Bæjarins besta - 28.11.1990, Page 12
12
BÆJARINS BESTA
ekki stillt með um að geta
þess, að við þessa útgáfu hefi
ég unnið með þrem ættliðum
á sex árum, Sigurði Jónssyni,
Árna Sigurðssyni og Herdísi
Jónsdóttur, en vinna við
þetta seinasta bindi verksins
hefir einkum hvílt á herðum
Halldórs Sveinbjömssonar,
Björns Davíðssonar og Her-
dísar Jónsdóttur, auk starfs-
manna Prentsmiðjunnar
Odda hf. í prentverki og
bókbandi. Ég þakka öllum
þeim, sem að verkinu hafa
unnið, gott og ánægjulegt
samstarf. Um leið vil ég nota
tækifærið og þakka Hrafni
Snorrasyni alveg sérstaklega
fyrir hans aðstoð, en hann á
heiðurinn af þeirri glæsilegu
kápu, sem prýðir þetta síð-
asta bindi, en myndin var
tekin á verslunarmannafrí-
daginn í sumar.
Síðazt en ekki sízt þökk-/
um við söguritaranum, Jóni
P. Þór, ánægjulega sam-
vinnu og umburðarlyndi.
Hann hefir lagt sig fram um
að þóknast stjórn félagsins í
því, að gera verkið sem bezt
úr garði. Eftir er svo að sjá
hvaða viðtökur bókin fær hjá
væntaniegum lesendum. Þeir
eru hinn harði dómari, sem
við eigum endanlega allt
undir“ sagði Jón Páll Hall-
dórsson m.a. í ræðu sinni.
Ekki verður annað sagt en
að bókin sé hin glæsilegasta
og sé forsvarsmönnum Sögu-
félags ísfirðinga svo og öll-
um ísfirðingum til mikils
sóma. 250 eintök af bókinni
hafa verið bundin inn í vand-
að skinnband sem einungis
verður hægt að fá hjá af-
greiðslu félagsins. Pá verður
á næstunni, allt verkið selt í
vandaðri öskju sem ætti að
verða vinsæl m.a. til afmæl-
isgjafa.
-s.
• Stjórn Sðgufélags ísflrðinga.
Suöureyri:
Mikil eftirspum um
húsnæði og atvinnu
SUÐUREYRI hefur ver-
ið á milli tannana á fólki
mestan hluta þessa árs. Mik-
ið atvinuleysi hefur verið á
staðnum og margar fjöl-
skyldur yfirgáfu húsin sín og
fluttu suður í kjölfarið. En
nú virðist málið vera að snú-
ast við, því eftirspurn um
Til sölu
Til sölu er Pajero,
árg. ’87. Bíllinn er
í toppstandi.
Upplýsingar
í síma 4164.
húsnæði og atvinnu hefur
verið mikil síðustu vikur.
Að sögn Snorra Sturluson-
ar sveitarstjóra Suðureyrar-
hrepps, er nægt framboð
húsnæðis á staðnum. Fjöldi
húsa eru til sölu og leigu
enda ekki við öðru að búast
þegar um sjötíu manns hafa
flutt af staðnum á þessu ári.
Fyrirspurnir um atvinnu
og húsnæði hafa verið miklar
upp á síðkastið. Aðallega er
þetta fjölskyldufólk sem hef-
ur áhuga á að breyta til.
• Fjöldi húsa er til sölu og leigu á Suðureyrl. Mlkið hefur verlð um að fjölskyldufólk spyrji eftir atvinnu
og húsnæði undanfarlð.
ísafjörður:
Inntök beggja vatns-
bólana stífluðust
- kranavatnið illa lyktandi vegna botngróðurs sem komst í inntökin
''ÆKNIDEILD Isa-
fjarðabæjar barst fjöldi
Fundarboð
Adalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða verður
haldinn á Hótel ísafirði 1. desember 1990 og hefst
kl. 14.00.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
kvartana síðastliðinn föstu-
dag vegna illa lyktandi
kranavatns og óhreinindi
sem því fylgdi. Við athugun
kom í Ijós að krap hafði
myndast í stíflunni á Dag-
verðardal og náð að komast í
inntakið. Við það rifnaði
botnsgróður og komsti tals-
vert magn í leiðslurnar.
Vatnsbólið í Tungudal
stíflaðist líka sama dag og
varð því vatnslaust um tíma í
bænum. Nýtt bráðabyrgða
inntak er í vatnsbólinu í
Tungudal, vegna jarðganga-
gerðarinnar, og eiga slík
vandamál ekki að geta skap-
ast þar.
Starfsmenn Tæknideildar-
innar hreinsuðu inntakið á
Dagverðardal og komst vatn
á skömmu síðar. Að sögn
Eyjólfs Bjarnasonar hjá
Tæknideildinni var ekkert
óeðlilegt að sýninu sem þeir
tóku úr vatninu. Krapa-
vandamál sem þetta gerir
ekki boð á undan sér og því
erfitt að sjá fyrir hvort slíkt
gerist. Þetta er vandamál
sem alltaf verður til staðar
yfir vetrarmánuðina.