Bæjarins besta - 28.11.1990, Síða 8
8
BÆJARINS BESTA
Gefðu bókhaldinu líf!
íslensk forritaþróun hf. kynnir hinn nýja opusallt viðskiptahugbúnað
29. nóvember nk. kl. 10 á Hótel ísafirði. Viljir þú fylgjast með þróun
hugbúnaðar og hvernig hann getur aukið framlegð fyrirtækisins, þá
mætir þú á kynninguna.
Kynnt verður:
framtíðar viðskiptahugbúnaður
BfíltSSM myndræn framsetning
ISISHffinTl sveigjanleiki
ISHIHSiIW skýrslugerð með þrívíddar grafík
ISfffíSRM SQLfyrirspurnarmöguleikar
Upplýsingar í símum 91 -671511 og 94-3745.
B forritaþróun hf OpUS allt
t Jóla- tilboc %
á Bauknecht uppþvottavélum og þurrkurum. Einstakt tilboð. Frábær greiðslukjör.
Opið föstudag til kl. 19. RAFSJÁ Laugardag kl. 13 tií 17. Hóiastíg e Bolungarvík - @7326
Skálavík Bolungarvík 7130 Skálavík Bolungarvík a 7130
Dansleikur laugardagskvöld kl. 23-03. Hinir frábœru ROKKBÆNDUR sjá umfjörið. Aldurstakmark 18 ár. Pöbbinn opinn föstudagskvöld kl. 22-01.
Vestfjaróamið:
Koprgnimi
SÍÐUSTU daga hefur ver-
ið mokveiði á Kögur-
grunni og við Djúpkrók. Á
milli 20-30 togarar eru á
svæðinu og er von á fleirum.
Togarinn Hálfdán í Búð fékk
30 tonna hal á mánudags-
nóttina, en trollið sprakk og
aðeins náðist 6 tonn af hal-
inu.
„Petta hefur verið nokkuð
blettótt en sumir hafa verið
að fá frá 12 upp í 20 tonn í
hali“, sagði Sigurður Ólafs-
son stýrimaður á Elínu Por-
bjarnardóttur ÍS frá Suður-
eyri, en Elín var búinn að fá
rúm 40 tonn eftir tveggja
daga veiði. Mesta veiðin er í
myrkrinu og dregur mjög úr
veiði þegar birta tekur. Afl-
inn er aðallega þorskur og er
hann blandaður.
Bolungarvík:
13 vindstig
þegarmestvar
VERSTA veður gekk
yfir Vestfirði síðastlið-
inn fimmtudag og föstudag
með mikilli snjókomu. Á
ísafirði var orðið þungfært á
föstudag og þurfti lögregla að
hjálpa fólki til vinnu sinnar.
í Bolungarvík fór vind-
hraðinn mest upp í 13 vind-
stig og varð mörgum bolvík-
ingnum ekki svefnsamt þá
nóttina. Litlar skemmdir
urðu að völdum óveðursins
en eitthvað af sjónvarpsloft-
netum munu hafa gefið sig.
Nokkrar rafmagnsslár brotn-
uðu í Tungudal við Bolung-
arvík með þeim afleiðingum
að öll sveitin í Syðridal varð
rafmagnslaus. Bæirnir
Ósbær og Pjóðólfstunga
urðu einnig rafmagnslausir.
Slökkvilið Bolungarvíkur
var fengið til að afísa krap
sem hafði myndast á
staurum og línum. Vel gekk
af afísa og var allt komið í
eðlilegt ástand klukkan sjö
um morguninn.
-s
*
Urýmsum áttum:
Fullveldisfagnaður
SJÁLFSTÆÐISFÉ-
LÖGIN í Bolungarvík
halda sinn árlega fullveld-
isfagnað nk. laugardag í
veitingahúsinu Skálavík.
Fullveldisfagnaðurinn
hefst kl. 20,30 með borð-
haldi og skemmtiatriðum.
Ræðumaður kvöldsins
verður Einar Oddur Krist-
jánsson, formaður Vinnu-
veitendasambands ís-
lands. Að loknum skemm-
tiatriðum verður almenn-
ur dansleikur þar sem
Rokkbændur sjá um að
halda uppi fjöri. Sam-
kvæmt venju er allt sjálf-
stæðisfólk og aðrir velunn-
arar flokksins hjartanlega
velkomnir á þennan 1. des.
fagnað. Þeir sem hyggjast
taka þátt í fagnaðinum eru
vinsamlegast beðnir að til-
kynna þátttöku til Bjargar
í síma 7460, Porbjargar í
síma 7452 eða Margrétar í
síma7158.
Fréttatilkynning.
Línan
SLYSAVARNAR-
KONUR á ísafirði munu í
næstu viku byrja að selja
línur í árlegu Jólahapp-
drætti. Það er von okkar
að bæj arbúar taki sölukon-
um okkar vel eins og þeir
hafa gert mörg undanfarin
ár en þetta er 18 árið sem
Jólahappdrættið starfar.
Vinningar eru handunn-
ir munirtil heimilisins unn-
ir af félagskonum. Sýnis-
hornum vinninga verður
stillt út í glugga að Hafnar-
stræti 8, og verða eflaust
með því fyrsta til að setja
jólasvip á bæinn. Dregið
verður í happdrættinu á
jólafundi Kvennadeildar-
innar, 1. desember. Ágóða
af „Línusölunni" verður
varið til eflingar slysa-
varnastarfsins á ísafirði.
Línan verður einnig til
sölu á eftirtöldum stöðum:
Hjá Olíufélagi Útvegs-
manna, versluninni Einar
og Kristján, Hlíf Torfnesi
og í versluninni Baðstof-
unni.
Fréttatilkynning.
BÆJARINSBESIA
- blað allra
Vestfirðinga
4560 - 4570