíma síðastliðinn
fimmtudag. Mennirnir voru
á leið í frí frá Þingeyri til Isa-
fjarðar ásamt þremur öðrum
sjómönnum.
Þeir lögðu upp með fólks-
flutningabíl, en þegar komið
var í Kinnina á Breiðadals-
heiði, var fyrirséð að lengra
kæmist bíllinn ekki. Menn-
irnir tveir ákváðu þá að
ganga, í blindbyl og snjó-
komu, áleiðis yfir ófærðina
að bíl sem beið þeirra þar.
Hinir þrír lögðu ekki á þá
hættu og urðu eftir í bílnum.
Eftir nokkur hundruð
metra urðu mennirnir að
snúa við vegna óveðurs og